Mynd: EPA

Valdi prinsessuna fram yfir konungsríkið

Þau voru dýrkuð og dáð. Hundelt og áreitt. Loks fengu þau nóg. Margt í sögu Harrys Breta­prins og Meghan Markle rímar við stef úr Grimms-ævin­týrum. En þetta er ekki leikur heldur lífið, sagði prins­inn er hann ótt­að­ist um líf konu sinnar.

Einu sinni var prins. Hann ferð­að­ist um ver­öld víða í leit að lífs­fyll­ingu. Allir vissu að hann hafði stórt hjarta og því var fagnað um allt kon­ungs­ríkið er hann loks gaf það brosmildri stúlku frá fjar­lægu landi. Þegn­arnir fylgd­ust grannt með ævin­týr­inu og sam­glödd­ust er prins­inn gekk að eiga stúlk­una sem þeim fannst sönn prinsessa.

Eða hvað?

Sterk öfl hófu að dreifa sögum um prinsess­una, sáðu fræjum efa­semda í huga þegn­anna og særðu hjarta stúlkunnar. Enginn spurði hana hvernig hún hefði sofið, næt­urnar sem hún eyddi í höllum drottn­ingar, næt­urnar sem henni kom varla dúr á auga. Hún ákvað því að nóg væri komið, henni væri betur borgið handan hafs­ins. Og þangað vildi hún fara, þótt það kost­aði hana kon­ung­lega stöðu sína, gull og ger­semar.

Nokkurn veg­inn svona hefði ævin­týrið um Harry Breta­prins og Meghan Markle kannski hljó­mað ef það hefði gerst fyrir nokkur hund­ruð árum og lifað í munn­mælum mann fram af manni.

Það hefði jafn­vel verið kryddað með erjum innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, móð­ur­missi litla prins­ins, árásum frá óvinum og vondri stjúpu. Slíkt hefði ekki bein­línis verið ýkjur því þó að í ævin­týrið vanti gler­skó eða baun, veiði­mann eða sjö röska dverga, er furðu margt í sögu Harrys og Meghan sem rímar við stefin í Grimms-ævin­týr­unum.

Endirinn hefur ekki verið skrif­aður, ævin­týrið er ekki úti, en í síð­asta kafla höfðu prinsessan og prins­inn afsalað sér titlum sínum. Þar með hefur meiri­hluti Breta fengið ósk sína upp­fyllta og frá næsta vori verða þau ekki lengur ávörpuð hans og hennar hátign. Harry verður þó áfram prins og sá sjötti í erfða­röð­inni að bresku krún­unni. En mögu­lega kynni hann því betur að vera ein­fald­lega Karlsson.

Meghan og Harry ganga til móts við flóð ljósmyndara.
Meghan og Harry ganga til móts við flóð ljós­mynd­ara.

Millj­ónir manna biðu spenntar eftir fæð­ingu Harrys haustið 1984. Um það hafði hann auð­vitað enga hug­mynd á þeim tíma og engu að ráða heldur. Hann var kon­ung­bor­inn, sonur krón­prins breska sam­veld­is­ins og konu af aðal­sættum, prinsessu, sem heill­aði allan heim­inn upp úr skónum.

Hann fædd­ist fyrir tíma inter­nets­ins en inn í tíma­bil allt að því her­skárra götu­blaða sem voru til­búin að ganga langt, afskap­lega langt, til að kom­ast sem næst kon­ungs­fjöl­skyld­unni – aðal­lega Díönu, móður Harrys.

Litli prins­inn var aðeins 12 ára er hún lést eftir að hafa verið hund­elt af ljós­mynd­urum. Tveir og hálfur millj­arður manna um allan heim fylgd­ist með í beinni útsend­ingu er Harry gekk á eftir kistu móður sinnar við útför hennar.

Harry nokkurra ára gamall í fangi móður sinnar, Díönu prinsessu.
Harry nokk­urra ára gam­all í fangi móður sinnar, Díönu prinsessu.

Nú er Harry orð­inn 35 ára. Götu­blöðin sem fengu á bauk­inn eftir dauða Díönu hafa fært þunga útgáf­unnar yfir á inter­netið sem síð­ustu mán­uði hefur verið upp­fullt af myndum, mynd­skeiðum, fréttum og skoð­ana­greinum um sitt nýjasta upp­á­hald: Meghan Markle. Stúlkuna sem Harry gaf hjarta sitt.

„Ég held að það að vera hluti af þess­ari fjöl­skyldu, að vera í þessu hlut­verki, í þessu starfi, í hvert skipti sem ég sé mynda­vél, í hvert skipti sem ég heyri smell, í hvert skipti sem ég sé flass, þá fer ég rak­leiðis aftur í tím­ann,“ sagði Harry í við­tali síð­asta haust. Hann var þá í Angóla og fet­aði í fót­spor móður sinnar um jarð­sprengju­svæði fyrir góð­gerða­sam­tök sem Díana hafði vakið heims­at­hygli á aðeins skömmu fyrir dauða sinn árið 1997.

Allt það slæma

„Að vera hérna núna, 22 árum síðar, að reyna að klára það starf sem hún hóf, hefur verið vakið gríð­ar­legar til­finn­ingar en allt sem ég geri minnir mig á hana,“ sagði hann. „En eins og ég sagði, vegna þessa hlut­verks, vegna þessa starfs og þeirra krafna sem því fylgja þá er ég minntur á allt það slæma, því miður.“

„Allt það slæma“ er ekki aðeins í for­tíð prins­ins. Hann ótt­ast að önnur kona sem hann elskar hljóti svipuð örlög og móðir hans.

Dæmi um forsíður blaða þar sem Meghan var í aðalhlutverki.
Dæmi um for­síður blaða þar sem Meghan var í aðal­hlut­verki.

Fjöl­miðlar sem gera út á fréttir af þekktu fólki höfðu gengið mjög langt í því að finna nýjar slúð­ur­fréttir um hina nýju „prinsessu fólks­ins“. Um leið og grun­semdir pressunnar vökn­uðu um ást­ar­sam­band Meghan og Harrys skömmu eftir þeirra fyrsta stefnu­mót sum­arið 2016 hóf hún að birta fréttir af leikkon­unni banda­rísku sem fangað hafði hjarta hins ást­sæla prins. Var því til að mynda slegið upp að Harry ætti í sam­bandi við frá­skilda konu, að móðir hennar væri svört og það gefið í skyn að hún hefði enn verið með öðrum manni er sam­band þeirra hófst.

Innsýn í líf

Seinna voru svo grafnir upp gamlir vinir, skóla­systk­ini og vinnu­fé­lagar til að „gefa inn­sýn“ í per­sónu hennar og líf allt. Fjöl­miðlar röktu ættir hennar til þræla og vinnu­hjúa í bresku kon­ungs­höll­inni sem mörgum þóttu for­dóma­full skrif. Þeir birtu svo hverja frétt­ina á fætur annarri byggða á orðum föður hennar, Thomas Markle. Samkvæmt þeim var sam­band feðgin­anna stirt og föð­urnum fannst dóttirin hafa svikið sig.

Þetta var það per­sónu­leg­asta og það sem sveið mest.

Eitt blaðið, Mail on Sunday, gekk svo langt að birta hluta bréfs sem Meghan hafði skrifað föður sínum skömmu fyrir brúð­kaup sitt sem var eins og svo margar aðrar stórar stundir í lífi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar sýnt í beinni útsend­ingu.

Á meðan heim­sókn Harrys og Meghan til Angóla stóð dró til tíð­inda: Harry gaf út yfir­lýs­ingu og í henni kom fram að þau hjónin hygð­ust lög­sækja Mail on Sunday fyrir að birta upp­lýs­ingar úr einka­bréfi.

„Ég hef séð hvað ger­ist þegar þeir sem ég elska eru gerðir að sölu­vöru og ekki lengur komið fram við þá eins og alvöru per­sónur. Ég missti móður mína og nú horfi ég upp á eig­in­konu mína verða fórn­ar­lamb sömu valda­miklu afla,“ skrif­aði prins­inn.

Þetta er lífið hennar

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem slúð­ur­pressan var vin­sam­lega beðin að hætta að áreita Meghan. Það var meðal ann­ars gert í yfir­lýs­ingu frá tals­manni Harrys aðeins nokkrum mán­uðum eftir að sam­band þeirra hófst. „Þetta er ekki leikur – þetta er lífið hennar“.

Eftir að til­kynnt var um mál­sókn­ina í haust var áfram fjallað um Meghan í fjöl­miðlum. Ekki leið á löngu þar til stóra fréttin kom: Hjónin til­kynntu á Instagram að þau ætl­uðu að láta af öllum kon­ung­legum skyldum sínum og skipta tíma sínum milli Bret­lands og Norður-Ameríku.

Meghan og Harry hafa oft veitt fjöl­miðlum per­sónu­leg við­töl. „Við erum tvær mann­eskjur sem erum virki­lega ham­ingju­samar og ást­fangnar,“ sagði Meghan í við­tali við Vanity Fair haustið 2017. Tveimur mán­uðum síðar til­kynntu þau trú­lofun sína og fóru í langt við­tal við Breska rík­is­út­varpið, BBC. Brúðkaup þeirra var eins og fyrr segir sýnt í beinni útsend­ingu og þótti athöfnin slá nýjan hljóm: Kon­ungs­fjöl­skyldan var á hrað­leið inn í nútím­ann. Meghan var sögð eiga stóran þátt í því.

Óseðjandi lesendur?

En les­endur virt­ust hafa enda­lausa lyst á að smjatta á fréttum af hjón­unum og götu­blöðin vildu gera sitt til að seðja það hungur, jafn­vel vekja það. Harry ólst upp við slíkt áreiti og þó að Meghan hafi sem leik­kona fengið sinn skerf af því var það á engan hátt sam­bæri­legt við það sem hún varð fyrir eftir að hún varð hluti af bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni.

Harry hélt áfram að biðja press­una að sýna henni vægð. Fyrir ári, er bréfið var birt í Mail on Sunday á sama tíma og Meghan var ólétt, virt­ist mælir­inn við það að fyll­ast og hann sagði í yfir­lýs­ingu að kona sín væri fórn­ar­lamb „vægð­ar­lausrar her­ferðar“ bresku pressunnar og að hann hefði „setið hljóður hjá“ og „fylgst með þján­ingum hennar“ of lengi. Hann skrif­aði að stöð­ugur áróð­ur­inn hefði sárs­auka­full áhrif sem hann gæti ekki lýst með orðum.

Mæðgin á jarðsprengjusvæði. Harry til vinstri og Díana til hægri.
Mæðgin á jarð­sprengju­svæði. Harry til vinstri og Díana til hægri.

Archie litli fædd­ist þeim svo í maí í fyrra. Þau héldu fjöl­miðlum í ákveð­inni fjar­lægð þó að þau hafi verið örlát á myndir af honum á sam­fé­lags­miðlum.

Slúðrað var um það að sam­band þeirra bræðra, Harrys og Vil­hjálms, hefði farið versn­andi eftir að Meghan kom til sög­unnar. Henni var líkt við Yoko Ono sem margir höfðu kennt um enda­lok Bítlanna.

Aðdá­endur bresku krún­unnar áttu svo ekki orð er Meghan sagði í við­tali í haust, spurð um hið nýja hlut­verk sitt: „Það er ekki margt fólk sem spyr mig hvort að ég sé OK.“

Prinsessan á baun­inni hvað! sögðu ein­hverjir í hneyksl­un­ar­tón á milli tesopanna. Var hún of mikil príma­donna til að vera prinsessan þeirra? Of góð til að hleypa öllum að sér, öllum stundum?

Archie litli fæddist í maí á síðasta ári. Er Meghan var ólétt birti dagblað persónulegt bréf frá henni.
Archie litli fædd­ist í maí á síð­asta ári. Er Meghan var ólétt birti dag­blað per­sónu­legt bréf frá henni.

Margt hefur sum sé bent til þess síð­ustu mán­uði að Meghan ætti erfitt, væri ósátt og að Harry hefði áhyggjur. Þau eyddu ekki jól­unum í Bret­landi heldur fóru með Archie til Kanada og nutu hátíð­anna með móður Meghan. Í árlegri jóla­kveðju Elísa­betar drottn­ingar tóku svo glöggir eftir því að mynd af litlu fjöl­skyld­unni var hvergi að finna á skrif­borð­inu sem hún sat við.

Þann 8. jan­úar til­kynntu þau um skilnað. Ekki sinn eigin heldur við kon­ungs­fjöl­skyld­una. Að minnsta kosti að borði og sæng. Þau sögð­ust vilja ná fjár­lags­legu sjálf­stæði. Enn var fussað og sveiað. Þau sögðu ekki einu sinni drottn­ing­unni, hinni háöldr­uðu ömmu Harrys, frá ákvörð­un­inni.

Drottningin styður ákvörðunina

Það er reyndar rangt ef marka má yfir­lýs­ingu sem Elísabet, amman aldna, sendi frá sér í gær er til­kynnt var um útfærslu á breyttri stöðu hjóna­korn­anna:

„Eftir margra mán­aða sam­töl og umræður í kjöl­far þeirra er ég ánægð með að saman höfum við fundið upp­byggi­lega og stuðn­ings­ríka leið fram á við fyrir son­ar­son minn og hans fjöl­skyldu. Harry, Meghan og Archie verða alltaf elskuð af fjöl­skyld­unni,“ sagði meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni.

Drottn­ingin sagð­ist hafa skiln­ing á þeim áskor­unum sem þau hafa upp­lifað síð­ustu tvö ár, ver­andi undir nál­ar­auga fjöl­miðla, „og ég styð ósk þeirra um meira sjálf­stæði“.

Flestir fjölmiðlar í Bretlandi slógu því upp á forsíðum sínum að Harry og Meghan vildu meira sjálfstæði og frelsi frá konunglegum skyldum.
Flestir fjöl­miðlar í Bret­landi slógu því upp á for­síðum sínum að Harry og Meghan vildu meira sjálf­stæði og frelsi frá kon­ung­legum skyldum.

Í yfir­lýs­ingu frá Buckingham-höll var svo greint frá sam­komu­lag­inu. Þau munu afsala sér kon­ung­legum titlum og hafa óskað eftir því að end­ur­greiða kostnað við end­ur­bætur á heim­ili þeirra í Bret­landi, Frogmore Cottage, sem er í eigu krún­unnar. Þau munu áfram sinna góð­gerða­málum en þó ekki koma fram sem full­trúar drottn­ingar.

Sam­komu­lagið tekur gildi í vor.

Í til­kynn­ingu hall­ar­innar er tekið fram að spurn­ingum um örygg­is­gæslu, sem ljóst þykir að hjónin munu áfram þurfa á að halda, verði ekki svarað. Fjöl­miðlar velta sér nú upp úr því hver eigi að borga fyrir líf­verð­ina. Talið er að þau dvelji héðan í frá í Kanada hluta úr ári og er Meghan þegar flogin þangað. Væru þau þar í kon­ung­legum erindum myndu kanadísk stjórn­völd borga fyrir örygg­is­gæsl­una en nú er staða þeirra orðin tals­vert snún­ari hvað þetta varðar.

Kanada­menn eru ekki hrifnir af því að þurfa að greiða fyrir gæsl­una. Bretar, sem sumir hverjir eru sárir hjón­unum fyrir að kjósa útgöngu úr kon­ung­legu lífi sínu, eru heldur ekki spenntir fyrir að halda áfram að borga brús­ann.

Harry og Meghan munu héðan í frá deila tíma sínum milli Bretlands og Norður-Ameríku.
Harry og Meghan munu héðan í frá deila tíma sínum milli Bret­lands og Norður-Ameríku.

Ekki er sum sé endi­lega vilji hjá þegnum breska sam­veld­is­ins til að kosta varnir pars­ins sem var hund­elt af ákafri slúð­ur­press­unni og hefur þurft að þola stöðugt ónæði og umfjöllun. Bretar voru enda fljótir að snúa baki við Meghan og Harry eftir að þau sögð­ust vilja losna við kon­ung­legar skyldur sínar. Samkvæmt könnun vildu 54% lands­manna að hjónin yrðu svipt titlum sínum og fjár­lags­legum stuðn­ingi.

Það vill reyndar svo til að Daily Mail, syst­ur­blað fjöl­mið­ils­ins sem Meghan ætlar í mál við, gerði könn­un­ina.

Við má bæta nið­ur­stöðum fleiri skoð­ana­kann­ana: Vilja Kanada­menn yfir höfuð áfram vera hluti af breska sam­veld­inu? Meiri­hlut­inn vill það en 45% vilja þó kasta krún­unni.

Kanada­menn segj­ast hins vegar vel skilja að Meghan og Harry vilji setj­ast að í land­inu, mögu­lega á afskekktum stað þar sem þau fá næði.

Og kannski munu þau lifa þar ham­ingju­söm allt til ævi­loka. Hver veit?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið undanfarið ár