Þess vegna birta danskir fjölmiðlar ekki myndir af Litlu hafmeyjunni

Stytta danska lista­manns­ins Edvards Eriksen, Litla haf­meyjan í Kaup­manna­höfn, verður reglu­lega fyrir barð­inu á skemmd­ar­vörgum. Skemmd­ar­verkin, sem gjarnan eru af póli­tískum toga, rata oft í frétt­irnar. Það gera ljós­myndir af fórn­ar­lamb­inu hins vegar ekki.

Hér má sjá þegar tjald var sett upp til að sýna beint frá Litlu hafmeyjunni á meðan hún var á Heimssýningunni í Shanghai árið 2010.
Hér má sjá þegar tjald var sett upp til að sýna beint frá Litlu haf­meyj­unni á meðan hún var á Heims­sýn­ing­unni í Shanghai árið 2010. Mynd: EPA

Litla haf­meyja danska höf­und­ar­ins H.C. Andersen ætti að vera flestum kunnug. Enda þótt hún hafi orðið til á blað­síðum höf­und­ar­ins árið 1837 þá hefur hún reglu­lega gengið í end­ur­nýjun líf­daga í barna­bókum og teikni­myndum í gegnum árin. Það hlaut hún einnig fyrir til­stilli lista­manns­ins Edvard Eriksen, sem afhjúpaði af henni styttu árið 1913; styttu sem flestir sem leggja leið sína til Kaup­manna­hafnar bera augum við Lang­el­inie í höfn höf­uð­borgar Dana­veldis.

Stytta þessi er hins vegar ekki ein­ungis vin­sæl meðal ferða­manna heldur einnig skemmd­ar­varga, sem ýmist virð­ast skemma til til að skemma, nú eða til þess að koma ákveðnum skila­boðum á fram­færi, einkum póli­tískum, þar sem fjöl­margir leggja jú leið sína að stytt­unni á degi hverjum.

Sú varð raunin um miðjan þennan mánuð þegar póli­tískur skemmd­ar­vargur virð­ist hafa lagt leið sína að stytt­unni í skjóli nætur til þess að spreyja á stytt­una, eða nánar til tekið á stein­inn sem haf­meyjan situr á, skila­boð. Um var að ræða eins konar til­gátu eða til­raun til vit­und­ar­vakn­ingar um að bók­staf­ur­inn Z, sem notuð er orðin til þess að sýna stuðn­ing við inn­rás Rúss­lands í Úkraínu eins og fjallað hefur verið um á Kjarn­anum, sé hinn nýi haka­kross.

[links]Skilaboð þessi eru þó ekki aðal­um­fjöll­un­ar­efni þess­arar frétta­skýr­ingar, enda getur hver myndað sér sína skoðun á því hvort líkja megi umræddu Z-tákni við haka­kross Nasista, heldur fjar­vera ljós­mynda af „fórn­ar­lambi“ skemmd­ar­verks­ins, Litlu haf­meyj­unni.

Und­ir­rituð furð­aði sig nefni­lega mikið á því að ljós­myndir af skemmd­ar­verk­inu væru af skornum skammti í umfjöllun danskra fjöl­miðla um málið. Raunar var aðeins einn fjöl­mið­ill, Nyheder.dk, sem birti mynd af skemmd­ar­verk­inu. Aðrir á borð við Berl­ingske, Politi­ken og Jyllands-Posten not­uð­ust við ljós­myndir af hvers kyns lög­reglu­bún­aði og enn aðrir höfðu umfjöll­un­ina hrein­lega án ljós­myndar. Á miðli sem gefur sig út fyrir að vera sér­stakur ljós­mynda­frétta­mið­ill var ein­ungis boðið upp á myndir af vett­vangi sem sýndu við­stadda. Ekki sást í lista­verkið né skemmd­ar­verkið á neinni mynd. Við nán­ari eft­ir­grennslan um mynd­birt­ingar fjöl­miðla af Litlu haf­meyj­unni fannst söku­dólg­ur­inn: höf­und­ar­réttur.

Þannig er málið nefni­lega vaxið að erf­ingjar Edvard Eriksen vilja meina að verkið, líkt og önnur lista­verk, sé höf­und­ar­varið og því megi ekki birta myndir af Litlu haf­meyj­unni í hagn­að­ar­skyni. Málið hefur vakið tals­verða athygli og furðu, enda má nálg­ast þús­undir mynda af verk­inu, sem er einn helsti við­komu­staður ferða­manna í Kaup­manna­höfn, á net­inu. Þegar það ratar hins vegar í fjöl­miðla, sem er nokkuð reglu­lega, mega fjöl­miðlar hins vegar ekki birta myndir af því án leyfis.

Eða það er að minnsta kosti það sem erf­ingjar lista­manns­ins halda fram, og Hæsti­réttur Dan­merkur stað­festi nú fyrr á árinu. Erf­ingjar Eriksen hafa nefni­lega ítrekað farið í mál við danska fjöl­miðla sem birt hafa myndir af Litlu haf­meyj­unni und­an­farna ára­tugi, og hafa margir fengið háan reikn­ing frá fjöl­skyld­unni vegna notk­unar mynda af verk­inu.

Samkvæmt dönskum höf­und­ar­rétt­ar­lögum fellur birt­ing í fjöl­miðlum undir birt­ingu í hagn­að­ar­skyni. Und­an­þága getur átt við ef um er að ræða „aug­ljóst frétta­sam­hengi“. Þrátt fyrir það veigra flestir fjöl­miðlar sér við því að nota mynd af stytt­unni, jafn­vel í atvikum eins og lýst var hér að ofan.

6 milljóna króna sekt

Mörgum finnst of langt gengið hjá Eriksen-fjöl­skyld­unni að rukka fyrir notkun á myndum af þekktasta lista­verki þjóð­ar­innar, en fyrir skemmstu var að end­ingu úrskurðað um málið fyrir æðsta dóm­stól Dan­merkur. Þá hafði fjöl­mið­ill­inn Berl­ingske birt teikn­ingar af Litlu haf­meyj­unni og bar fyrir sig að um hafi verið að ræða „sann­gjörn not“ (e. fair deal­ing) og að um væri að ræða skop­stæl­ingar á verk­inu. Berl­ingske áfrýj­aði mál­inu tvisvar og end­aði það fyrir Hæsta­rétti þar sem fjöl­mið­ill­inn var dæmdur til þess að greiða erf­ingjum Eriksen 300 þús­und danskar krónur, sem jafn­gildir tæp­lega 6 millj­ónum íslenskra króna, fyrir brot á höf­und­ar­rétti.

Málið er talið bera vitni um ákveð­inn galla í dönskum lögum um höf­und­ar­rétt, enda sé afleitt að fjöl­miðlar geti ekki birt ljós­myndir af þessu þekktasta kenni­leiti Dan­merkur án þess að eiga von á óvæntri sekt. Erfingar Eriksen bera hins vegar ávallt fyrir sig lögin og segja þetta jafn­eðli­legt og höf­und­ar­rétt­ar­greiðslur fyrir notkun á annarri list, svo sem tón­list. Höf­und­ar­réttur sem þessi fellur þó úr gildi 70 árum eftir frá­fall lista­manns og hafa erf­ingar Eriksen því fram til 2029 til þess að halda áfram að græða á meist­ara­verki ætt­föð­urs­ins, þegar Litla haf­meyjan á Lang­el­inie verður frjáls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár