Hvernig „Z“ varð að yfirlýstu stuðningstákni við innrásina í Úkraínu

Bók­staf­ur­inn Z, sem er ekki hluti af kýrill­íska staf­róf­inu, er orð­inn að stuðn­ings­tákni fyrir inn­rás Rúss­lands í Úkraínu. Táknið og notkun þess hefur vakið upp óhug hjá and­stæð­ingum stríðs­ins og þykir minna óþægi­lega mikið á haka­kross­inn.

„Z“ á stærðarinnar auglýsingaskilti í Sankti Pétursborg í Rússlandi. „Við yfirgefum ekki fólkið okkar,“ segir í myllimerkinu fyrir neðan.
„Z“ á stærð­ar­innar aug­lýs­inga­skilti í Sankti Pét­urs­borg í Rúss­landi. „Við yfir­gefum ekki fólkið okkar,“ segir í mylli­merk­inu fyrir neðan. Mynd: EPA

Bók­stafur sem táknar stuðn­ing við stríðs­rekstur Rússa hefur breiðst út á ógn­ar­hraða frá því að inn­rásin í Úkraínu hófst. Táknið er skýrt, auð­þekkj­an­legt og — það sem skiptir miklu máli að mati sumra sér­fræð­inga — er auð­velt að rita: Bók­staf­ur­inn Z.

„Z“ varð fyrst vart á her­bílum og skrið­drekum rúss­neska hers­ins á landa­mærum Rúss­lands og Úkraínu dag­ana áður en inn­rásin hófst 24. febr­úar. Síðan þá hefur „Z“ verið áber­andi víða í Rúss­landi, til að mynda á bygg­ingum, fatn­aði, aug­lýs­inga­skiltum og á her­gögnum. Jafnvel börn hafa verið fengin til að mynda „Z“ með því að raða sér upp í lögun þess á skóla­lóðum. Stjórn­mála­skýrendur segja það ekki fara milli mála að „Z“ varð að stuðn­ings­tákni við inn­rás Rússa í Úkraínu á ógn­ar­hraða.

Hvaðan kemur „Z“ og hverjir eru að nota hana?

„Z“ hefur verið notað innan rúss­neska hers­ins um ára­bil og sumir sér­fræð­ingar vilja meina að notkun þess sé stýrt af yfir­völdum.

Uppruni notk­unar þess innan hers­ins er hins vegar á huldu en ásamt „Z“ hafa bók­stafirnir O, X, A og V verið not­aðir til að merkja rúss­neska skrið­dreka og önnur her­gögn. Stafirnir eru því not­aðir til að aðgreina her­deildir en „Z“ merkir ein­fald­lega að her­bílar og skrið­drekar sem bera það merki til­heyra eystri her­deild rúss­neska hers­ins. Bók­stafirnir eru einnig not­aðir til merkja her­sveitir Rússa skil­merki­lega og koma þannig í veg fyrir að her­inn skjóti á eigin her­sveitir, en her­gögn Rússland og Úkraínu eru lík að mörgu leyti.

„Z“ til­heyrir lat­neska staf­róf­inu og er í raun ekki til í kýrill­íska staf­róf­inu sem Rússar nota. Notkun á „z“ fyrir utan her­inn þykir gefa vís­bend­ingu um að rúss­nesk yfir­völd hafi hafið nokk­urs konar her­ferð til að ýta undir stuðn­ing Rússa við stríðið í Úkraínu.

Límdi „Z“ á keppnisbúninginn og „sér ekki eftir neinu“

Það virð­ist hafa gengið upp, að vissu marki að minnsta kosti. Rúss­neski fim­leika­mað­ur­inn Ivan Kuliak límdi til að mynda Z yfir fim­leika­bún­ing sinn við verð­launa­af­hend­ingu á heims­bik­ar­móti í fim­leikum í Katar fyrr í mán­uð­inum.

Rúss­neskum kepp­endum var bannað að bera rúss­neska fán­ann eða skjald­ar­merki á keppn­is­bún­ingnum sínum og límdi Kuliak Z yfir þar sem fán­inn hefði ann­ars verið. Fram­takið vakti athygli, ekki síst þar sem við hlið Kuliak stóð úkra­ínski kepp­and­inn Illya Kovtun, gull­verð­launa­hafi í keppn­is­grein­inni.

Við kom­una heim til Rúss­lands sagð­ist hann ekki sjá eftir neinu. Kuliak, sem er tví­tugur, sagði í sam­tali við rík­is­rekna fjöl­mið­il­inn Russia Today hafa tekið eftir stafnum hjá rúss­neska hernum og ákveðið að fletta upp merk­ingu þess, sem reynd­ist vera „fyrir sigur“ og „fyrir frið“. „Sem íþrótta­maður mun ég alltaf berj­ast fyrir sigri og keppa í nafni friðar,“ segir Kuliak.

Uppátæki Kuliak mun þó hafa afleið­ingar. Alþjóða fim­leika­sam­bandið (FIG) hefur falið siða­nefnd sam­bands­ins að hefja rann­sókn á fram­komu Kuliak sem sam­bandið telur vera átak­an­lega og hneyksl­an­lega og á Kuliak yfir höfði sér langt keppn­is­bann.

Önnur birt­ing­ar­mynd „Z“ sem vakið hefur mikla athygli og dreifst víða á sam­fé­lags­miðlum er frá rúss­nesku borg­inni Kazan í vest­ur­hluta Rúss­lands. Á mynd­inni sjást lang­veik börn sem dvelja á spít­ala þar í borg mynda „Z“ í stórum hóp. For­stöðu­maður deild­ar­innar átti frum­kvæði af upp­á­tæk­inu.

Bera „Z“ saman við notkun hakakrossins

Hröð útbreiðsla „Z“ og póli­tísk merk­ing hefur vakið upp óhug meðal margra þar sem notkun tákns­ins svipar óþægi­lega mikið til notkun haka­kross­ins. Líkindin þykja svo mikil að merkin tvö, bók­staf­ur­inn Z og haka­kross­inum, voru rituð á stein litlu haf­meyj­unnar í Kaup­manna­höfn um helg­ina með sama­sem­merk­inu á milli. Þetta er síður en svo í fyrsta skipti sem skemmd­ar­verk eru unnin á litlu haf­meyj­unni en lög­reglan í Kaup­manna­höfn rann­sakar málið sem póli­tískt skemmd­ar­verk.

En á sama tíma og stuðn­ings­táknið hefur náð mik­illi útbreiðslu er and­staða við stríðs­rekst­ur­inn til staðar. Nið­ur­stöður könn­unar sem fram­kvæmd var af sjálf­stæðu rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki sýna að 58 pró­sent Rússa styðja inn­rás­ina í Úkraínu á meðan 23 pró­sent eru á móti henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár