Milljarðs króna tap af reglulegri starfsemi hjá útgáfufélagi Fréttablaðsins á tveimur árum

Tekjur Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, dróg­ust saman í fyrra og rekstr­ar­tap útgáfu­fé­lags­ins jókst gríð­ar­lega. Hlutafé var aukið og tengdir aðilar lán­uðum hund­ruð millj­óna í rekst­ur­inn. Við­skipta­vild jókst milli ára.

Helgi Magnússon er aðaleigandi og stjórnarformaður Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins.
Helgi Magn­ús­son er aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins. Mynd: Samsett

Rekstr­ar­tap Torgs ehf., útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins, Hring­brautar, DV og tengdra miðla, var 688,7 millj­ónir króna í fyrra. Árið áður var rekstr­ar­tap félags­ins 197,3 millj­ónir króna og því nemur sam­eig­in­legt rekstr­ar­tap þess á tveimur árum 886 millj­ónum króna.

Þegar vaxta­gjöldum vegna lána sem Torg hefur þurft að borga af og geng­is­mun er bætt við kemur í ljós að tap af reglu­legri starf­semi fyrir skatta var um 750 millj­ónir króna á síð­asta ári og rúm­lega einn millj­arður króna á síð­ustu tveimur áður.

Áður hafði verið upp­lýst í frétt í Frétta­blað­inu að Torg hefði tapað um 600 millj­ónum króna á árinu 2020. í árs­reikn­ingi félags­ins, sem gerður var aðgengi­legur í árs­reikn­inga­skrá í dag, kemur fram að mis­mun­ur­inn á end­an­legu tapi og því tapi sem varð af reglu­legri starf­semi Torgs sé að uppi­stöðu fólgin í því að tekju­skattsinn­eign vegna taps­ins á 150 millj­ónir króna var tekju­færð.

Torg er í eigu tveggja félaga, Hofgarða ehf. og HFB-77 ehf. Eigandi fyrr­nefnda félags­ins er fjár­festir­inn Helgi Magn­ús­son og hann á 82 pró­sent í því síð­ar­nefnda. Helgi er auk þess stjórn­ar­for­maður Torgs. Aðrir eig­endur þess eru Sigurður Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Hring­brautar og við­skipta­fé­lagi Helga til margra ára, Jón G. Þórisson, fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, og Guð­­­­mundur Örn Jóhanns­­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­­varps­­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­­kvæmda­­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­­mála og dag­­­­­skrár­­­­­gerðar hjá Torg­i.

Keyptu DV og tengda miðla á 300 milljónir

Hópurinn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál en í árs­reikn­ingi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­ónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félags­ins.

[adspot]Hlutafé í Torgi var svo aukið um 600 millj­ónir króna í lok síð­asta árs. Skuldir við tengdan aðila voru auk þess 440 millj­ónir króna um ára­mót en voru engar í byrjun árs 2020. Sam­an­lagt juk­ust skuldir við tengda aðila, eig­endur Torgs, og hlutafé um rúman millj­arð króna á síð­asta ári.

Á árinu 2020 var gengið frá kaupum á DV og tengdum miðlum frá Frjálsri fjöl­miðlun, félags sem skráð er í eigu Sigurðar G. Guð­jóns­sonar en var alla tíð fjár­magnað með vaxta­lausum lánum frá fjár­fest­inga­fé­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar. Frá því að Frjáls fjöl­miðlun eign­að­ist miðl­anna haustið 2017 og þangað til að þeir voru seldir til Torgs í apríl 2020 tap­aði útgáfu­fé­lagið um 745 millj­ónum króna. Torg greiddi samt sem áður 300 millj­ónir króna fyrir miðl­anna en sam­kvæmt árs­reikn­ingi voru 100 millj­ónir króna greiddar með fjár­munum úr rekstr­inum og 200 millj­ónir króna með nýjum lang­tíma­lánum. Frjáls fjöl­miðlun virð­ist hafa lánað að minnsta kosti 150 millj­ónir króna af þeirri upp­hæð í formi selj­enda­láns, en eina fasta­fjár­muna­eign þess félags er skulda­bréf upp á þá tölu sem varð til í fyrra.

Tekjur dregist saman

Flagg­skipið í útgáfu Torgs er Frétta­blaðið. Útgáfu­dögum þess var fækkað úr sex í fimm á viku í fyrra þegar hætt var með mánu­dags­út­gáfu blaðs­ins. Lestur Frétta­blaðs­ins, sem er frídreift í 80 þús­und ein­tökum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Akureyri, mæld­ist 31 pró­sent í síð­asta mán­uði. Hann hefur dalað jafnt og þétt und­an­farin ár en í apríl 2007 var hann 65,2 pró­sent og hélst yfir 50 pró­sent þangað til í des­em­ber 2015. Síð­sum­ars 2018 fór lest­ur­inn svo undir 40 pró­sent í fyrsta sinn og stefnir nú undir 30 pró­sent á næstu mán­uðum, en frá byrjun árs 2018 hefur lestur Frétta­blaðs­ins auk­ist á milli mán­aða í sex skipti en dalað 39 sinn­um.

[adspot]Í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­ur­inn nú 22,2 pró­sent og er nú um þriðj­ungur þess sem hann var fyrir tólf árum.

Þrátt fyrir að Hring­braut, DV og ýmsum tengdum miðlum hafi verið bætt við sam­stæð­una þá hafa rekstr­ar­tekjur Torgs dreg­ist umtals­vert saman á und­an­förnum árum. Þær voru tæp­lega 2,6 millj­arðar króna á árinu 2018 en voru rétt yfir tvo millj­arða króna í fyrra. Þar af skil­aði sala, aðal­lega aug­lýs­inga, 1.923 millj­ónum krónum í fyrra en 2.574 millj­ónum króna tveimur árum fyrr. Tekjur af sölu hafa því dreg­ist saman um fjórð­ung þrátt fyrir að fjöl­miðl­unum í sam­stæð­unni hafi fjölgað umtals­vert á tíma­bil­inu.

Óvissa um mat á viðskiptavild

Hluta­fjár­aukn­ingin sem fram­kvæmd var undir lok síð­asta árs gerði það að verkum að eigið fé Torgs var jákvætt um síð­ustu ára­mót um 290 millj­ónir króna. Án hennar hefði það verið nei­kvætt um mörg hund­ruð millj­ónir króna. Það er nán­ast sama eig­in­fjár­staða og var undir lok árs 2019, en á því ári hafði eigið fé helm­ing­ast vegna tap­rekst­urs.

Í árs­reikn­ingi Torgs segir að ástæða hins mikla tap­rekst­urs í fyrra hafi verið sam­dráttur í aug­lýs­inga­tekjum ásamt því að kostn­aður vegna launa og dreif­ingar jókst. „Á vor­mán­uðum hefur rekstr­ar­um­hverfi Torgs ehf. hefur breyst mjög hratt til hins betra með auk­inni aug­lýs­inga­sölu þannig að stjórn­endur félags­ins gera sér vonir um að jafn­vægi verði í rekstri þess á árinu 2021.“

Þar segir þó einnig að eignir og skuldir félags­ins séu metnar með hlið­sjón af því að for­senda um rekstr­ar­hæfi félags­ins sé fyrir hendi. Sú óvissa um rekstr­ar­hæfi snýst fyrst og síð­ast um mat á við­skipta­vild sem metin er á 943,5 millj­ónir króna. Í áliti end­ur­skoð­anda Torgs í árs­reikn­ingi félags­ins vegna árs­ins 2020 er gerð sér­stök ábend­ing vegna þess­arar óvissu, en sér­stak­lega tekið fram að það sé gert án þess að fyr­ir­vari sé gerður við reikn­ing­inn.

Heildarskuldir komnar í 1,5 milljarð króna

Við­skipta­vild er mat á virði hug­lægra eigna fyr­ir­tæk­is. Með því er til að mynda sett mat á fjár­hags­legu verð­mæti þess að eiga hóp fastra við­skipta­vina, eins og þeirra sem kaupa aug­lýs­ingar af miðlum Torgs og þeirra sem lesa eða horfa á þá.

[links]Í árs­reikn­ingi Torgs kemur fram að við­skipta­vild félags­ins hafi hækkað mikið í fyrra, alls um 191,1 milljón króna í 943,5 millj­ónir króna, þrátt fyrir að tekjur Torgs hafi dreg­ist saman og rekst­ur­inn skilað 750 millj­óna króna tapi af reglu­legri starf­semi fyrir skatta.

Við­skipta­vild og tekju­skattsinn­eign vegna upp­safn­aðs taps voru um 61 pró­sent af öllum eignum Torgs í lok síð­asta árs og rúm­lega öll ástæða hækk­unar á virði heild­ar­eigna á því ári.

Heild­ar­skuldir Torgs juk­ust um 318,5 millj­ónir króna í fyrra og stóðu í 1,5 millj­arði króna um síð­ustu ára­mót. þær hafa auk­ist um 740 millj­ónir króna á tveimur árum, eða nán­ast tvö­fald­ast. Í fyrra mun­aði mestu um að áður­nefnd skuld við tengda aðila fór úr því að vera engin í að vera 440 millj­ónir króna.

Pappír hækkar vegna faraldursins

Torg er á meðal þeirra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem fengið hefur styrk úr rík­is­sjóði sem veittur er til einka­rek­inna fjöl­miðla. Félagið fékk 50 millj­ónir króna á árinu 2019 og rúm­lega 81 milljón króna vegna árs­ins 2020.

Þeir miðlar sem gefa út í prenti hafa orðið fyrir umtals­verðum kostn­að­ar­hækk­unum und­an­farið sem rekja má til aðfanga­skorts vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Sér­stak­lega þeir sem prenta stór upp­lög af blöðum í viku hverri, eins og Frétta­blaðið.

Stundin greindi frá því í lok sept­em­ber að 40 pró­sent verð­hækkun eða meiri væri yfir­vof­andi á dag­blaða­pappír og vitn­aði þar í til­kynn­ingu sem Lands­prent, prent­smiðju í eigu Árvak­urs, hafði sent við­skipta­vinum sínum en Lands­prent prentar meðal ann­ars Stund­ina.

Kjarn­inn er á meðal þeirra fjöl­miðla sem þiggja rekstr­ar­styrki úr rík­is­sjóði og fékk 14,4 millj­ónir króna við síð­ustu úthlut­un. Þau fyr­ir­tæki sem hér eru til umfjöll­unar eru sam­keppn­is­að­ilar Kjarn­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár