Rekstrartap útgáfufélags Morgunblaðsins var 210 milljónir króna í fyrra

Þrátt fyrir að hafa fengið 100 millj­ónir króna í rík­is­styrk í fyrra var rekstr­ar­tap Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, yfir 200 millj­ónir króna á síð­asta ári. Starfs­fólki fækk­aði um 14 pró­sent en launa­kostn­aður stjórn­enda jókst um fimm pró­sent.

Davíð Oddsson er annar ritstjóra Morgunblaðsins og hefur verið það frá haustinu 2009.
Davíð Oddsson er annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og hefur verið það frá haustinu 2009. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tekjur Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og K100, dróg­ust saman um rúm fjögur pró­sent í fyrra og voru rúm­lega 3,2 millj­arðar króna. Laun og launa­tengd gjöld dróg­ust saman um 187 millj­ónir króna og stöðu­gildum fækk­aði að með­al­tali úr 153 í 132, sem þýðir að starfs­fólki útgáfu­fé­lags­ins fækk­aði um næstum 14 pró­sent á síð­asta ári.

Heild­ar­laun og þókn­anir til stjórn­enda félags­ins á árinu 2020 námu 141,8 millj­ónum króna. Það er hækkun á launum þeirra um næstum fimm pró­sent á milli ára á sama tíma og öðru starfs­fólki var fækkað. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Árvakurs.

[links]Í síð­asta mán­uði var birt frétt í Morg­un­blað­inu þar sem því að Árvakur hefði tapað 75 millj­ónum króna á árinu 2020. Í þeirri frétt fagn­aði Haraldur Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóri Árvakurs og annar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, því að rekst­ur­inn væri að fara í rétta átt þar sem tap væri að minnka.

Í árs­reikn­ingi Árvakurs, sem varð aðgengi­legur á vef Skatts­ins í þess­ari viku, kemur þó fram að rekstr­ar­tap félags­ins var mun meira, eða 210,3 millj­ónir króna á síð­asta ári. Það er aðeins minna rekstr­ar­tap en árið áður þegar það var 245,3 millj­ónir króna.

Sá munur var á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla árið 2020 miðað við árið 2019 að í fyrra ákvað Alþingi að veita rekstr­ar­stuðn­ing til þess að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­urs­ins, og studdi við fyr­ir­tæki með ýmsum öðrum hætti.

Rekstr­ar­styrk­ur­inn sem Árvakur fékk nam alls 99,9 millj­ónum króna, en eitt hund­rað millj­óna króna þak var á styrkjum til hvers fjöl­miðla­fyr­ir­tækis. Því má ætla að rekstr­ar­tapið hafi verið yfir 300 millj­ónir króna ef ekki hefði verið fyrir rekstr­ar­styrk­inn.

Alþingi sam­þykkti undir lok maí að sam­bæri­legir styrkir yrðu áfram veittir einka­reknum fjöl­miðlum út næsta ár.

Hlutdeild í afkomu dótturfélags breytti umfangi taps

Hlut­deild í afkomu dóttur- og hlut­deild­ar­fé­laga, sem teng­ist ekki grunn­rekstri Árvakurs, útskýrir þann mun sem er á end­an­legri afkomu og rekstr­ar­af­komu, en hún er jákvæð um 160 millj­ónir króna. Þar skiptir mestu hlut­deild í Lands­prenti, sem rekur prent­smiðju sem prentar þorra þeirra prent­miðla sem gefnir eru út á Íslandi, en hún var 144 millj­ónir króna í fyrra. Árs­reikn­ingi Lands­prents hefur verið skilað til árs­reikn­inga­skrár en ekki verið birtur á heima­síðu Skatts­ins. Vinnu­mála­stofnun greindi frá því í maí í fyrra að Lands­prent væri eitt þeirra fyr­ir­tækja sem hefði nýtt sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu, þar sem ríkið greiddi hluta af launum starfs­fólks, fyrir sex starfs­menn eða fleiri.

[adspot]Á meðal hlut­deild­ar­fé­laga Árvakurs er svo Póst­dreif­ing, sem Árvakur á með Torgi útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins, en Póst­dreif­ing sagði upp öllum 304 blað­berum sínum í fyrra­sumar. Hluti þeirra var svo ráðnir aftur með breyttu vinnu­fyr­ir­komu­lagi og starfs­hlut­falli. Hlut­deild Árvakurs í afkomu Póst­dreif­ingar er jákvæð um 15 millj­ónir króna. Árs­reikn­ingi Póst­dreif­ingar hefur verið skilað inn til árs­reikn­inga­skrár en hann er enn sem komið er ekki aðgengi­legur á heima­síðu Skatts­ins.

Árvakur er á meðal stærstu við­skipta­vina bæði Lands­prents og Póst­dreif­ingar. Í fyrra keypti Árvakur þjón­ustu af Lands­prenti fyrir 570,3 millj­ónir króna. Útgáfu­fé­lagið skuldar hins vegar dótt­ur­fé­lagi sínu líka háar upp­hæðir, alls 476,5 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. ÁRvakur keypti þjón­ustu af Póst­dreif­ingu fyrir 550 millj­ónir króna í fyrra og skuld­aði því félagi 53,6 millj­ónir króna í lok árs 2020. Þá juk­ust skuldir Árvakurs við Þórsmörk, félagi utan um eign­ar­haldið á útgáfu­fé­lag­inu, um 12 millj­ónir króna í fyrra. Alls hækk­uðu skuldir Árvakurs við tengda aðila um 120 millj­ónir króna milli ára.

Ákveðin óvissa gæti ríkt um rekstrarhæfi

Í árs­reikn­ingi Árvakurs segir að á árinu 2020 hafi verið „unnið að hag­ræð­ing­ar­að­gerðum í rekstri félags­ins til að mæta þeim rekstr­ar­vanda sem einka­reknir fjöl­miðlar hér á landi búa við og mun verða haldið áfram á þeirri veg­ferð til að ná jafn­vægi í rekstri þess, en hvenær það næst er erfitt að meta með áreið­an­legum hætti. Það er mat stjórn­enda félags­ins að ekki sé vafi á rekstr­ar­hæfi félags­ins eins og staða þess er í dag. En gangi áætl­anir stjórn­enda ekki eftir ríkir ákveðin óvissa um rekstr­ar­hæfi félags­ins til lengri tíma.“

Sá eig­enda­hópur sem tók við Árvakri árið 2009 hefur sam­tals lagt félag­inu til 1,9 millj­arða króna í nýtt hlutafé á rúmum ára­tug, síð­ast 300 millj­ónir króna á árinu 2019. Sam­an­lagt end­an­legt tap félags­ins á sama tíma­bili er yfir 2,5 millj­örðum króna.

Stærsti eig­and­inn er Guðbjörg Matth­í­as­dóttir og börn hennar, í gegnum félögin Hlyn A og Ísfélag Vest­manna­eyja. Sam­an­lagt á sá hópur 25,5 pró­sent hlut. Næst stærsti eig­and­inn eru Íslenskar Sjáv­ar­af­urðir, í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, með 19,4 pró­sent eign­ar­hlut.

Mikið tap árum saman og fallandi rekstur á prenti

End­an­legt tap Árvakurs í fyrra, 75 millj­ónir króna, var það minnsta allt frá árinu 2016, er félagið tap­aði 50 millj­ónum króna. Árið 2017 nam tap­rekst­ur­inn 284 millj­ónum og árið 2018 var útgáfu­fé­lagið rekið með 415 millj­óna króna tapi og 210 millj­óna króna halla árið 2019. Rekstr­ar­tapið hefur þó oft verið mun meira, líkt og rakið er hér að ofan.

Lestur Morg­un­blaðs­ins, sem er stærsti áskrift­ar­mið­ill lands­ins, hefur verið á und­an­haldi und­an­farin ár. Samkvæmt tölum Gallup um lestur dag­blaða á Íslandi lesa nú innan við 20 pró­sent lands­manna Morg­un­blaðið og innan við tíu pró­sent fólks á aldr­inum 18-49 ára.

Á sama tíma og lestur prent­miðla dvínar hefur mbl.is, sem um ára­bil hafði verið mest lesni vef­mið­ill lands­ins nær allar vikur árs­ins sam­kvæmt vef­mæl­ingum Gallup, verið skákað af þeim stalli það sem af er ári. Vísir.is, vef­mið­ill í eigu Sýnar, hefur náð að taka fram úr hvað fjölda not­enda varðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár