Eigandi Morgunblaðsins metinn á 614 milljónir króna

Næst stærsti ein­staki eig­andi útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins myndi tapa þriðj­ungi af fjár­fest­ingu sinni í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu ef hann myndi selja hlut­inn í dag. Fjár­sterkir aðilar hafa greitt með rekstr­inum frá 2009.

Guðbjörg Matthíasdóttir er stærsti eigandi útgáfufélags Morgunblaðsins.
Guðbjörg Matth­í­as­dóttir er stærsti eig­andi útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Virði Þórs­merkur, eig­anda útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, var metið 614 millj­ónir króna í upp­hafi árs. Þetta má lesa út úr árs­reikn­ingi Hlyns A ehf., félags í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, aðal­eig­anda Ísfélags Vest­manna­eyja, og barna hennar og eins stærsta hlut­hafa Þórs­merkur. Hlut­ur­inn í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu er eina eign Hlyns A.

Í reikn­ingnum kemur fram að hlutur Hlyns A, sem er 18,49 pró­sent, sé met­inn á 113,6 millj­ónir króna og að virði hans hafi lækkað um 15 millj­ónir króna í fyrra. Alls hefur Hlynur A sett 168 millj­ónir króna inn í Þórsmörk og því myndi félagið tapa um þriðj­ungi af fjár­fest­ingu sinni ef hlut­ur­inn yrði seldur á bók­færðu verði í dag.

Hlynur A er næst stærsti ein­staki hlut­haf­inn í Þórsmörk á eftir Íslenskum Sjáv­ar­af­urðum, sem er í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og á 19,4 pró­sent hlut. Auk þess á Ísfélag Vest­manna­eyja beint 8,99 pró­sent hlut í Þórsmörk og því eiga Guðbjörg og aðilar tengdir henni sam­tals 25,5 pró­sent hlut.

Eigendur hafa greitt með rekstrinum árum saman

Eina eign Þórs­merkur er Árvakur, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og mbl.is sem einnig rekur útvarps­stöð­ina K100. Frá því að nýir eig­endur tóku við Árvakri árið 2009 er sam­an­dregið tap félags­ins yfir 2,5 millj­örðum krónum. Eig­enda­hóp­ur­inn hefur lagt félag­inu til rúm­­­­lega 1,9 millj­­­­arð króna til að mæta því tapi.

[adspot]Árvakur tap­aði 75 millj­ónum króna í fyrra sam­kvæmt frétt sem birt var í Morg­un­blað­inu í síð­asta mán­uði. Þar var sér­stak­lega tekið fram að tapið væri mun minna en árið 2019, þegar félagið tap­aði 210 millj­ónum króna.

Sá munur var á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla árið 2020 miðað við árið 2019 að í fyrra ákvað Alþingi að veita rekstr­ar­stuðn­ing til þess að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­urs­ins, og studdi við fyr­ir­tæki með ýmsum öðrum hætti.

[links]Rekstr­ar­styrk­ur­inn sem Árvakur fékk nam alls 99,9 millj­ónum króna, en eitt hund­rað millj­óna króna þak var á styrkjum til hvers fjöl­miðla­fyr­ir­tækis. Alþingi sam­þykkti undir lok maí að sam­bæri­legir styrkir yrðu áfram veittir einka­reknum fjöl­miðlum út næsta ár.

Í árs­reikn­ingi Þórs­merkur segir að COVID-19 far­ald­ur­inn hafi leitt til minnk­andi tekna sam­stæð­unnar auk þess sem ýmis kostn­að­ar­auk­andi áhrif voru vegna íþyngj­andi sótt­varna- og umgengn­is­reglna til að minnka smit­hættu. „Stjórn­völd hafa gripið til ýmissa aðgerða til að mæta efna­hags­legum áhrifum af far­aldr­inum og einnig erf­iðu rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla. Sam­stæðan nýtti sér hluta af þeim aðgerðum sem í boði voru.“ Ekki er sér­stak­lega til­tekið hvaða aðgerðir voru nýttar.

Mikið tap árum saman og fallandi rekstur á prenti

Tap Árvakurs í fyrra var það minnsta allt frá árinu 2016, er félagið tap­aði 50 millj­ónum króna. Árið 2017 nam tap­rekst­ur­inn 284 millj­ónum og árið 2018 var útgáfu­fé­lagið rekið með 415 millj­óna króna tapi og 210 millj­óna króna halla árið 2019.

Lestur Morg­un­blaðs­ins, sem er stærsti áskrift­ar­mið­ill lands­ins, hefur verið á und­an­haldi und­an­farin ár. Samkvæmt tölum Gallup um lestur dag­blaða á Íslandi lesa nú innan við 20 pró­sent lands­manna Morg­un­blaðið og innan við tíu pró­sent fólks á aldr­inum 18-49 ára.

Á sama tíma og lestur prent­miðla dvínar hefur mbl.is, sem um ára­bil hafði verið mest lesni vef­mið­ill lands­ins nær allar vikur árs­ins sam­kvæmt vef­mæl­ingum Gallup, verið skákað af þeim stalli það sem af er ári. Vísir.is, vef­mið­ill í eigu Sýnar, hefur náð að taka fram úr hvað fjölda not­enda varðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár