Útgáfufélag Morgunblaðsins tapaði 75 milljónum þrátt fyrir 100 milljóna ríkisstyrk

Tap Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, minnk­aði um 135 millj­ónir á milli ára. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins þakkar veiga­miklum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum fyrir það að rekst­ur­inn hafi batnað þrátt fyrir veiru­far­ald­ur­inn.

Árvakur hf. gefur út Morgunblaðið, mbl.is og útvarpsstöðina K100.
Árvakur hf. gefur út Morg­un­blaðið, mbl.is og útvarps­stöð­ina K100. Mynd: Bára Huld Beck

Tap Árvakurs hf., útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og mbl.is sem einnig rekur útvarps­stöð­ina K100, nam 75 millj­ónum króna í fyrra. Frá þessu var greint í Morg­un­blað­inu í dag og tekið fram að tapið væri mun minna en árið 2019, þegar félagið tap­aði 210 millj­ónum.

Sá munur var á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla árið 2020 miðað við árið 2019 að í fyrra ákvað Alþingi að veita rekstr­ar­stuðn­ing til þess að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­urs­ins.

Styrk­ur­inn sem Árvakur fékk nam alls 99,9 millj­ónum króna, en eitt hund­rað millj­óna króna þak var á styrkjum til hvers fjöl­miðla­fyr­ir­tækis. Alþingi sam­þykkti undir lok maí að sam­bæri­legir styrkir yrðu áfram veittir einka­reknum fjöl­miðlum út næsta ár.

Miklar hagræðingaraðgerðir

Í frétt Morg­un­blaðs­ins um nið­ur­stöðu síð­asta rekstr­ar­árs er haft eftir Haraldi Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóra Árvakurs og öðrum rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, að veru­legur sam­dráttur hafi verið á aug­lýs­inga­mark­aðnum í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

[adspot]

Hann segir að ástæða þess að rekst­ur­inn hafi engu að síður haldið áfram að batna á milli ára hjá Árvakri sé sú að á síð­ustu árum hafi verið gripið til „mjög veiga­mik­illa hag­ræð­ing­arað­gerða sem skiptu sköp­um þegar höggið vegna kór­ónu­veirunn­ar skall á“ en ekk­ert er minnst á þátt hund­rað milljón króna rík­is­styrks í rekstr­ar­bata útgáfu­fé­lags­ins.

Samstæða Þórs­merkur ehf., sem er aðal­eig­andi Árvakurs, var rekin með 62 millj­óna króna tapi í fyrra, sem er nokkur rekstr­ar­bati frá 2019 þegar tap sam­stæð­unnar nam 210 millj­ónum króna.

Hátt í 2,6 milljarða tap frá því að nýir eigendur tóku við

Haft er eftir Haraldi í Morg­un­blað­inu í dag að jákvætt sé að sjá að þró­unin hafi verið í rétta átt. Tap Árvakurs í fyrra var það minnsta allt frá árinu 2016, er félagið tap­aði 50 millj­ónum króna. Árið 2017 nam tap­rekst­ur­inn 284 millj­ónum og árið 2018 var útgáfu­fé­lagið rekið með 415 millj­óna króna tapi og 210 millj­óna króna halla árið 2019, sem áður segir.

Sam­an­dregið tap Árvakurs frá því að nýir eig­endur komu að rekstri útgáfu­fé­lags­ins árið 2009 nemur yfir 2,5 millj­örðum krónum og hafa hlut­hafar félags­ins ítrekað þurft að leggja útgáf­unni til fé.

Haraldur segir að það sé „ánægju­legt“ að í gegn­um þreng­ing­ar í rekstri hafi „tek­ist að halda fjöl­miðlum Árvak­urs öfl­ug­um og í raun ein­stök­um á ís­lensk­an mæli­kv­arða“ og segir hann að ekk­ert annað fjöl­miðla­fyr­ir­tæki bjóði upp á við­líka gæði og breidd í efn­is­fram­boði og Árvakur.

„Það sýn­ir styrk Árvak­urs að hafa þrátt fyr­ir erf­ið­leika síð­ustu miss­era og ára ekki aðeins getað haldið í horf­inu held­ur einnig haldið áfram að byggja upp nýja miðla og aukið efn­is­fram­boð, bæði fyr­ir áskrif­end­ur og aðra not­end­ur miðl­anna,“ er haft eftir Haraldi.

Dvínandi lestur og hörð samkeppni á netinu

Lestur Morg­un­blaðs­ins, sem er stærsti áskrift­ar­mið­ill lands­ins, hefur verið á und­an­haldi und­an­farin ár.

Samkvæmt tölum Gallup um lestur dag­blaða á Íslandi lesa nú innan við 20 pró­sent lands­manna Morg­un­blaðið og innan við tíu pró­sent fólks á aldr­inum 18-49 ára.

Á sama tíma og lestur prent­miðla dvínar hefur mbl.is, sem um ára­bil hafði verið mest lesni vef­mið­ill lands­ins nær allar vikur árs­ins sam­kvæmt vef­mæl­ingum Gallup, verið skákað af þeim stalli það sem af er ári. Vísir.is, vef­mið­ill í eigu Sýnar, hefur náð að taka fram úr hvað fjölda not­enda varðar.

Af þeim 24 vikum sem liðnar eru af árinu og vef­mæl­ingar Gallup hafa tekið báða miðl­ana með (mbl.is var ekki með í einni mæl­ingu) hefur Vísir verið með fleiri með­al­not­endur en mbl.is í 16 vikur, en mbl.is verið með yfir­hönd­ina í 8 vikur.

Þó skal tekið fram að mjótt er á munum og lestur beggja miðla er í hæstu hæðum og ná þeir á hverjum með­al­d­egi til um eða yfir 200 þús­und not­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár