Lestur Fréttablaðsins á leið undir 30 prósent og verðhækkanir á prentun blaða framundan

Frá byrjun árs 2018 hefur lestur Frétta­blaðs­ins auk­ist á milli mán­aða í fimm skipti en dalað 39 sinnum. Útgáfu­fé­lag blaðs­ins tap­aði um 800 millj­ónum króna á árunum 2019 og 2020.

Lestur Frétta­blaðs­ins hélt áfram að dala í síð­asta mán­uði, líkt og hann hefur gert hratt síð­ustu ár. Frá októ­ber 2002 og fram í des­em­ber 2015 mæld­ist lestur Frétta­blaðs­ins alltaf yfir 50 pró­sent. Í apríl 2007 mæld­ist hann til að mynda 65,2 pró­sent.

Í ágúst 2018 fór lestur blaðs­ins, sem er frídreift í 80 þús­und ein­tökum á öll heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Akur­eyri fimm daga vik­unn­ar, niður fyrir 40 pró­sent í fyrsta sinn síðan árið 2001. Hann mælist nú 30,7 pró­sent og miðað við þá þróun sem átt hefur sér stað á þessu ári, þar sem lest­ur­inn hefur dreg­ist saman um 3,1 pró­sentu­stig, þá er senni­legt að lestur blaðs­ins fari undir 30 pró­sent fyrir lok árs 2021. Frá byrjun árs 2018 hefur lestur Frétta­blaðs­ins auk­ist á milli mán­aða í fimm skipti en dalað 39 sinnum.

Í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­ur­inn nú 21,5 pró­sent og hefur dreg­ist saman um tæp 22 pró­sent frá byrjun árs í fyrra. Lestur Frétta­blaðs­ins hjá ald­urs­hópnum er nú um þriðj­ungur þess sem hann var fyrir tólf árum.

Þetta mál lesa út úr nýbirtum tölum Gallup um lestur dag­blaða á Íslandi.

Vert er að taka fram að útgáfu­dögum Frétta­blaðs­ins var fækkað úr sex í fimm á viku í fyrra þegar mánu­dags­út­gáfu þess var hætt. Útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins, Torg ehf., hefur ekki skilað árs­reikn­ingi vegna síð­asta árs en félagið tap­aði 212 millj­ónum króna árið 2019, eftir að búið var að reikna með 50 millj­­­óna króna styrk út rík­­­is­­­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla. Þeir styrkir voru aldrei greiddir út, enda frum­varp um þá ekki sam­­­þykkt. Hins vegar voru greiddar út sér­­­stakir neyð­­­ar­­­styrkir vegna kór­ón­u­veiru­far­ald­­­ur­s­ins sem á end­­­anum skil­uðu Torgi 64 millj­­­ónum króna. Í Frétta­blað­inu í gær var greint frá því að tap Torgs á árinu 2020 hafi verið nálægt 600 millj­ónum króna. Því hefur félagið tapað um 800 millj­ónum króna á tveimur árum.

Torg, sem rekur líka DV, Hring­braut og tengda miðla, fékk úthlutað rúm­lega 81 milljón króna styrk úr rík­is­sjóði í síð­asta mán­uði þegar rekstr­ar­styrkjum til einka­rek­inna fjöl­miðla var úthlut­að.

Hrun í lestri og rekstri

Morg­un­blaðið, stærsta áskrift­ar­blað lands­ins, mælist nú með 18,6 pró­sent lestur hjá öllum lands­mönnum í Prent­miðla­könnun Gallup og hefur aldrei verið minni. Lest­ur­inn hefur dreg­ist saman um rúm­lega fimmt­ung frá byrjun árs 2020 og um 56 pró­sent frá því að nýir eig­endur tóku við útgáfu blaðs­ins snemma árs 2009.

[adspot]Hjá full­orðnum les­endum undir fimm­tugu er lest­ur­inn kom­inn niður í 8,2 pró­sent en hann var 13,1 pró­sent í byrjun árs í fyrra og hefur því dreg­ist saman hjá yngri les­endum um 37 pró­sent á 20 mán­uðum. Lestur 18 til 49 ára á Morg­un­blað­inu er nú fjórð­ungur þess sem hann var fyrir tólf árum.

Þessi þró­un, hríð­minnk­andi lest­ur, hefur átt sér stað þrátt fyrir að Morg­un­blaðið hafi síð­ast­liðin ár verið frí­blað á fimmtu­dög­um, en blaðið kemur út sex sinnum í viku. Í því felst að blað er í aldreif­ingu þá daga og fer inn á heim­ili tug­þús­unda sem eru ekki áskrif­end­ur.

Rekstr­ar­tap útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, Árvakurs, var 210,3 millj­ónir króna í fyrra, Það var aðeins minna rekstr­ar­tap en árið áður þegar útgáfu­fé­lagið tap­aði 245,3 millj­ónum króna. Sam­an­lagt end­an­legt tap félags­ins frá 2009 er yfir 2,5 millj­örðum króna.

Rekstr­ar­styrk­ur­inn sem Árvakur fékk úr rík­is­sjóði í fyrra nam alls 99,9 millj­ónum króna. Því má ætla að rekstr­ar­tapið hafi verið yfir 300 millj­ónir króna ef ekki hefði verið fyrir rekstr­ar­styrk­inn.

Árvakur fékk svo úthlutað rúm­lega 81 milljón króna styrk úr rík­is­sjóði í sept­em­ber þegar rekstr­ar­styrkjum til einka­rek­inna fjöl­miðla var úthlut­að á ný.

Stundin komin aftur í mælingar

Stundin kom aftur inn í mæl­ingar Gallup í sept­em­ber síð­ast­liðnum eftir nokkuð langa fjar­veru og mæld­ist með alls 8,3 pró­sent heild­ar­lestur. Síðast þegar lestur á prentút­gáfu Stund­ar­innar var mældur, í des­em­ber 2019, reynd­ist hann 10,4 pró­sent. Blaðið er eini prent­mið­ill­inn í mæl­ingu sem er útgef­inn sjaldnar en viku­lega.

Stundin kemur út í prentút­gáfu á tveggja til fjög­urra vikna fresti. Útgáfu­tíðnin er breyti­leg eftir árs­tíma. Þannig liðu tvær vikur á milli þeirra blaða Stund­ar­innar sem komið hafa út í sept­em­ber og októ­ber en fjórar vikur milli blaðs­ins sem kom út 23. apríl og þess sem kom út 21. maí. Sömu sögu er að segja á milli þess síð­ar­nefnda og blaðs­ins sem kom út 18. júní. Það sem af er árinu 2021 hafa komið út 14 ein­tök af prentút­gáfu Stund­ar­innar.

Lestur Stund­ar­innar hjá lands­mönnum í ald­urs­hópnum 18-49 ára er 7,1 pró­sent en hann var 9,6 pró­sent í des­em­ber 2019, þegar lest­ur­inn var síð­ast mældur.

[adspot]Útgáfu­fé­lagið Stund­in hagn­að­ist um 7,2 millj­ónir króna í fyrra. Það er umtals­verður við­snún­ingur á rekstri þess milli ára en félagið tap­aði 12,9 millj­ónum króna árið 2019. Tekjur Stund­ar­innar juk­ust um 38,8 millj­ónir króna á milli ára og voru í heild 224,7 millj­ónir króna.

Stundin fékk 17,8 millj­ónir króna í sér­stakan rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði vegna COVID-19 sem greiddur var til einka­rek­inna fjöl­miðla á síð­asta ári. Án hans hefði tap félags­ins numið 10,6 millj­ónum króna.

Þegar styrkjum var úthlutað á ný í síð­asta mán­uði fékk Stundin 25,3 millj­ónir króna.

Mikið tap Viðskiptablaðsins

Gallup mælir líka lestur Við­skipta­blaðs­ins, sem kemur út alla fimmtu­daga og er selt í áskrift. Alls lásu 5,3 pró­sent aðspurðra það blað í síð­asta mán­uði og 6,2 pró­sent allra full­orð­inna undir fimm­tugu. Heild­ar­lest­ur­inn hefur dreg­ist saman um þriðj­ung frá byrjun síð­asta árs þrátt fyrir að lestur hjá les­endum undir fimm­tugu sé nán­ast sá sami.

Afkoma útgáfu­fé­lags Við­skipta­blaðs­ins, Fiski­frétta og tengdra miðla, Myllu­setur ehf., í fyrra var nei­kvæð um 55,2 millj­ónir króna að tekju til­liti til fjár­magnsliða og vaxta­gjalda. Árið á und­an, 2019, var afkoma Myllu­set­urs 1,6 millj­ónir króna. Uppgefið tap var hins vegar 35,6 millj­ónir króna.

Senni­leg­ast er að mun­ur­inn á upp­gefnu tapi og afkomu skýrist á því að Myllu­setur fékk um 20 millj­ónir króna í rekstr­ar­stuðn­ing úr rík­is­sjóði á síð­asta ári.

Þegar úthlut­un­ar­nefnd um úthlutun rekstr­ar­stuðn­ings til einka­rek­inna fjöl­miðla til­kynnti um nið­ur­stöðu sína vegna styrja sem greiddir voru út 2021 í síð­asta mán­uði kom fram að Myllu­setur fengi 26,8 millj­ónir króna í sinn hlut.

Árvakur skuldar Landsprenti tæplega hálfan milljarð

Stundin greindi frá því í lok síð­asta mán­aðar að 40 pró­sent verð­hækkun eða meiri væri yfir­vof­andi á dag­blaða­pappír og vitn­aði þar í til­kynn­ingu sem Lands­prent, prent­smiðju í eigu Árvakurs, hafði sent við­skipta­vinum sínum en Lands­prent prentar meðal ann­ars Stundina. Auk þess kom fram að prentun yrði skömmtuð vegna papp­írs­skorts sem á rætur sínar að rekja til afanga­skorts vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Ljóst má vera að þessi við­bót­ar­kostn­aður mun leggj­ast hart á þá prent­miðla sem prenta stór upp­lög af blöðum í viku hverri, þ.e. útgáfu­fé­lög Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins.

Samkvæmt árs­reikn­ingum Lands­prents, sem hagn­að­ist sam­tals um 305,1 millj­ónir króna á árunum 2019 og 2020, voru kröfur á tengd félög 497,4 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Þorri þeirrar upp­hæðar var skuld Árvakurs við dótt­ur­fé­lag sitt vegna prent­kostn­aðar sem ekki hafði verið greiddur, eða 477 millj­ónir króna. Kröfur Lands­prents á tengda aðila hækk­uðu um 293,4 millj­ónir króna frá byrjun árs 2019 og fram að síð­ustu ára­mótum eða sem nemur 96 pró­sent af hagn­aði fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjarninn er á meðal þeirra fjöl­miðla sem þiggja rekstr­ar­styrki úr rík­is­sjóði og fékk 14,4 millj­ónir króna við síð­ustu úthlutun. Þau fyr­ir­tæki sem hér eru til umfjöll­unar eru sam­keppn­is­að­ilar Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár