Útgáfufélag Viðskiptablaðsins tapaði tugum milljóna króna í fyrra

Eigið fé Myllu­set­urs, sem gefur meðal ann­ars út Við­skipta­blaðið, helm­ing­að­ist í fyrra. Útgáfu­fé­lagið setti 15 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina og fékk 20 millj­ónir króna í rík­is­stuðn­ing vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Útgáfu­fé­lag Við­skipta­blaðs­ins, Fiski­frétta og tengdra miðla, Myllu­setur ehf., tap­aði 35,6 millj­ónum króna á árinu 2020. Rekstr­ar­tekjur félags­ins dróg­ust saman 14 millj­ónir króna milli ára en gjöld hækk­uðu lít­il­lega og voru 274 millj­ónir króna. Afkoma árs­ins 2020 var nei­kvæð um 55,2 millj­ónir króna að tekju til­liti til fjár­magnsliða og vaxta­gjalda. Árið á undan, 2019, var afkoma Myllu­set­urs 1,6 millj­ónir króna. Senni­leg­ast er að mun­ur­inn á upp­gefnu tapi og afkomu skýrist á því að Myllu­setur fékk um 20 millj­ónir króna í rekstr­ar­stuðn­ing úr rík­is­sjóði á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í óend­ur­skoðum árs­reikn­ingi Myllu­set­urs vegna árs­ins 2020 sem skilað var inn til árs­reikn­inga­skrár í síð­ustu viku en birtur í gær. Þar segir enn fremur að eignir félags­ins hafi dreg­ist saman um 50 millj­ónir króna milli ára og verið tæp­lega 157 millj­ónir króna í lok síð­asta árs. Var­an­legir rekstr­ar­fjár­munir til að mynda saman um 24,5 millj­ónir króna. Skuld­irnar lækk­uðu um tæpar fimm millj­ónir króna en voru 141,5 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót.

Eigendur Myllu­set­urs eru tveir, félagið PÁJ Invest í eigu Péturs Árna Jóns­sonar sem á 67 pró­sent hlut, og SBJ Invest í eigu Sveins Biering Jónsonar sem á 33 pró­sent hlut. Félagið hafði skilað smá­vægi­legum hagn­aði, undir tveimur millj­ónum króna, á árunum 2018 og 2019.

Nýttu hlutabótaleið

Launa­greiðslur Myllu­set­urs dróg­ust saman um 20 millj­ónir króna milli ára þrátt fyrir að með­al­fjöldi starfs­manna hafi verið 18, líkt og árið áður. Þar getur skipt máli að Myllu­setur setti alls 15 manns á hluta­bóta­leið­ina í fyrra sem fól í sér að rík­is­sjóður greiddi hluta launa þeirra á tíma­bili.

[adspot]Þá fékk Myllu­setur 20 millj­ónir í rekstr­ar­stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á síð­asta ári til að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Að teknu til­liti til stuðn­ings þá var eigið fé Myllu­set­urs 35 millj­ónir króna í lok síð­asta árs, en það var rúm­lega 70 millj­ónir króna árið áður.

[links]Þegar úthlut­un­ar­nefnd um úthlutun rekstr­ar­stuðn­ings til einka­rek­inna fjöl­miðla til­kynnti um nið­ur­stöðu sína vegna styrja sem greiddir voru út 2021 í síð­asta mán­uði kom fram að Myllu­setur fengi 26,8 millj­ónir króna í sinn hlut.

Við­skipta­blaðið kemur út á fimmtu­dögum og er selt í áskrift. Alls lesa 6,1 pró­sent lands­manna það blað og hjá ald­urs­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­ur­inn 6,2 pró­sent.

Lest­ur­inn hefur tekið ágætis kipp upp á við síð­ustu mán­uði en í mars 2021 fór heild­ar­lestur niður í 4,3 pró­sent og lest­ur­inn hjá full­orðnum undir fimm­tugu niður í 2,9 pró­sent. Það var í fyrsta sinn sem lestur Við­skipta­blaðs­ins fór undir þrjú pró­sent hjá full­orðnum les­endum undir fimm­tug­u.

Auk blaða­út­gáfu heldur Myllu­setur úti frétta­vef­unum vb.is og fiski­frettir.is auk þess sem útgáfu­fé­lagið stendur að útgáfu Íslenska sjó­manna­alm­an­aks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár