Enn heldur flóttinn úr verðtryggingunni og frá lífeyrissjóðunum áfram

Við­skipta­vinir líf­eyr­is­sjóða hafa greitt upp 15,7 millj­arða króna af verð­tryggðum hús­næð­is­lánum hjá sjóð­unum á fjórum mán­uðum. Lang­flestir eru að færa sig í við­skipti til banka og taka óverð­tryggð lán.

Íslenskum húsnæðislántakendum virðist reiknast til að verðtryggð lán hjá lífeyrissjóðum séu ekki það sem borgi sig í dag. Þeir hafa að uppistöðu rétt fyrir sér.
Íslenskum hús­næð­is­lán­tak­endum virð­ist reikn­ast til að verð­tryggð lán hjá líf­eyr­is­sjóðum séu ekki það sem borgi sig í dag. Þeir hafa að uppi­stöðu rétt fyrir sér. Mynd: Pexels

Sjóðs­fé­lagar líf­eyr­is­­sjóða hafa greitt upp lán hjá þeim fyrir um 13,7 millj­arða króna á fjórum mán­uðum. Þróunin byrj­aði hægt í júní­mán­uði, þegar upp­greiðslur námu rúm­lega 400 millj­ónum krónum umfram nýja lán­töku. Mest var greitt upp í júlí þegar upp­­greiðslur líf­eyr­is­­sjóðs­lána 5,1 millj­­arði króna umfram ný lán. Í ágúst var sú upp­­hæð tæp­­lega 4,9 millj­­arðar króna og í sept­em­ber greiddu sjóðs­fé­lag­arnir upp 3,3 millj­arða króna umfram þau nýju lán sem þeir tóku.

[links]Langstærstur hluti þeirra lána sem greidd hafa verið upp á ofan­greindu tíma­bili eru verð­tryggð lán. Alls hafa sjóðs­fé­lagar í líf­eyr­is­sjóðum greitt upp 15,7 millj­arða króna af slíkum lánum umfram þau nýju lán sem hafa verið tekin.

Þetta má lesa út úr tölum um útlán líf­eyr­is­sjóða sem Seðla­banki Íslands birti í gær.

Fjórða mán­uð­inn í röð námu upp­greiðslur líf­eyr­is­sjóðs­lána hærri fjár­hæð en nýjar lán­tökur. Það er merki­legt í ljósi þess að frá þeim tíma sem Seðla­banki Íslands fór að halda utan um þessar tölur, í byrjun árs 2009, hafði það aldrei gerst áður.

Tvær megin ástæður

Frá því að líf­eyr­is­sjóð­irnir komu aftur inn á hús­næð­is­lána­markað af krafti haustið 2015 hefur umfang verð­tryggðra hús­næð­is­mála í eigu þeirra aldrei dreg­ist jafn mikið saman í einum mán­uði og í sept­em­ber, eða um rúm­lega 5,8 millj­arða króna.

Þrátt fyrir að sjóð­irnir hafi lánað út 2,5 millj­arða króna umfram upp­greiðslur af óverð­tryggðum lánum í sept­em­ber þá er ljóst að flótti við­skipta­vina frá líf­eyr­is­sjóðum og yfir til bank­anna er fjarri lokið. Líkt og áður sagði hafa upp­greiðslur á lánum hjá þeim verið 13,7 millj­örðum krónum meiri en ný tekin hús­næð­is­lán frá því í byrjun júní.

[adspot]Ástæða þessa eru tvær. Í fyrsta lagi hafa stýri­vaxta­lækk­anir Seðla­banka Íslands (bank­inn lækk­aði vexti niður í eitt pró­sent í vor) leitt til þess að óverð­tryggðir hús­næð­is­lána­vextir þriggja stærstu bank­anna hafa hríð­lækk­að. Breyti­legir óverð­­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum Lands­­bank­ans og Íslands­banka eru nú til að mynda 3,5 pró­­sent. Á sam­­­bæri­­­legum lánum hjá Arion banka eru vext­irnir 3,54 pró­­­sent. Í upp­­hafi árs í fyrra voru breyt­i­­legir óverð­­tryggðir vextir bank­anna á bil­inu sex til 6,6 pró­­sent. Þrátt fyrir að Íslands­banki hafi hækkað ýmsa vexti sína nýverið þá hreyfði bank­inn ekki við þessum lána­flokki.

Gildi, þriðji stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, brást við þess­ari stöðu seint í síð­asta mán­uði og lækk­aði vexti sjóðs­fé­lags­lána frá með 5. nóv­em­ber, sem var í gær. Mesta breyt­ingin var á breyti­legum vöxtum óverð­tryggðra lána sem voru lækk­aðir um 40 punkta, niður í 3,65 pró­sent.

Í öðru lagi hefur verð­bólga farið vax­andi og mælist nú 3,6 pró­sent. Íslenskir lán­tak­endur hafa sýnt það á síð­ustu árum að þeir hafi margir hverjir lært sína lexíu af banka­hrun­inu og er fljótir að skipta yfir í óverð­tryggð lán þegar verð­bólgan fer yfir mark­mið Seðla­bank­ans, sem er 2,5 pró­sent.

Gjörbreytt staða hjá bönkunum

Þessi þróun hefur líka gjör­breytt útlána­stöð­unni hjá stærstu bönk­unum þremur. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 veittu bank­arnir 225,8 millj­arða króna í ný óverð­tryggð útlán á meðan að umfang verð­tryggðra lána dróst saman um 11,3 millj­arða króna. Þetta er umtals­verður við­snún­ingur frá síð­asta ári þegar heim­ilin tóku alls ný verð­tryggð lán hjá bönkum fyrir 41,6 millj­arða króna og ný óverð­tryggð útlán fyrir 86,6 millj­arðar króna. Hlut­fall óverð­tryggðra nýrra útlána hjá bönkum lands­ins fór því úr að vera 67,5 pró­sent í að vera 105 pró­sent.

Á öllu árinu 2019 voru 83 pró­sent allra nýrra óverð­tryggðra hús­næð­is­lána hjá bönkum tekin á breyti­legum vöxt­um. Það þýðir að vext­irnir geta hækkað eða lækkað í takti við stýri­vaxta­á­kvarð­anir Seðla­banka Íslands. frá byrjun árs 2020 og út sept­em­ber síð­ast­lið­ins veittu bank­arnir hins vegar 231 millj­arð króna í ný hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum á meðan að taka á lánum með föstum vöxtum til þriggja eða fimm ára, sem verja lán­tak­endur fyrir sveiflum en geta svipt þá ábata af lágu vaxt­ar­stigi til lengri tíma, dróg­ust sam­an.

Boð­aði dauða verð­trygg­ing­ar­innar

Það vakti mikla athygli í sumar þegar Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri sagði í við­tali við Frétta­blaðið að verð­trygg­ingin væri að deyja út. Orð­rétt sagði hann: „„Verð­trygg­ingin var upp­haf­lega sett á vegna þess að við réðum ekki við verð­bólg­una. Núna eru tím­arnir breytt­ir. Í fyrsta sinn er það raun­veru­legur val­kostur fyrir heim­ilin að skipta yfir í nafn­vexti og þannig afnema verð­trygg­ing­una að eigin frum­kvæði af sínum lán­um. Þetta eru mikil tíma­mót og fela í sér að verð­trygg­ingin mun deyja út.“

Það ber­ast þó mis­vísandi skila­boð úr Seðla­bank­anum um hversu góð staða þetta sé.

Rann­veig Sig­­­­urð­­­­ar­dótt­ir, vara­­­­seðla­­­­banka­­­­stjóri pen­inga­­­­mála í Seðla­­­­banka Íslands, lýsti til að mynda yfir áhyggjum af þess­­­ari þróun á blaða­­­­manna­fundi sem hald­inn var í lok ágúst. „Það sem maður hefur áhyggjur af, bæði út frá pen­inga­­­­stefn­unni og fjár­­­­­­­mála­­­­stöð­ug­­­­leika, er að heim­ilin séu að skuld­­­­setja sig of mikið á breyt­i­­­­legum vöxt­­­­um. Von­andi verðum við ekki með svona lága vexti til fram­­­­tíð­­­­ar. Það er kannski það sem maður hefur mestar áhyggjur af í dag varð­andi mið­l­un­ina til heim­ila.“

Í nýjasta Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans segir að aukn­ing óverð­tryggðra lána með breyti­legum vöxtum geri heim­ilin næm­ari fyrir vaxta­hækk­unum þar sem hækkun vaxta eyk­ur­ greiðslu­byrði þeirra meira en flestra ann­arra láns­forma sem í boði eru. „Betri dreif­ing skulda heim­ila milli ólíkra vaxta­við­miða, verð­tryggðra og óverð­tryggðra, fastra og fljót­andi, dregur úr áhættu vegna skuld­setn­ingar heim­il­anna í heild sinn­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðislán

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár