Heimili landsins yfirgefa verðtrygginguna í fordæmalausri útlánaveislu

Lán­tak­endur eru að færa sig á met­hraða frá líf­eyr­is­sjóðum til banka með hús­næð­is­lánin sín og úr verð­tryggðum lánum yfir í óverð­tryggð. Ef fram fer sem horfir munu ný útlán banka á þessu ári verða meiri en þau voru sam­an­lagt síð­ustu tvö ár á undan.

Útlánaveisla hefur gert það að verkum að mikil virkni er á húsnæðismarkaði þrátt fyrir að heimsfaraldur gangi yfir og að atvinnuleysi sé í hæstu hæðum.
Útlána­veisla hefur gert það að verkum að mikil virkni er á hús­næð­is­mark­aði þrátt fyrir að heims­far­aldur gangi yfir og að atvinnu­leysi sé í hæstu hæðum. Mynd: Pexels

Ný útlán banka til heim­ila lands­ins, að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum, þar sem tekin eru veð í íbúð námu 214,5 millj­örðum króna. Það er er 127 pró­sent aukn­ing á slíkum hús­næð­is­lánum frá sama tíma­bili í fyrra. Um er að ræða lán sem veitt eru af uppi­stöðu af þremur bönkum: Lands­bank­anum, Íslands­banka og Arion banka.

Ef fram fer sem horfir munu ný hús­næðis­út­lán bank­anna verða meiri í ár en þau voru sam­an­lagt árinu 2018 og 2019.

Aukn­ingin á þessu ári nær öll átt sér stað á síð­ustu fimm mán­uðum, eða frá byrjun maí­mán­aðar. Í þeim mán­uði lækk­aði Seðla­banki Íslands stýri­vexti sína niður í eitt pró­sent og vaxta­kjör bank­anna tóku stakka­skiptum í kjöl­farið.

Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands.

Heimilin flýja verðtrygginguna

Heimili lands­ins hafa nýtt þessa stöðu til að yfir­gefa verð­trygg­ing­una. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 veittu bank­arnir 225,8 millj­arða króna í ný óverð­tryggð útlán á meðan að umfang verð­tryggðra lána dróst saman um 11,3 millj­arða króna. Þetta er umtals­verður við­snún­ingur frá síð­asta ári þegar heim­ilin tóku alls ný verð­tryggð lán hjá bönkum fyrir 41,6 millj­arða króna og ný óverð­tryggð útlán fyrir 86,6 millj­arðar króna. Hlutfall óverð­tryggðra nýrra útlána hjá bönkum lands­ins fór því úr að vera 67,5 pró­sent í að vera 105 pró­sent.

[adspot]Á öllu árinu 2019 voru 83 pró­sent allra nýrra óverð­tryggðra hús­næð­is­lána hjá bönkum tekin á breyti­legum vöxtum. Það þýðir að vext­irnir geta hækkað eða lækkað í takti við stýri­vaxta­á­kvarð­anir Seðla­banka Íslands. frá byrjun árs 2020 og út sept­em­ber síð­ast­lið­ins veittu bank­arnir hins vegar 231 millj­arð króna í ný hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum á meðan að taka á lánum með föstum vöxtum til þriggja eða fimm ára, sem verja lán­tak­endur fyrir sveiflum en geta svipt þá ábata af lágu vaxt­ar­stigi til lengri tíma, dróg­ust saman.

Hríðlækkandi óverðtryggðir vextir

Stýri­vaxta­lækk­anir Seðla­bank­ans hafa leitt til þess að óverð­tryggðir hús­næð­is­lána­vextir þriggja stærstu bank­anna hafa hríð­lækkað. Breyti­legir óverð­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum Lands­bank­ans og Íslands­banka eru nú til að mynda 3,5 pró­sent. Á sam­­bæri­­legum lánum hjá Arion banka eru vext­irnir 3,54 pró­­sent. Í upp­hafi árs í fyrra voru breyti­legir óverð­tryggðir vextir bank­anna á bil­inu sex til 6,6 pró­sent.

Sam­hliða hefur verð­bólga hækkað nokkuð skarpt, með til­heyr­andi áhrifum á verð­tryggð lán. Í lok apríl var hún 2,2 pró­sent og undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans. Nú er hún 3,5 pró­sent og einu pró­sentu­stigi yfir því.

Þessi þróun hefur leitt til þess að heim­ili lands­ins hafa kosið með fót­unum og fært sig yfir í óverð­tryggð lán af miklum krafti.

Lífeyrissjóðirnir missa leiðandi stöðu

Heimilin hafa ekki bara verið að flýja verð­trygg­ing­una, heldur hafa þau líka fært sig í bíl­förmum úr við­skiptum hjá líf­eyr­is­sjóðum, sem árum saman buðu upp á bestu kjörin á hús­næð­is­lána­mark­aði, og yfir til bank­anna. Þeir hafa ekki fylgt með í þeirri lækk­un­ar­hr­inu sem orðið hefur á þessu ári og stærstu sjóð­irnir hafa frekar mark­visst verið að reyna að draga úr eft­ir­spurn eftir hús­næð­is­lánum hjá sér á und­an­förnum árum.

Sjóðs­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða hafa greitt upp lán hjá þeim fyrir tíu millj­arða króna umfram það sem sjóð­irnir lán­uðu út á tveimur mán­uð­um. Í júlí námu upp­greiðslur líf­eyr­is­sjóðs­lána 5,1 millj­arði króna umfram ný lán og í ágúst var sú upp­hæð tæp­lega 4,9 millj­arðar króna.

Flótt­inn er mestur úr verð­tryggðum lánum sjóð­anna. Alls voru greidd upp 3,8 millj­arðar króna af slíkum umfram ný útlán í júlí og tæp­lega fimm millj­arðar króna í ágúst. Heild­ar­fjöldi útlána líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga hefur dreg­ist saman um 2.225 tals­ins frá því í lok maí, þegar hann náði hámarki í 41.276 útlán­um.

Síð­ustu tveir mán­uð­irnir sem töl­urnar ná yfir, júlí og ágúst 2020, eru einu mán­uð­irnir síðan í byrjun árs 2009 þar sem upp­greiðslur líf­eyr­is­sjóðs­lána eru meiri en nýjar lán­tök­ur. Sam­an­tektir Seðla­banka Íslands ná ekki lengur aftur en til þess tíma, þ.e. jan­úar 2009.

Boðaði dauða verðtryggingarinnar

Það vakti mikla athygli í sumar þegar Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sagði í við­tali við Frétta­blaðið að verð­trygg­ingin væri að deyja út. Orðrétt sagði hann: „Verð­trygg­ingin var upp­haf­lega sett á vegna þess að við réðum ekki við verð­bólg­una. Núna eru tím­arnir breyttir. Í fyrsta sinn er það raun­veru­legur val­kostur fyrir heim­ilin að skipta yfir í nafn­vexti og þannig afnema verð­trygg­ing­una að eigin frum­kvæði af sínum lánum. Þetta eru mikil tíma­mót og fela í sér að verð­trygg­ingin mun deyja út.“

Það ber­ast þó mis­vísandi skila­boð úr Seðla­bank­anum um hversu góð staða þetta sé.

Rann­veig Sig­­­urð­­­ar­dótt­ir, vara­­­seðla­­­banka­­­stjóri pen­inga­­­mála í Seðla­­­banka Íslands, lýsti til að mynda yfir áhyggjum af þess­­ari þróun á blaða­­­manna­fundi sem hald­inn var í lok ágúst. „Það sem maður hefur áhyggjur af, bæði út frá pen­inga­­­stefn­unni og fjár­­­­­mála­­­stöð­ug­­­leika, er að heim­ilin séu að skuld­­­setja sig of mikið á breyt­i­­­legum vöxt­­­um. Von­andi verðum við ekki með svona lága vexti til fram­­­tíð­­­ar. Það er kannski það sem maður hefur mestar áhyggjur af í dag varð­andi mið­l­un­ina til heim­ila.“

Í nýjasta Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans segir að aukn­ing óverð­tryggðra lána með breyti­legum vöxtum geri heim­ilin næm­ari fyrir vaxta­hækk­unum þar sem hækkun vaxta eykur greiðslu­byrði þeirra meira en flestra ann­arra láns­forma sem í boði eru. „Betri dreif­ing skulda heim­ila milli ólíkra vaxta­við­miða, verð­tryggðra og óverð­tryggðra, fastra og fljót­andi, dregur úr áhættu vegna skuld­setn­ingar heim­il­anna í heild sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðislán

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár