Jón Trausti: Tilraun til að vega að mennsku blaðamanns og trúverðugleika

Rit­stjóri Stund­ar­innar segir að það sé munur á því að hafa skoðun eða vera bein­línis í duldum hags­muna­á­rekstri.

Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar.
Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjóri Stund­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Það að kalla blaða­mann „óvin vinn­andi stétta“, að segja að honum hafi verið „sigað á [okkur] af hús­bónda sínum“ og lýsa honum sem „holum manni“, vegna harðra skoð­ana­skrifa hans um samn­ings­kröfur stétt­ar­fé­laga, er til­raun til að vega að mennsku hans og trú­verð­ug­leika. Þetta segir Jón Trausti Reyn­is­son rit­stjóri Stund­ar­innar í stöðu­upp­færslu á facebook-síðu sinni í dag.

[links]Tilefni skrifa Jóns Trausta er pist­ill Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur for­manns Eflingar sem hún birti á facebook-síðu sinni í gær­kvöldi. Þar sagð­ist hún finna sig knúna til að bregð­ast við leið­ara Frétta­blaðs­ins, „Stærsta ógnin“, sem birt­ist á föstu­dag­inn var. Hörður Ægisson, rit­stjóri Mark­að­ar­ins við­skipta­blaðs Frétta­blaðs­ins, gagn­rýnir í leið­ar­anum kröfur Starfs­greina­sam­bands Ísland og VR í kom­andi kjara­við­ræðum.

Jón Trausti segir stétt­ar­fé­lögin hafa góðan mál­stað eftir stór­tækar launa­hækk­anir ráða­manna og for­stjóra, stöðugar hús­næð­is­verð­hækk­anir, minnk­andi bóta­greiðslur og vegna ömur­legrar stöðu lág­tekju­fólks og þeirrar stað­reyndar að Íslend­ingar vinna að með­al­tali mun meira en helstu sam­an­burð­ar­þjóðir.

„Hvað sem fólki finnst um skrif Harðar Ægis­sonar, rit­stjóra Mark­að­ar­ins, er ekk­ert sem stað­festir að hann sé „hand­bendi“ eða stýr­ist beint af ein­hverjum „hús­bónda“. Hann kann að hafa sínar skoð­anir og hans skoð­unum getum við verið ósam­mála. Það er munur á því að hafa skoðun eða vera bein­línis í duldum hags­muna­á­rekstri. Þess fyrir utan hefur Hörður aug­ljós­lega gert margt gott og mik­il­vægt í blaða­mennsku, til dæmis afhjúpað sví­virði­legar bón­us­greiðslur,“ segir hann.

Jón Trausti bendir á að í síð­asta góð­æri hafi Íslend­ingar verið með rit­stjóra Mark­að­ar­ins sem hafði þegið hund­ruð millj­óna króna í kúlu­lánum til að kaupa í Kaup­þingi og Exista, með veði í bréf­unum, og skrifað svo við­tal við banka­stjór­ann um ósann­gjarnar árásir á bank­ann.

Tilvalið að svara efnislega, ráðast á rökin og sannreyna fullyrðingar

„Ég veit ekki til þess að neinn hafi sýnt fram á að Hörður sé í hags­muna­á­rekstri. Við þurfum að gera grein­ar­mun á því að fólk sé í hags­muna­á­rekstri og því að það hafi skoð­anir sem stang­ast á við okkar, eða okkur þyki það vega ómak­lega að okkur. Og í því til­felli er til­valið að svara við­kom­andi efn­is­lega, ráð­ast á rökin og sann­reyna full­yrð­ingar, frekar en að reyna að koma á stig­magn­andi og pólaríser­andi umræðu­taktík skot­graf­anna, þar sem aðrir eru ein­fald­lega „óvinir“ eða „hand­bendi“.

Ef við inn­leiðum almennt orð­ræðu­taktík með „ad hominem“ árásir á meinta and­stæð­inga - fólk af annarri skoðun - sem er nán­ast afmennskað, „holir menn“ - getur sam­fé­lags­legi skað­inn orðið á dýpri skala en efna­hags­legt verð­bólgu­skot,“ segir Jón Trausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár