Aukinn kraftur í lánveitingu til byggingarfyrirtækja

Eftir tæp­lega þriggja ára stöðnun í lán­veit­ingu bank­anna til bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja hefur auk­inn kraftur færst í þau á síð­ustu mán­uðum. Ný útlán til bygg­ing­ar­geirans í febr­úar námu um fimm millj­örðum krónum og hafa þau ekki verið meiri í tæp sex ár.

Ný útlán banka­kerf­is­ins til hús­næð­is­upp­bygg­ingar, að frá­dregnum upp­greiðslum, nam 5,12 millj­örðum króna í febr­úar, en það er mesta aukn­ing í útlána­flokknum frá því í júní 2016. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­bank­ans um stöðu banka­kerf­is­ins, sem voru birtar í vik­unni.

Minni fjárfesting eftir faraldurinn

Líkt og sjá má á mynd hér að neðan hafa útlán til hús­næð­is­upp­bygg­ingar dreg­ist tölu­vert saman frá seinni hluta árs­ins 2019. Sam­drátt­ur­inn jókst svo tölu­vert eftir að far­ald­ur­inn hófst, en ný útlán að frá­dregnum upp­greiðslum voru nei­kvæð nær alla mán­uði frá mars 2020 til nóv­em­ber­mán­aðar í fyrra.

Íslands­banki sagði síð­asta haust að sam­drátt­ur­inn í slíkum útlánum væri ekki til­kom­inn vegna þess að bank­inn hefði synjað verk­efnum, frekar mætti skýra hann með minni eft­ir­spurn og hrað­ari upp­greiðslum á útistand­andi lánum.

Eft­ir­spurn­ar­minnkunin sést á tölum Hagstofu um íbúða­fjár­fest­ingu, sem dróst saman eftir að far­ald­ur­inn hófst í byrjun árs 2020. Fjár­fest­ingin jókst svo ekki af ráði árin 2020 og 2021, þrátt fyrir að íbúða­verð hafi auk­ist tölu­vert á þessum tíma.

Lánaaukningin á enda

Verð­hækk­un­ina má rekja til auk­innar ásóknar heim­il­anna í fast­eigna­lán, sem var meðal ann­ars til­komin vegna mik­illa vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans á árinu 2020 og auk­ins spari­fés vegna tak­mark­aðra neyslu­mögu­leika á tímum far­ald­urs­ins.

Myndin hér að neðan sýnir ný útlán til fast­eigna­kaupa að frá­dregnum upp­greiðslum, en þar má sjá mikla aukn­ingu eftir að far­ald­ur­inn hófst í mars 2020. Útlána­aukn­ingin náði hámarki um haustið 2020, en hélst mikil fram að lokum síð­asta sum­ars. Síðan þá hefur nokkuð dregið úr aukn­ing­unni eftir því sem íbúðum á sölu hefur fækkað mikið.

Eft­ir­spurn eftir íbúð­ar­hús­næði virð­ist þó enn vera mikil, en sam­kvæmt síð­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar selj­ast íbúðir hratt upp og á miklu yfir­verði.

Seðla­bank­inn hefur bæði hækkað stýri­vexti og þrengt skil­yrði fyrir lán­töku á hús­næð­is­mark­aðnum til að reyna að tempra þessa eft­ir­spurn, en þær aðgerðir hafa enn sem komið er ekki skilað miklum árangri.

Arðbærara að byggja núna

Í nýlegri grein­ingu sinni sagði hag­fræði­deild Lands­bank­ans að miklar verð­hækk­anir á íbúð­ar­hús­næði umfram laun og bygg­ing­ar­kostn­aðar hvetji til íbúða­upp­bygg­ingar. Deildin benti einnig á að íbúðum í bygg­ingu hafi fjölgað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ustu miss­erum, en því megi gera ráð fyrir að fram­boð fari að aukast á mark­aðnum til þess að anna eft­ir­spurn í fram­tíð­inni.

Áður en útlán bank­anna til bygg­ing­ar­geirans dróg­ust saman árið 2019 voru þau um sex pró­sent af heild­ar­út­lánum bank­ans. Í fyrra­haust voru þau hins vegar ein­ungis um 4,2 pró­sent af útlán­unum, en síðan þa hafa þau hækkað aftur upp í tæp fimm pró­sent. Aftur á móti hafa fast­eigna­lán orðið mun stærri hluti af útlána­safni bank­anna á síð­ustu tveimur árum, en þau fóru úr 40 pró­sentum og upp í 50 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár