Bankarnir vilja fjármagna sig á betri kjörum til að geta lánað stuðningslánin

Bank­arnir vilja ekki stuðn­ings­lánin á sína efna­hags­reikn­inga heldur leggja til að þau verði veitt í gegnum efna­hags­reikn­ing sér­hæfðrar lána­stofn­unar í eigu rík­is­ins.

Stuðningslán til lítilla fyrirtækja voru kynnt á blaðamannafundi 21. apríl þar sem ríkisstjórnin gerði grein fyrir aðgerðarpakka 2.0.
Stuðn­ings­lán til lít­illa fyr­ir­tækja voru kynnt á blaða­manna­fundi 21. apríl þar sem rík­is­stjórnin gerði grein fyrir aðgerð­ar­pakka 2.0. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF) segja að ef vilji sé til þess að svokölluð stuðn­ings­lán til minni fyr­ir­tækja, sem veita á með 100 pró­sent rík­is­á­byrgð, séu á vöxtum undir mark­aðs­kjörum þá þurfi end­ur­fjár­mögnun Seðla­banka Íslands að vera í takt við það. Þau benda á að að margir seðla­bankar, þar á meðal Seðla­banki Evrópu, séu að end­ur­fjár­magna lán lána­stofn­ana með lánum sem séu undir stýri­vöxtum bank­ans.

Þetta kemur fram í umsögn SFF um annan aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar.

Samtökin benda á að gert sé ráð fyrir því að stuðn­ings­lánin verði með vöxtum sem sam­svari vöxtum inn­lána lána­stofn­ana hjá Seðla­banka sem bundin eru í sjö daga. Þeir vextir eru 0,75 pró­sent lægri en vextir á sjö daga veð­lánum sem lána­stofn­unum standa til boða til að fjár­magna þessi lán. Vaxta­munur lán­anna sem á að veita, og þeirra lána sem bankar geta fjár­magnað sig á, er því nei­kvæður um 0,75 pró­sent. 

Að mati SFS þurfi láns­kjör stuðn­ings­lán­anna að minnsta kosti að sam­svara vöxtum á veð­lánum Seðla­banka til lána­stofn­ana að við­bættum banka­skatti.

[adspot]Stuðn­ings­lánin voru kynnt í aðgerða­pakka 2.0 í síð­ustu viku. Þau munu njóta 100 pró­sent rík­is­á­byrgð­ar en bankar eiga samt sem áður að veita þau. Lánin til fyr­ir­tækj­anna verður hægt að sækja um með ein­földum hætti á Island.is en þau verða sex millj­ónir krónur að hámarki á hvert fyr­ir­tæki. Heild­ar­um­fang lán­anna á að geta orðið allt að 28 millj­arðar króna í heild, að mati stjórn­valda. 

Vilja ekki lánin inn á sinn efnahagsreikning

Í umsögn SFF segja þau að það eigi að koma til álita að stuðn­ings­lánin verði veitt í gegnum efna­hags­reikn­ing Rík­is­á­byrgð­ar­sjóðs, Seðla­banka eða ann­arra sér­hæfðrar lána­stofn­unar í eigu rík­is­ins í stað þess að þau fari inn á efna­hags­reikn­ing bank­anna líkt og frum­varp um þau gerir ráð fyrir. Lána­stofn­anir séu í raun umsýslu­að­ilar lán­anna sam­kvæmt frum­varp­inu. Því gæti allt eins „Skatt­ur­inn ann­ast þá úrvinnslu sam­hliða úrvinnslu umsókna um lok­un­ar­styrki. Óháð því hvort stuðn­ings­lánin eru á efna­hags­reikn­ingi lána­stofn­ana eða ekki gæti Skatt­ur­inn ann­ast mat á rétti til stuðn­ings­lána og til­kynnt lána­stofn­unum þar um.“

[links]SFF bendir líka á að ekk­ert sé fjallað um kostnað vegna inn­heimtu stuðn­ings­lán­anna í frum­varp­inu. „Þar sem lánin er að fullu með ábyrgð ríkis hlýtur rík­is­sjóður að bera þann hluta inn­heimtu­kostn­aðar sem ekki inn­heimt­ist hjá lán­þega. Tryggja þarf lána­stofn­unum fullt skað­leysi af inn­heimtu lán­anna og taka fram að við inn­heimtu lán­anna verði farið eftir reglum og ferlum hverra lána­stofn­unar.“

Þá benda sam­tökin á að frum­varpið geri ráð fyrir að „lána­stofnun“ veiti stuðn­ings­lánið. Óljóst sé á hvaða for­sendum ákvörðun muni byggja um hvaða lána­stofnun skuli afgreiða umsóknir ein­staka lán­taka. „Mörg minni fyr­ir­tækja eru í litlum lána­við­skiptum við lána­stofn­anir. Óljóst er því hvaða lána­stofnun ætti að taka að sér veit­ingu stuðn­ings­láns­ins í hverju til­viki.“

Geta ekki haft eftirlit með arðgreiðslum

SFF gerir marg­hátt­aðar athuga­semdir við stuðn­ings­lána­fyr­ir­komu­lagið í umsögn­inni. Þar segir meðal ann­ars að með frum­varp­inu séu sett skil­yrði varð­andi arð­greiðslur og greiðslur af lánum rekstr­ar­að­ila til eig­enda. „Þessi skil­yrði munu end­ur­spegl­ast í lána­skil­málum stuðn­ings­lána. Það getur hins vegar ekki verið í höndum lána­stofn­unar að bera ábyrgð á því ef lán­taki brýtur gegn þessu skil­yrði með þeim hætti að að ábyrgð rík­is­sjóðs falli niður. Lána­stofnun er umsjón­ar­að­ili vegna stuðn­ings­lána en getur ekki haft eft­ir­lit með rekstr­ar­að­ilum á láns­tím­anum.“

Þá þurfi að gera ráð fyrir þeim mögu­leika að ein­hver verði ósáttur um nið­ur­stöðu um lán­töku­rétt og fjár­hæð stuðn­ings­lána. Sá aðili þurfi að geta skotið máli sínu til úrskurð­ar­að­ila telji við­kom­andi að fyr­ir­liggj­andi mat á sér sé rangt. Ekkert liggi fyrir um hver eigi að vera í því hlut­verki í stuðn­ings­lána­fyr­ir­komu­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár