Doktorsnemi kvartar til umboðsmanns Alþingis

Dokt­or­snemi kvart­aði undan mið­stöð fram­halds­náms vegna meints brots á stjórn­sýslu­lögum.

Í framboði til rektors
Í fram­boði til rekt­ors Jón Atli Bene­dikts­son aðstoð­ar­rektor fer fyrir Miðstöð fram­halds­náms, sem dokt­or­snemi kvarar undan til umboðs­manns.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur dokt­or­snemi við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands form­lega kvartað undan Miðstöð fram­halds­náms til umboðs­manns Alþingis. Neminn, sem hefur stundað dokt­ors­nám í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands í um sex ára skeið, baðst undan því að ræða við Stundina um málið en stað­festi þó að hann hafi sent form­lega kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Að sögn heim­ild­ar­manns Stund­ar­innar sem þekkir vel til máls­ins und­ir­býr nem­inn nú enn fremur skaða­bóta­mál gegn háskól­anum.

Jón Atli Bene­dikts­son, aðstoð­ar­rektor og fram­bjóð­andi í kom­andi rekt­ors­kosn­ingum, fer fyrir Miðstöð fram­halds­náms og er því ábyrgur gagn­vart umboðs­manni Alþingis. Stundin hafði sam­band við emb­ætti umboðs­manns Alþingis og feng­ust þar þau svör að emb­ættið tjáði sig ekki um ein­stök mál fyrr en álit er birt.

Ekki náð­ist í Jón Atla við vinnslu fréttar. Hann er einn þriggja sem bjóða sig fram til rektor en rekt­ors­kjör fer fram 13. apríl næst­kom­andi. Hann hefur verið for­stöðu­maður Mið­stöðvar fram­halds­náms frá árinu 2009.
Magnús Lyngdal Magn­ús­son, skrif­stofu­stjóri Mið­stöðvar fram­halds­náms, hafði sam­band við Stundina eftir óskað var eftir við­brögðum frá Jón Atla. Magnús sagði að ábyrgðin lægi frekar á hans herðum heldur en Jóns Atla þar sem hann sinnir dag­legum rekstri Mið­stöðvar fram­halds­náms. Hann sagð­ist þó ekk­ert geta tjáð sig um málið þar sem þeim hefur ekki borist neitt erindi frá umboðs­manni Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár