Ferðamenn greiði kostnað af skimun

Með greiðslu ferða­manna fyrir sýna­töku má stuðla að því að þeir sem sækja landið heim séu efna­meiri ferða­menn sem eyði meiru og dvelji lengur, segir í grein­ar­gerð fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um hag­ræn áhrif þess að aflétta ferða­tak­mörk­unum til Íslands.

Samtök ferðaþjónustunnar telja að um 250 þúsund ferðamenn gætu komið hingað til lands það sem eftir lifir árs.
Samtök ferða­þjón­ust­unnar telja að um 250 þús­und ferða­menn gætu komið hingað til lands það sem eftir lifir árs. Mynd: Bára Huld Beck

Ef skima á alla far­þega við kom­una til lands­ins virð­ist hag­fræði­lega rétt að kostn­að­ur­inn sé greiddur af far­þeg­unum sjálfum. Með því myndu far­þeg­arnir greiða heildar kostnað sem fylgir þeirri ákvörðun að ferð­ast á þessum tíma­punkti auk þess sem að öðrum kosti gætu mynd­ast hvatar fyrir ferða­lög til þess eins að fá próf sem virð­ast af skornum skammti víða erlendis. Þá mætti líta til þess að beinar skatt­tekjur rík­is­sjóðs af hverjum ferða­manni eru áætl­aðar 20.000- 25.000 krónur, eða nokkru lægri upp­hæð er skimunin virð­ist kosta.

Þetta kemur fram í grein­ar­gerð efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um hag­ræn áhrif þess að aflétta ferða­tak­mörk­unum hingað til lands. Í gær ákvað heil­brigð­is­ráð­herra að fara að til­mælum sem sótt­varna­læknir setti fram í minn­is­blaði um að opna landa­mæri gegn því að komu­far­þegar fari í sýna­töku eða í tveggja vikna sótt­kví.

Í grein­ar­gerð­inni, sem fjár­mála­ráðu­neytið vann að beiðni for­sæt­is­ráð­herra, er farið yfir mögu­legan kostnað og tekjur af þremur kostum: Óbreytt ástand við landa­mæri, opna þau án sýna­töku eða opna þau með skil­yrðum um skimun, fram­vísun vott­orðs eða sótt­kví.

[adspot]

Ráðu­neytið kemst að því í grein­ar­gerð sinni að rétt­ara virð­ist að draga úr ferða­tak­mörk­unum með þeim sótt­varn­ar­að­gerðum sem þar til bærir sér­fræð­ingar telja að dragi nægi­lega úr hættu á víð­tækum smitum. Bent er á að ferða­vilji virð­ist mjög tak­mark­aður hjá fólki en með opnun innri landamæra Schengen-ríkja megi áætla að ferða­menn sem hingað muni koma séu fyrst og fremst frá Evrópu.

[links]Þetta telur ráðu­neytið því heppi­legan tíma til að þróa efna­hags- og sam­fé­lags­lega umgjörð fyrir opnun landamæra að nýju. En í því sam­bandi þurfi ann­ars vegar að líta til þess hver skuli bera kostnað af sótt­varn­ar­að­gerðum á borð við skimun og hins vegar hvernig björgum heil­brigð­is­þjón­ust­unnar, þar með talið hlífð­ar­bún­aði og rann­sókn­ar­getu, og fjár­munum rík­is­sjóðs til heil­brigð­is­mála er best varið.

Í grein­ar­gerð­inni segir að „rétt þyki“ að ferða­menn greiði sjálfir fyrir sýna­tök­una við kom­una til lands­ins. Á það er þó bent að almenn skimun sé ígildi skatt­lagn­ingar á ferða­lög. „Enn er þó mjög óljóst hvernig verð á flugi til og frá land­inu munu þró­ast. Með greiðslu ferða­manna fyrir prófið má þó stuðla að því að þeir sem sækja landið heim séu efna­meiri ferða­menn sem eyði meiru og dvelji lengur, enda yrði greiðslan fyrir prófið hin sama óháð dval­ar­lengd.“

Einnig þarf, að mati ráðu­neyt­is­ins, að horfa til þess að rík­is­sjóður nið­ur­greiði ekki sam­fé­lags­legan kostnað af utan­lands­ferðum Íslend­inga „sem virð­ast af reynslu síð­ustu mán­aða hafa meiri áhrif á mögu­lega útbreiðslu veirunnar en komur erlendra ferða­manna“. Ef Íslend­ingar leiti hraðar út en ferða­menn til lands­ins geti það haft nei­kvæð áhrif á inn­lenda eft­ir­spurn og við­skipta­jöfnuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár