Eurovision blásin af vegna COVID-19

Söngvakeppni Evr­ópskra sjón­varps­stöðva hefur verið aflýst vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Daði og Gagnamagnið
Daði og Gagna­magnið Mynd: Skjáskot/RÚV

Söngvakeppni Evr­ópskra sjón­varps­stöðva sem átti að fara fram í maí í Hollandi hefur verið aflýst vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. RÚV greinir frá.

Þá segir í til­kynn­ingu frá EBU að vegna óvissu­á­stands­ins vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar og tak­mark­ana ýmissa rík­is­stjórna álf­unnar á ferða­frelsi neyð­ist aðstand­endur til þess að aflýsa keppn­inni.

Eins og alþjóð veit átti Daði og Gagna­magnið að flytja Think about things á stóra svið­inu í Rott­er­dam í Hollandi en keppnin átti að fara fram dag­ana 11. til 16. maí næst­kom­andi.

Í frétt RÚV um málið segir að for­svars­menn keppn­innar hafi sagt ákvörð­un­ina tekna með heilsu lista­manna, starfs­fólks og aðdá­enda í huga, auk ástands­ins í Hollandi, Evrópu og heims­byggð­inni allri. Það virð­ist, sam­kvæmt RÚV, því svo sem að ekki hafi verið ákveðið að halda keppn­ina án áhorf­enda eins og gert var í dönsku for­keppn­inni á dög­unum. Ekkert komi fram um hvort keppnin verður haldin síðar og hvernig fyr­ir­komu­lagið muni þá vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár