Þeir sem eiga húsnæði hafa það gott, en margir hinna lifa við skort og ná ekki endum saman

Samkvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum Hagstofu Íslands fækk­aði þeim heim­ilum sem áttu erfitt með að ná endum saman í fyrra og þau hafa hlut­falls­lega aldrei mælst færri. Tæplega 19 pró­sent þjóð­ar­innar segir að hús­næð­is­kostn­aður sé þung fjár­hags­leg byrði.

Tæplega fjórð­ungur heim­ila á Íslandi, 24,1 pró­sent, átti erfitt með að ná endum saman í fyrra, sam­kvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands sem unnar eru úr bráða­birgða­nið­ur­stöðum lífs­kjara­rann­sóknar Hagstofu Íslands. Það er lægsta hlut­fall sem mælst hefur í þannig stöðu í sam­an­tektum stofn­un­ar­innar.

Til sam­an­burðar áttu um 51 pró­sent heim­ila í erf­ið­leikum með að ná endum saman árið 2011 og hlut­fallið var yfir 40 pró­sent milli áranna 2010 og 2015.

Stóra ástæðan fyrir þess­ari breyt­ingu á síð­ustu árum er sú að fjár­hags­leg byrði hús­næð­is­kostn­aðar á meðal heim­ila í eigin hús­næði lækk­aði skarpt á milli ára. Á árinu 2020 sögð­ust 14 pró­sent þeirra sem bjuggu í eigin hús­næði eiga erfitt með að ná endum saman en það hlut­fall fór rétt niður fyrir tíu pró­sent í fyrra. Á sama tíma stóð hlut­fall þjóð­ar­innar sem heilt yfir sagði að fjár­hags­leg byrði hús­næð­is­kostn­aðar væri í þung í stað, en tæp­lega 19 pró­sent heim­ila sagði það stöð­una í fyrra. Því hefur róð­ur­inn þyngst hjá þeim sem eiga ekki hús­næði á meðan að hann létt­ist hjá þeim sem það gerðu.

Ástæð­urnar geta verið nokkrar. Ráð­stöf­un­ar­tekjur juk­ust heilt yfir í fyrra, aðal­lega vegna launa­hækk­ana og hag­stæðra lána­kjara. Þá hækk­aði hús­næð­is­verð gríð­ar­lega mikið, en árs­hækkun íbúða­verðs mælist nú 16,6 pró­sent. Lánakjör hafa versnað nokkuð skarpt í ár vegna auk­innar verð­bólgu og hækkun á stýri­vöxtum sem gæti breytt stöð­unni til hins verra á ný. Auk þess rýrir verð­bólgan, sem nú mælist 6,2 pró­sent og hefur ekki mælst hærri í ára­tug, virði þeirra króna sem heim­ilin hafa til ráð­stöf­unar í hverjum mán­uði.

Tæp ellefu prósent heimila á leigumarkaði búa við skort á efnislegum gæðum

Í bráða­birgða­nið­ur­stöðum Hag­stof­unnar segir að á árinu 2021 hafi 4,2 pró­sent heim­ila lands­ins búið við skort á efn­is­legum gæðum, þar af 10,9 pró­sent heim­ila á leigu­mark­aði en ein­ungis 2,4 pró­sent heim­ila sem búa í eigin hús­næði.

Þar segir enn fremur að þegar horft sé til mis­mun­andi heim­il­is­gerða voru erf­ið­leikar við að ná endum saman á um helm­ingi heim­ila hjá einum full­orðnum með eitt eða fleiri börn á fram­færi árið 2021 en á 16 pró­sent heim­ila tveggja eða fleiri full­orð­inna þar sem ekk­ert barn var búsett. „Nið­ur­stöð­urnar benda því til þess að auk­inn fjöldi fyr­ir­vinna dragi úr erf­ið­leikum við að ná endum saman en að auk­inn fjöldi barna á fram­færi ýti undir erf­ið­leika við að láta enda ná saman.“

Afar sjald­gæft hefur verið í gegnum tíð­ina að heim­ili sem búi í eigin hús­næði skorti efn­is­leg gæði. Hlut­fallið var á bil­inu 2,1 pró­sent til fjögur pró­sent árin 2016 til 2021. Hlut­fallið var hærra á sama tíma­bili fyrir heim­ili sem voru á leigu­mark­aði eða á bil­inu 10,6 pró­sent til 17,2 pró­sent, og hæst árið 2016. „Veru­legur skortur efn­is­legra gæða mælist vart á meðal heim­ila í eigin hús­næði og hefur leitnin verið frekar niður á við. Alls bjuggu 2,5 pró­sent heim­ila á leigu­mark­aði við veru­legan skort efn­is­legra gæða árið 2021.“

Nið­ur­stöð­urnar eru unnar úr lífs­kjara­rann­sókn Hagstofu Íslands. Um er að ræða langsniðsrann­sókn þar sem haft er sam­band við hátt í fimm þús­und heim­ili árlega. Vogir íslensku lífs­kjara­rann­sókn­ar­innar voru end­ur­skoð­aðar og þeim breytt fyrir gagna­söfnun árs­ins 2017. Það veldur broti í tíma­röð á metnum fjölda heim­ila á land­inu og getur verið vara­samt að bera saman fjölda­tölur heim­ila fyrir og eftir brot í tíma­röð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár