Mikill þrýstingur á fasteignamarkaðnum í höfuðborginni

Verð hækkar, sölu­tími stytt­ist og fram­boð íbúða á sölu dregst saman á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Allt bendir þetta til mik­ils þrýst­ings á fast­eigna­mark­aðnum þar.

Fjöldi íbúða á sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er nú minni en hann hefur verið á síð­ustu árum, auk þess sem hlut­fall íbúða sem seldar eru á yfir­verði hefur nær tvö­fald­ast. Á sama tíma hefur með­al­sölu­tími dreg­ist hratt saman á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og verð­vísi­talan hefur hækkað um tæp sex pró­sent. Þetta kemur fram í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS), sem kom út í morgun.

Íbúðum á sölu fækkar verulega

Samkvæmt skýrsl­unni er mikil eft­ir­spurn eftir hús­næði und­an­farna mán­uði farin að hafa mikil áhrif á fram­boð af eignum. Með­al­fjöldi eigna til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem verið á bil­inu 1.600 til 2.200 eignir, hefur einnig minnkað hratt. Eftir fyrra sam­komu­bannið í vor var þessi fjöldi í hámarki eða um 2.200 eignir og hefur síðan þá lækkað niður fyrir 1.200 eignir, sem er mun minna fram­boð en hefur verið á síð­ustu árum.

Verð hækkar í höfuðborginni en lækkar á landsbyggðinni

Með auk­inni eft­ir­spurn og minna fram­boði af eignum á sölu hefur verð hækkað tölu­vert á árinu og virð­ist vera mikil sam­keppni um eignir. Hækkunin er sér­stak­lega mikil á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en á milli októ­ber­mán­aða 2019 og 2020 hefur vísi­tala sölu­verðs íbúða þar hækkað um 5,8 pró­sent. Í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur vísi­talan svo hækkað um 4,2 pró­sent. Annars staðar á land­inu hefur vísi­talan hins vegar lækkað um 1,8 pró­sent á tíma­bil­inu.

Minni sölutími og fleiri íbúðir á yfirverði

Eftir því sem virknin á fast­eigna­mark­aðnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur auk­ist hefur hlut­fall íbúða sem selj­ast yfir ásettu verði einnig auk­ist til muna. Í júní seld­ust 11 pró­sent íbúða á yfir­verði, en í októ­ber seld­ist rúmur fimmt­ungur íbúð­anna á yfir­verði, ef miðað er við þriggja mán­aða hlaup­andi með­al­tal.

Á sama tíma hefur með­al­sölu­tími dreg­ist hratt saman á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síðan í vor, en sam­kvæmt HMS er það í sam­ræmi við að fram­boðið sé að drag­ast saman, verðið sé að hækka og fleiri eignir að fara á yfir­verði. Sam­keppnin um eignir virð­ist vera mikil og því stytt­ist sölu­tím­inn.

Sölutími nýrra eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fór hæst upp í 79 daga að með­al­tali í sam­komu­bann­inu, en hefur nú styst niður í 61 dag. Fyrir aðrar eignir hefur tím­inn styst úr 49 dögum niður í 43 og hefur ekki mælst jafn­stuttur síð­ustu sjö árin.

Búist við meiri verðhækkunum

Samkvæmt skoð­ana­könnun sem Zenter gerði fyrir HMS í nóv­em­ber þá telja 70 pró­sent svar­enda að fast­eigna­verð muni koma til með að hækka á næstu 12 mán­uðum. Einungis 6 pró­sent sver­anda telja að fast­eigna­verð muni lækka á tíma­bil­inu. Samhliða vænt­ingum um áfram­hald­andi verð­hækk­unum bendir könn­unin til þess að áhugi fólks á að kaupa sér íbúð í náinni fram­tíð hafi dvínað, miðað við sam­bæri­legar kann­anir í apríl og júlí á þessu ári. Þó er hlut­fall vænt­an­legra kaup­enda hátt, ef litið er aftur til síð­ustu þriggja ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár