Aldur Trumps og ofþyngd stórir áhættuþættir

Læknar benda á að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sé í áhættu­hópi þegar komi að hættu á alvar­legum veik­indum af COVID-19, sjúk­dómnum sem hann hefur oft­sinnis reynt að gera lítið úr en hefur nú sjálfur greinst með.

Donald Trump er með COVID-19.
Donald Trump er með COVID-19. Mynd: EPA

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti er ekki eini þjóð­ar­leið­tog­inn sem hefur greinst með COVID-19, sjúk­dóm­inn sem kór­ónu­veiran veldur. Leið­togar tveggja stórra og valda­mik­illa ríkja hafa einnig greinst; Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og Jair Bol­son­aro, for­seti Brasilíu. Allir þrír eiga þeir það sam­eig­in­legt að hafa verið gagn­rýndir harð­lega fyrir sein við­brögð sín við heims­far­aldr­inum þegar öllum var orðið ljóst að hann gæti orðið mjög skæður.

Í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga í Banda­ríkj­unum er ekki óþekkt að ein­hver stór­mál komi upp á ell­eftu stundu. Stundum eru það mál sem vekja hneykslan og minnka til­trú almenn­ings á fram­bjóð­endum. Dæmi um það er opin­berun tölvu­pósta Hillary Clinton rétt fyrir síð­ustu kosn­ingar árið 2016.

Trump skrif­aði færslu á Twitter í nótt. Þó að færslur á þessum eft­ir­lætis miðli for­set­ans séu kall­aðar tíst – orði sem lýsir lág­væru hljóði fugla og músa – var hér stór­mál á ferð­inni sem gæti farið í sögu­bæk­urnar sem stór­kost­leg­asti leik­breytir allra tíma í bar­áttu um for­seta­stól Banda­ríkj­anna.

Donald Trump er með COVID-19.

[adspot]

Donald Trump er með sjúk­dóm­inn sem dregið hefur yfir milljón manna til dauða frá því að hann kom upp fyrir um tíu mán­uðum, þar af um 200 þús­und landa hans.

Donald Trump er með sjúk­dóm­inn sem „Kína-veiran“ – eins og hann hefur ítrekað kallað kór­ónu­veiruna SARS-CoV-2 – veldur.

[links]Donald Trump er smit­aður af veirunni sem hann hefur gert lítið úr, sagt að myndi „hverfa“ en svo játað að hafa falið hætt­una vilj­andi fyrir þjóð sinni. Veirunni sem hann hefur neitað að verj­ast með því að bera grímu. Veirunni sem honum datt í hug að hægt væri að verj­ast með því að sprauta klór í sjúk­linga (sem hann sagði svo seinna að hefði verið grín). Veirunni sem hann sagði á einum fram­boðs­fundi að hefði „nán­ast engin áhrif“ á nokkurn mann. Veirunni sem hann gerði grín að í fyrstu kapp­ræð­unum í vik­unni með því að segja að Joe Biden vildi halda 200 feta fjar­lægð og bæri grímu „sem er sú stærsta sem ég hef nokkru sinni séð“.

Og Donald Trump er smit­aður af veiru sem leggst einna verst á fólk eins og hann: Eldra fólk og þá sem eru of þungir.

Dánartíðni hækkar skarpt með aldri

Trump er 74 ára. Rann­sóknir hafa sýnt að þó að dán­ar­tíðni í heild af völdum COVID-19 sé mögu­lega um 1,5 pró­sent þá hækkar áhættan á alvar­legum veik­indum og dauða með aldri. Í rann­sókn sem birt var í vís­inda­tíma­rit­inu Lancet í vor var nið­ur­staðan sú að dán­ar­tíðnin væri um 8,6 pró­sent hjá fólki yfir sjö­tugu. Einnig hefur komið í ljós að und­ir­liggj­andi hjarta- og æða­sjúk­dómar geta verið áhættu­þáttur.

„Hann er í miklu meiri hættu á að deyja ef hann fær slæma lungna­bólgu,“ hefur breska blaðið Guardian eftir Barry Dixon, gjör­gæslu­lækni í Melbourne, sem bendir á að líkur á alvar­legri lungna­bólgu vegna COVID-19 hækki með aldri. Margir aðrir sam­ofnir þættir geta valdið alvar­legum veik­indum en að sögn Dixon eru lyk­ilá­hættu­þætt­irnir hjá for­set­anum þeir að hann er aldr­aður og að hann er of þungur.

Þeir sem grein­ast með COVID-19 fljót­lega eftir að þeir smit­ast af veirunni sýna oft væg ein­kenni í fyrstu. Veik­indin hafa til­hneig­ingu til versna um viku síðar. Það er því í annarri viku sem lungna­bólga getur farið að gera vart við sig.

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, bar sig vel fyrstu dag­ana eftir að hann sýkt­ist. Hann fór í ein­angrun á heim­ili sínu en hélt áfram að vinna. Smám saman mátti þó sjá, í hans dag­lega ávarpi til þjóð­ar­innar, að honum versn­aði. Að end­ingu var hann fluttur á gjör­gæslu­deild.

Skoðaðu vísindalega staðfest gögn, Trump

Bent hefur verið á, m.a. af læknum hér á landi, að versnun ein­kenna getur verið nokkuð skyndi­leg. Heilsu fólks getur hrakað hratt á 1-2 sól­ar­hringum.

„Mitt fyrsta ráð væri að kanna alla und­ir­liggj­andi áhættu­þætti hjá honum, svo sem ástand lungna og hjarta,“ hefur Guardian eftir Peter Collignon, pró­fessor í smit­sjúk­dómum. Hann segir ástæðu til að hafa áhyggjur af öllum sem veikj­ast af COVID-19 enda sjúk­dóm­ur­inn lífs­hættu­legur. Út frá lík­am­legu ásig­komu­lagi for­set­ans verði svo að ákveða hvort hann verður í ein­angrun heima eða verði fluttur á sjúkra­hús. Líkt og fleiri sér­fræð­ingar bendir Collignon á að fyrstu dag­ana gæti Trump verið við ágæta heilsu og þá sé jafn­vel ekki þörf á að leggja hann inn. En hann varar þó við því að eftir nokkra daga gætu ein­kennin versnað og þá verði að fylgj­ast vel með ástandi hans.

Christine Jenkins, pró­fessor við lungna­deild George-stofn­un­ar­innar, segir að Trump hafi talað um að lyfið hydroxychloroquine og að sprauta sjúk­linga með hrein­gern­ing­ar­efnum gæti gagn­ast gegn sjúk­dómnum. „Það voru fals­fréttir,“ segir hún og bendir for­set­anum á að væn­legra til árang­urs sé að skoða þau vís­inda­lega stað­festu gögn sem væru þegar til um COVID-19 og með­ferð við honum.

Jenkins segir að í fyrstu hafi dán­ar­tíðni þeirra sem lagðir voru inn á gjör­gæslu vegna COVID-19 verið mjög há. En með meiri þekk­ingu hafi hún lækkað umtals­vert og sé ekki svo slæm í dag – eins og hún orðar það við Guardian. Hún bendir t.d. á að önd­un­ar­vélar séu ekki not­aðar jafn snemma í gjör­gæslu­með­ferð og í vetur þar sem vís­bend­ingar væru um að notkun þeirra gæti við vissar kring­um­stæður valdið meiri skaða fyrir sjúk­ling­inn. „Trump nýtur þess nú að lær­dómur hefur verið dreg­inn út frá vís­inda­legum rann­sóknum og gögnum,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár