Donald Trump og Melania greinast með COVID-19

For­seta­hjón Banda­ríkj­anna hafa greinst með kór­ónu­veiruna. „Við munum kom­ast í gegnum þetta saman,“ segir for­set­inn.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans, Melania Trump.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, og eig­in­kona hans, Melania Trump. Mynd: EPA

Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna hefur greinst með kór­ónu­veiruna en hann greindi frá þessu á Twitter rétt í þessu. Fyrr í nótt hafði hann opin­berað það að einn ráð­gjafi hans hefði greinst jákvæður fyrir veirunni og að Trump og eig­in­kona hans, Melania Trump, hefðu farið í skimun í kjöl­farið.

Í tísti for­set­ans segir kemur fram að þau muni hefja ein­angrun hið snarasta. „Við munum kom­ast í gegnum þetta saman,“ skrifar hann.

[adspot]

Ekki liggur ljóst fyrir hvort eða hvernig þessar vend­ingar muni hafa áhrif á næstu kapp­ræður milli Trumps og Joe Bidens, for­seta­efnis demó­krata, sem fyr­ir­hug­aðar eru 15. októ­ber næst­kom­andi í Miami í Flórída en fyrstu kapp­ræð­urnar fóru fram fyrr í þess­ari viku.

Í minn­is­blaði til fjöl­miðla frá lækni for­set­ans, Sean Conley, kemur fram að for­seta­hjónin séu enn við góða heilsu. Hann seg­ist búast við því að for­set­inn haldi áfram störfum sínum án trufl­ana meðan hann er að ná sér.

Alls hafa meira en 207 þús­und manns lát­ist af völdum veirunnar í Banda­ríkj­unum og efna­hags­leg áhrif útbreiðslu hennar hafa verið gríð­ar­leg þar, líkt og ann­ars­staðar. Trump fékk nið­ur­stöð­una um að hann væri með COVID-19, eins og áður segir, í kjöl­far þess að Hope Hicks, einn nán­asti ráð­gjafi hans, hafði sýkst af henni.

Hefur mánuðum saman talað niður alvarleika faraldursins

Í frétt The New York Times af mál­inu segir að grein­ing Trump skapi óvissu um for­ystu lands­ins og stig­magni þá krísu sem standi yfir í land­inu vegna far­ald­urs­ins.

[links]Trump hefur mán­uðum saman talað niður alvar­leika far­ald­urs­ins sem nú geisar um heim allan. Á hljóð­upp­tökum sem blaða­mað­ur­inn Bob Woodward gerði af sam­tölum sínum við Trump við vinnslu bók­ar­innar „Rage“, og hann hefur birt opin­ber­lega, kom fram að for­set­inn hefði vitað frá því í upp­hafi far­ald­urs­ins hversu hættu­leg kóronu­veiran væri og að hún væri bráðsmit­andi. Á upp­tök­unni, sem er frá því í mars, sagð­ist Trump hins vegar hafa með­vitað talað niður þá hættu vegna þess að hann vildi ekki valda örvænt­ingu hjá banda­rísku þjóð­inni. Á meðal þess sem Trump sagði opin­ber­lega í vor var að veiran myndi hverfa þegar hlýna myndi í veðri.

Í kvöld­verði sem Trump var staddur í í gær var hann á svip­uðum nótum og sagði að enda­lok far­ald­urs­ins væri í aug­sýn.

Í frétt The New York Times segir að aðstoð­ar­menn for­set­ans sem rætt var við hafi ekki getað sagt hvort hvort hann væri með ein­hver veik­inda­ein­kenni, en að fólk sem starfi í Hvíta hús­inu hafi tekið eftir því að rödd Trump hafi hljó­mað hás í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár