Síðasti maðurinn sem á að ákvarða hvort Sigmar Guðmundsson verði áfram þingmaður

Þing­mað­ur­inn Sigmar Guð­munds­son seg­ist hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hann sjálfur sé síð­asti mað­ur­inn sem eigi að hafa áhrif á það hvort Sigmar Guð­munds­son skuli telj­ast lög­lega kjör­inn þing­maður.

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar við þingsetningu á þriðjudag.
Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar við þing­setn­ingu á þriðju­dag. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, ætlar ekki að greiða atkvæða um þær til­lögur sem fram eru komnar um stað­fest­ingu kjör­bréfa. Hann seg­ist hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu „að Sigmar Guð­munds­son sé nokkurn veg­inn síð­asti maður á land­inu sem á að skera úr um gildi þess hvort Sigmar Guð­munds­son skuli sitja á Alþingi.“[links]

Sigmar er nefni­lega, sem jöfn­un­ar­maður í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, einn þeirra sextán þing­manna sem ef til vill gætu þurft að kveðja Alþingi eftir að hafa fengið kjör­bréf í hendur ef gripið yrði til þess ráðs að ógilda kosn­ing­arnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og fyrstur þeirra til að gera grein fyrir því hvernig atkvæði hans í þing­inu verði háttað.

Hann sagð­ist þó ekki gera neina kröfu um að aðrir þing­menn sem upp­lifi sig í sömu skrítnu stöðu sitji hjá við atkvæða­greiðsl­una, sem vænt­an­lega fer fram í kvöld.

Áður en Sigmar steig í ræðu­stól hafði sam­flokks­kona hans Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir greint frá því að hún ætl­aði sér að greiða atkvæði með til­lögu sem felur í sér upp­kosn­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, af þeirri ástæðu að ekki væri hægt að sann­reyna að ágallar við fram­kvæmd kosn­ing­ar­innar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefðu ekki haft áhrif á úrslit kosn­ing­anna.

Varaþingmaður með breytingartillögu

Þingmenn koma nú einn af öðrum í ræðu­stól og gera grein fyrir því hvernig atkvæði þeirra muni lenda í mál­inu. Breyt­ing­ar­til­laga við álit kjör­bréfa­nefndar hefur verið sett fram af hálfu Indriða Inga Stef­áns­sonar, vara­þing­manns Pírata, sem felur í sér að „fyrsta taln­ingin“ í Borg­ar­nesi verði látin gilda.

Í sam­tali við Frétta­blaðið fyrr í dag sagði Indriði að hann teldi rétt­ara að þær tölur gildi, ef svo færi að ein­hverjar tölur úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi ættu að vera taldar gild úrslit alþing­is­kosn­inga í kjör­dæm­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár