Andrés Ingi: Tölurnar gefa fullt tilefni til þess að „við efumst um allt“

Þing­maður Pírata spurði for­mann kjör­bréfa­nefndar hvernig meiri­hlut­inn hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að fara eftir síð­ari taln­ing­unni í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann svar­aði og sagði að þau hefðu enga ástæðu til að rengja þær tölur sem þar koma fram.

Birgir Ármannsson formaður kjörbréfanefndar og Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Birgir Ármanns­son for­maður kjör­bréfa­nefndar og Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata. Mynd: Samsett mynd/Bára Huld Beck

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata segir að þegar uppi er staðið snú­ist rann­sókn und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefndar um það hvort vilji kjós­enda hafi komið rétt fram – hvort að þær tölur sem úthlutun kjör­bréfa byggir á séu í sam­ræmi við þau atkvæði sem skil­uðu sér í kjör­kass­ana.

Þetta kom fram í máli hans á Alþingi í dag en þar ræða þing­menn nú taln­inga­klúðrið í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Meiri­hluti kjör­bréfa­nefndar sem er skip­aður sex full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Flokks fólks­ins, leggur til að öll útgefin kjör­bréf, 63 tals­ins, verði stað­fest. Og ekki verði gripið til neinnar upp­kosn­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Spurði þing­mað­ur­inn Birgi Ármanns­son þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­mann nefnd­ar­innar hver úrslit kosn­ing­anna hefðu í raun verið. „Hver er nið­ur­staðan í Norð­vest­ur­kjör­dæmi? Hverjar eru atkvæða­töl­urnar þar?“

Birgir svar­aði og sagði að meiri­hlut­inn í nefnd­inni teldi að úrslit kosn­ing­anna hefðu birst í þeim tölum sem yfir­kjör­stjórn Norð­vest­ur­kjör­dæmis skil­aði lands­kjör­stjórn og var grund­völlur úthlut­unar þann 1. októ­ber síð­ast­lið­inn. „Að teknu til­liti til þeirra smá­vægi­legu frá­vika sem við fundum við ítar­lega yfir­ferð allra kjör­gagna sem gefa ekki til­efni til þess að úrslit kosn­ing­anna hafi með neinum hætti breyst.

Þar var um að ræða örfá atkvæði sem höfðu verið flokkuð vit­laust og við greindum í okkar yfir­ferð en að öðru lagi hefur eng­inn dregið í efa að kjör­seðl­arnir eða kosn­inga­gögnin sem við rann­sök­uðum og geymd eru í fanga­klefa lög­regl­unnar í Borg­ar­nesi séu rétt. Það sem er dregið í efa er að varsla kjör­gagn­anna hafi verið full­nægj­andi og nefnd­ar­menn sam­mála um það að sú varsla var ekki full­nægj­andi en það er ekk­ert sem bendir til þess að átt hafi verið við gögnin á þessu tíma­bili og við byggjum okkar nið­ur­stöðu á því,“ sagði Birgir.

„Kúnstug“ sönnunarbyrði

Andrés steig aftur í pontu og sagði að honum fynd­ist sú „öfug­snúna sönn­un­ar­byrði“ sem kæmi fram hjá Birgi kúnstug. „Ég hefði einmitt haldið að það þyrfti ekki að sýna fram á brot til þess að við vildum hafa vaðið fyrir neðan okkur í kosn­ingum og þurfum þess vegna að end­ur­telja ef yfir­kjör­stjórn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefði ekki haft þann mögu­leika af okkur með því að rjúfa ábyrgða­keðj­una með því að inn­sigla ekki gögnin.

En það end­ur­speglar bara þetta hyl­djúpa rugl í þessu máli að við séum með þrjár tölur. Hátt­virtur þing­maður sagði að það væri seinni taln­ingin sem væri miðað við.“

Tók hann Viðreisn sem dæmi. „Viðreisn fékk 1.072 atkvæði í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í fyrri tölum. Missti níu atkvæði í seinni taln­ingu og síðan fund­ust tvö atkvæði sem vænt­an­lega hefðu verið dæmd ógild við afstemm­ingu und­ir­bún­ings­nefnd­ar­innar. Mið­flokk­ur­inn fór úr 1.283 atkvæðum yfir í 1.278 og svo er líka hægt að segja að hann hafi fengið 1.279 atkvæði.

Þó að þessar tölur einar og sér þegar þær eru settar inn í reikni­líkan lands­kjör­stjórnar breyti ekki heild­ar­út­hlutun þá gefa þær fullt til­efni til þess að við efumst um allt sem er að borð­inu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Í full­komnum heimi myndum við end­ur­telja þetta frá botni en við getum það ekki vegna þess að það er búið að menga kjör­gögnin. Hvernig í ósköp­unum fær meiri­hluti nefnd­ar­innar það út að það sé hægt að láta þessar tölur standa en ekki mæla með upp­kosn­ingu?“ spurði Andrés Ingi.

Nefndin hefur „enga ástæðu“ til að rengja seinni tölurnar

Birgir svar­aði í annað sinn og sagði að þetta væri kjarni máls­ins. „Við byggjum á því að töl­urnar í seinni taln­ing­unni séu réttar. Yfirferð okkar í Borg­ar­nesi í fleiri en eitt skipti og fleiri en tvö fólst í því að kanna kjör­gögnin, hvort ein­hver ummerki væru um að kjör­gögnin væru menguð, eins og hátt­virtur þing­maður tók til orða. Það sem ítar­leg athugun okkar í síð­ustu ferð leiddi í ljós var að um var að ræða stakar flokk­un­ar­villur til við­bótar við það sem áður hafði komið fram. Við fórum í miklu ítar­legri könnun á gögn­unum vegna þess að við sáum þetta.

Þannig að við höfum í nefnd­inni enga ástæðu til að rengja þær tölur sem þarna koma fram og þar sem kemur að mati að gall­anum þá förum við auð­vitað í það að skoða hvort að ein­hver ummerki – ein­hverjar vís­bend­ingar, eitt­hvað – hafi komið fram sem bendir til þess að átt hafi verið við kjör­gögnin. Svo var ekki. Svo var ekki. Svo ein­falt er það mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár