Almenningur þurfi að geta treyst kosningaúrslitum án alls vafa

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir í minni­hluta­á­liti sínu úr kjör­bréfa­nefnd að það sé ekki nægj­an­legt að stjórn­völd fari í reynd mál­efna­lega að við úrlausn mála, ef það sé ekki sýni­legt öðrum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og full­trúi Vinstri grænna í kjör­bréfa­nefnd segir að rétt sé að ógilda kosn­ing­arnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og kjósa þar á ný. Í minni­hluta­á­liti hennar úr kjör­bréfa­nefnd­inni kemur fram að ákvæði laga um inn­sigli kjör­gagna og að eng­inn sé í ein­rúmi með kjör­gögnum bygg­ist á því að „hvað sem líður heið­ar­leika fólks“ þurfi fram­kvæmd kosn­inga og taln­ingar að „vera þannig hagað að almenn­ingur geti ótví­rætt treyst því að tryggt sé að hin efn­is­lega rétta nið­ur­staða, vilji kjós­end­anna, hafi verið leiddur í ljós.“ [links]

Svandís segir að það sé „und­ir­staða réttar­ör­yggis í íslenskri stjórn­sýslu að borg­ar­arnir geti borið traust til hand­hafa opin­bers valds,“ og að það sé ekki nægj­an­legt að stjórn­völd fari í reynd mál­efna­lega að við úrlausn mála, ef það sé ekki sýni­legt öðrum.

Í ræðu sinni í þing­inu í dag sagði Svandís að nú þyrfti Alþingi að vanda til verka, þar sem verk­efni af þessu tagi hefði ekki áður komið fyrir þingið með sama hætti. Til afgreiðslu máls­ins yrði horft til langrar fram­tíðar.

Ekki unnt að útiloka neitt

Í áliti Svan­dísar segir að réttar­ör­ygg­is­reglum laga um kosn­ingar til Alþingis, og und­ir­liggj­andi meg­in­reglum, sem lúta að inn­siglun atkvæða og því að eng­inn sé í ein­rúmi með óinn­sigl­uðum atkvæðum, sé hvort tveggja „ætlað að tryggja að ekki sé unnt að hafa áhrif á nið­ur­stöður kosn­inga í reynd“ en „ekki síður að ekki sé unnt að bera brigður á nið­ur­stöð­una.“

[adspot]

„Vanda­málið er hins vegar að ef þessar reglur eru brotnar með þeim hætti sem á við í þessu máli er nær ógern­ingur að full­yrða hvort í raun hafi verið átt við atkvæði. Er þá komin upp sú staða að ekki er heldur unnt að úti­loka það. Þá vill svo til að nið­ur­staða fyrri taln­ingar og þeirrar taln­ingar, sem fram fór eftir að fram­an­rakin ákvæði höfðu verið brotin við með­ferð kjör­gagna, var ekki sú sama og mun­aði nægj­an­lega miklu til að hreyf­ing yrði á þing­sætum. Þessi aðstaða, óháð því hvort átt var við atkvæði eða ekki, er svo sann­ar­lega til þess fallin að rjúfa traust,“ segir í áliti Svan­dísar.

„Ekki er unnt að úti­loka með vissu að fram­an­greindir ann­markar hafi haft áhrif og ann­mark­arnir feli í sér brot á þeim ákvæðum kosn­inga­laga sem ætlað er að tryggja að unnt sé að ganga úr skugga um rétta taln­ingu og að almenn­ingur geti treyst því að svo hafi verið. Verður því, í ljósi meg­in­reglu um að með kosn­ingum skuli lýð­ræð­is­legur vilji kjós­enda leiddur í ljós, að úrskurða kosn­ing­una ógilda og boða til upp­kosn­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi,“ segir einnig í nið­ur­stöðu Svan­dísar, sem telur sem áður segir að dóms­mála­ráðu­neytið þurfi að kveðja til nýrra kosn­inga í Norð­vest­ur­kjör­dæmi svo fljótt sem auðið er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár