Katrín situr út kjörtímabilið

Frá­far­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar ætlar að sitja á Alþingi út kjör­tíma­bilið. Hún hefur til­kynnt sam­flokks­mönnum sínum að hún gefi ekki kost á sér áfram til for­ystu­starfa á næsta lands­fundi. Hún hættir á þingi í vor.

Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar.
Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ætlar að sitja á þingi út kjör­tíma­bilið. Hún ætlar ekki að gefa kost á sér áfram til for­ystu­starfa innan flokks­ins á kom­andi lands­fundi og hættir á þingi fyrir kosn­ingar næsta vor.

Katrín segir í sam­tali við Kjarnann að ákvörð­unin hafi verið tekin út frá henni sjálfri og sé ekki hluti af stærra, póli­tísku plani.

„Þetta hefur ekki með neitt annað að gera en að ég vildi gefa fólki tíma til að melta þá ákvörðun til að bjóða sig fram til for­ystu­hlut­verks innan flokks­ins. Fólk þarf tíma til að taka slíkar ákvarð­anir og ég vildi bara taka mig út úr þeirri jöfnu til að fólk geti metið stöð­una eins og hún raun­veru­lega er,“ segir hún. „En ég mun sitja út kjör­tíma­bilið."

Katrín sendi sam­flokks­mönnum sínum bréf þar sem segir að hún hafi tekið þá ákvörðun að hætta á þingi og gefa ekki áfram kost á sér sem vara­for­maður. Í kjöl­farið fóru af stað umræður um hvort hún mundi hætta á þingi í vor og Magnús Orri Schram, vara­maður hennar, tæki þá hennar stað.

Katrín segir þetta ekki á rökum reist, enda ætli hún sér að sitja á þingi fram að kosn­ingum.

Magnús Orri hefur verið orð­aður sem mögu­legur for­manns­fram­bjóð­andi á lands­fundi flokks­ins í júní. Fleiri nöfn sem hafa verið nefnd eru Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður, Oddný G. Harð­ar­dóttir og svo sitj­andi for­maður Árni Páll Árnason, en hann hefur enn ekki gefið út hvort hann ætli að gefa kost á sér áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár