Varaformaður Samfylkingar hættir á þingi

Katrín Júl­í­us­dóttir ætlar ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri á Alþingi í næstu kosn­ingum. Hún ætlar líka að hætta sem vara­for­maður flokks­ins á næsta lands­fundi.

Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ætlar að hætta á þingi eftir næstu Alþing­is­kosn­ingar. Hún greinir frá þessu í bréfi sem hún sendi til sam­flokks­manna sinna. Katrín ætlar ekki að gefa kost á sér áfram í for­ystu­störf fyrir flokk­inn á næsta lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem hald­inn verður í byrjun júní 2016.

Í bréf­inu seg­ist Katrín þakk­lát fyrir það traust sem henni hafi verið sýnt und­an­farið og að margir hafi skorað á hana til að sækj­ast eftir frekara for­ystu­hlut­verki innan flokks­ins. Hún segir ákvörðun sína að hætta vera per­sónu­legs eðlis.

Katrín hefur verið þing­maður fyrir Sam­fylk­ing­una frá árinu 2003. Hún gegndi emb­ætti iðn­að­ar­ráð­herra árin 2009 til 2012 og var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra 2012 til 2013. Hún hefur verið vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar frá 2013.

Bréf Katrínar í heild sinni:

Kæru félagar,

spenn­andi og krefj­andi tímar eru framundan hjá okkur sós­í­alde­mókrötum á Íslandi. Stærsta verk­efnið er að mynda sam­henta sveit sem tryggir sterka rödd jöfn­uðar, rétt­lætis, gagn­sæis og frelsis í póli­tískri umræðu og aðgerðum.

Í yfir 20 ár hefur hreyf­ing jafn­að­ar­manna treyst mér fyrir ólíkum verk­efnum, þar af hafið þið falið mér það mik­il­væga verk­efni að sitja á Alþingi Íslend­inga sl. 13 ár. Þar hef ég á hverjum degi lagt mig fram um að gera mitt allra besta í mörgum ólíkum hlut­verkum; í störfum nefnda, í for­ystu iðn­að­ar­nefndar, í for­ystu EFTA/EES þing­manna­nefnd­ar­innar ásamt því að gegna emb­ætti iðn­að­ar­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Um leið og ég þakka ykkur fyrir þetta traust sem þið hafið sýnt mér, finnst mér mik­il­vægt að deila með ykkur ákvörðun sem ég hef tekið.

Mörg ykkar hafið skorað á mig und­an­farið að sækj­ast eftir frekara for­ystu­hlut­verki í okkar hreyf­ingu nú á þessu vori og fyrir það traust og þá vin­áttu sem þið sýnið mér er ég afar þakk­lát. Ég hef hins­vegar tekið þá ákvörðun að sækj­ast ekki eftir end­ur­kjöri í næstu alþing­is­kosn­ingum og þar af leið­andi mun ég ekki bjóða fram krafta mína til frek­ari for­ystu­starfa fyrir Sam­fylk­ing­una. Ákvörðun mín um að þetta verði mitt síð­asta kjör­tíma­bil sem ykkar full­trúi á þingi er per­sónu­leg, ég finn að nú er rétti tím­inn til að snúa mér að öðru. Á sama tíma og ég mun sakna sam­starfs­ins við ykkur þá er ég líka spennt fyrir fram­tíðar­æv­in­týrum. Ég er lánsöm. Á fal­lega fjöl­skyldu, elska lífið og ætla að halda áfram að grípa ný og spenn­andi tæki­færi með báðum höndum.

Ný flott kyn­slóð stjórn­mála­manna á öllum aldri bankar nú á dyrnar. Þeim eigum við að fagna og treysta til að bera kyndil hug­sjóna okkar inn í nýja tíma. Vil ég jafn­framt nota þetta tæki­færi til að hvetja ungt fólk til að láta til sín taka í stjórn­málum og móta þannig fram­tíð­ina við hlið reynslu­bolt­anna. 

Þetta er ekki kveðju­bréf - það kemur þegar ég læt af störfum:)

Látum kom­andi miss­eri ein­kenn­ast af gerjun og kraum­andi umræðu um hug­myndir og fram­tíð­ar­lausnir á verk­efn­unum sem við blasa.

Hlakka til að taka þátt í því með ykkur!

Ykkar,
Katrín

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár