Hver er saga Nígers og um hvað er barist?

Valdarán var framið í dög­unum í Níger. Þetta er risa­stórt land sem flestir Íslend­ingar vita þó lík­lega fátt um. Hver er til dæmis saga þessa lands?

Valdarán
Valdarán Það búa 24 millj­ónir í Níger. Mynd: AFP

Níger er 1.200.000 fer­kíló­metrar sem þýðir að það er tólf sinnum stærra en Ísland. Landið er í 21. sæti yfir sjálf­stæð ríki. Nálæg lönd á þeim lista eru Perú, Angóla, Suður-Afríka og nágranna­ríkin Tjad og Malí.
Íbúar eru 24 millj­ónir, álíka margir og í Norður-Kóreu og Ástralíu.

Miðað við stærð lands­ins er nátt­úran í Níger heldur fábreytt því nyrðri hluti lands­ins er und­ir­lagður Sahara-eyði­mörk­inni en í syðri hlut­anum eru gresjur. Skógur hylur vel innan við eitt pró­sent lands­ins.

Þótt það hafi hentað evr­ópsku nýlendu­ríkj­unum sem lögðu undir sig mest­alla Afríku á efri hluta 20. aldar að halda því fram að svæðið sunnan Sahara hafi aðeins verið byggt svoköll­uðum „frum­stæðum þjóð­flokkum“ sem bjuggu dreift og óskipu­lega í smá­þorpum án allrar ríkja­mynd­unar, þá fór því raunar fjarri.

Allt frá því um 500 eftir Krists burð hafa verið á þessu svæði fjöldi ríkja og voru sum þeirra býsna stöndug. Einna fyrst var Gana-ríkið í vestri á mótum Márit­aníu og Malí (en ekki í núver­andi Gana-ríki) en laust fyrir 800 varð til í austri (Níger, Tjad, Líbíu og Kamerún) ríki sem ýmist er kallað Kanem eða Bornu.

Síðar risu Songhay-ríki og Malí-veldið í vestri. Konungur í því síð­ar­nefna á fyrri hluta 14. aldar var hinn víð­frægi Mensa Músa, sem oft er tal­inn hafa verið rík­asti kon­ungur sög­unnar, bæði fyrr og síðar. Veldi hans var þó skamm­líft og á þeim slóðum þar sem Níger er nú risu ýmis ríki Hausa-fólks­ins. Talið er til tíð­inda að Hausar bjuggu í raun við eins konar lýð­ræði því kóngar þeirra voru kosnir af ætt­ar­höfð­ingjum víða að af svæð­inu.

Fleiri ríki mætti telja en þau voru raunar ekki öll fast­mótuð að skipu­lagi og innviðum, ein­fald­lega af því land­flæmið var mikið, fólkið til­tölu­lega fátt og af ýmsum þjóð­ernum, og í norð­ur­hluta lands­ins voru hirð­ingja­þjóðir alls­ráð­andi og flökk­uðu víða — bundu því ekki trúss sitt við einn sjón­deild­ar­hring frekar en annan.

Flestallir íbúar urðu að lyktum múslimar þótt ýmis eldri trú­ar­brögð væru mjög lífseig. Árið 1515 var byggð í bænum Agadez fræg moska eftir að stríðs­menn Songhay-ríkis lögðu bæinn undir sig. Hún er byggð úr leir og er hæsta mann­virki heims­ins úr því efni — mín­ar­ettan eða til­leiðslu­turn­inn er 27 metra hár.

Um 1800 kom fram á sjón­ar­sviðið öfl­ugur trú­ar­leið­togi af Fulani-þjóð­inni, Usman dan Fodio, og kom á fót öfl­ugu kalífa­dæmi með sjálfan sig sem kalífa. Hreyfing hans var ein ýmissa sem komu fram í múslima­löndum um þær mundir og vildu hreinsa trúna og lögin af allri lin­kind. Usman sigr­að­ist bæði á ríkjum Hausa og leif­unum af Kanem-Bornu rík­inu og til varð Sokoto-ríkið sem var raunar fremur laustengt banda­lag ýmissa smærri emír-dæma sem öllu við­ur­kenndu þó kalífann sem æðsta valds­herra sinn.

Sokoto-ríkið hélt velli alla 19. öld­ina. Athygl­is­vert er að um miðja öld­ina voru taldar 2,5 millj­ónir þræla í rík­inu en þá er senni­legt að heildar­í­búa­fjöldi hafi nálg­ast 20 millj­ónir. Í engu ríki í heim­inum voru þá fleiri þrælar nema í Banda­ríkj­unum þar sem þeir voru um 4 millj­ónir. Eingöngu var heim­ilt að hneppa fólk í þræl­dóm sem ekki var múslimar, en um sama bil var fjöldi íbúa reyndar þving­aður til að und­ir­gang­ast íslam með góðu eða illu.

Þegar leið að lokum 19. aldar hófst skyndi­lega kapp­hlaup evr­ópsku stór­veld­anna um nýlendur í Afríku. Margir halda að stór­veldin hafi sankað að sér nýlend­unum á löngum tíma en sann­leik­ur­inn er sá að það gerð­ist á mjög skömmum tíma og í ýmsum til­fellum um eða jafn­vel eftir alda­mótin 1900. Fram að því höfðu þau eignað sér ýmis svæði og hafn­ar­borgir við strönd­ina en nú var farið að sækja inn í lönd.

Margir leið­angrar Vest­ur­landa­búa inn í afrísk lönd voru and­styggi­legir, er óhætt að segja. Hér er til dæmis hlekkur á þátt sem Vera Ill­uga­dóttir flutti fyrir nokkrum árum um franskan leið­angur með­fram Níger-fljóti.

Þegar Frakkar ein­settu sér að leggja undir sig svæðið sem nú kall­ast Níger gekk það hratt og vel fyrir sig frá sjón­ar­miði Frakkar. Bretar og Þjóð­verjar höfðu malað undir sig syðstu héruð Sokoto-rík­is­ins sem nú til­heyra Nígeríu og Kamerún og fátt varð um varnir í Níger. Afrísku ríkið höfðu ekki til­einkað sér á nokkurn hátt þær tækni­bylt­ingar allar sem höfðu gengið yfir Evrópu og fengu ekki rönd við reist þegar nýlendu­her­irnir birt­ust í upp­hafi 20. aldar. Mót­spyrna Túarega, hinnar frægu hirð­ingja­þjóðar í Sahara-eyði­mörk­inni, hélt þó áfram til 1922 þegar Níger var form­lega gerð að franskri nýlendu.

Ekki var um harða þjóð­frels­is­bar­áttu að ræða í Níger eftir að Frakkar tóku þar völdin. Þegar ljóst var orðið að tími nýlendu­veld­anna væri lið­inn veittu Frakkar Níger sjálf­stæði árið 1960 og for­seti varð þá karl einn sem þeim var þókn­an­legur.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hringur Hafsteinsson skrifaði
    Það vantar að segja um hvað er verið að berjast. Fyrirsögnin lofar því.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár