Segir Sjálfstæðisflokk vera með yfirbragð flokks sem vill ekki að Ísland breytist

Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar og mið­stjórn­ar­maður í flokknum segir hann hafa á sér yfir­bragð þess sem vilji ekki að íslenskt sam­fé­lag breyt­ist. Skipti flokk­ur­inn ekki um kúrs muni hann „daga uppi og verða að steini“.

Friðjón R. Frið­jóns­son, einn eig­anda og fram­kvæmda­stjóri KOM ráð­gjafar, segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi nú á sér það yfir­bragð að hann vilji ekki að ís­lenskt sam­fé­lag breyt­ist í takt við tím­ann eða um­heim­inn. „Ef Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn ætl­ar að skil­greina sig sem flokk sem er á móti breyt­ing­um á efna­hags­líf­inu, sjáv­ar­út­veg­inum, land­bún­aðar­kerf­inu, orku­mál­um, stjórn­ar­skránni og sam­fé­lag­inu sjálfu – þá mun hann daga uppi og verða að steini, eins og tröll í dag­renn­ingu. Aðrir stjórn­mála­flokk­ar taka sér þá for­ystu­hlut­verk og færa sín­ar hug­mynd­ir og sitt stjórn­lyndi í lög og regl­ur.“

Þetta kemur fram í grein sem Friðjón skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Friðjón starf­aði um tíma sem aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eftir að hafa verið ráð­inn í það starf árið 2010. Hann hefur auk þess tekið virkan þátt í kosn­inga­starfi flokks­ins árum saman, situr í mið­stjórn hans og er for­maður upp­lýs­inga- og fræðslu­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hvað hefur gerst síðastliðinn 15 ár?

Grein Friðjóns ber yfir­skrift­ina: „Hvenær hætti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að vera flokkur breyt­inga?“ Þar rekur hann hvað það var sem dró hann að flokknum á tímum sem hann kennir við „Sovét-Íslands“.

[adspot]Þá hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, á níunda og tíunda ára­tug síð­ustu aldar, verið hug­rakk­ur og óhrædd­ur við breyt­ing­ar sem færðu lands­mönnum fjöl­breytni, val­frelsi og hag­sæld. „Fram­far­ir á Íslandi urðu til þess að við fór­um að líkj­ast þeim ríkj­um sem við ber­um okk­ur sam­an við. Þing­menn og aðrir trún­aðar­menn Sjálf­stæðis­flokks­ins voru óhrædd­ir, gras­rót­in fagn­aði breyt­ing­um og for­yst­an leiddi flokk­inn og þjóð­ina til nýrra tíma.“

Hann spyr svo hvað hafi verið gert síð­ast­liðin 15 ár, en nú er rétt rúm­lega sá tími lið­inn síðan að Davíð Oddsson hætti sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Auk Bjarna hefur Geir H. Haarde leitt flokk­inn á þeim tíma. Friðjón rekur að afleið­ingar hruns­ins og ætl­aðir afleikir vinstri­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og Vinstri grænna hafi vegið þungt á verk­efna­list­an­um. Svo hafi tekið við bar­átta vegna krónu­eigna kröfu­hafa og gjald­eyr­is­hafta. „Það er erfitt að áfell­ast for­ystu flokks­ins fyr­ir að vera upp­tek­in af þess­um mik­il­vægu verk­efn­um og öðrum til að laga rík­is­rekst­ur­inn. En kannski höf­um við hin ekki verið nógu vak­andi. Af­leið­ing­in er sú að Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn hef­ur nú á sér það yf­ir­bragð að hann vilji ekki að ís­lenskt sam­fé­lag breyt­ist í takt við tím­ann eða um­heim­inn.“

Óhrædd viðað vera frjálsari, opnari og betri

Friðjón skrifar að stjórn­mál séu sam­keppni líkt og við­skipti þjóða og í raun sam­fé­lagið allt. „Lönd­in í kring­um okk­ur eru á fleygi­ferð, þau munu sigra okk­ur í sam­keppni þjóð­anna um fólk, hug­vit, fram­kvæmda­gleði, vöxt og vel­ferð ef við fylgj­um ekki með. Við þurf­um að vera í sterk­um og nán­um tengsl­um við ná­granna- og við­skipta­þjóðir okk­ar, til­bú­in til að þró­ast og vera sveigj­an­leg í við­skipt­um, án þess að gang­ast und­ir er­lent yf­ir­vald.

Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn leiddi ís­lenskt sam­fé­lag á tutt­ug­ustu öld­inni frá ör­birgð til auð­legðar. Ef við sjálf­stæðis­fólk höf­um trú á Íslandi á tutt­ug­ustu og fyrstu öld­inni þá þurf­um við að vera óhrædd. Óhrædd við að taka for­ystu í að leiða Ísland til að vera frjáls­ara, opn­ara og betra.“

Hann nefnir svo þær breyt­ingar sem hann telur að Íslend­ingar verði að vera óhræddir við að gera. Það þyrfti að gera „breyt­ing­ar á land­bún­aði svo hann lík­ist öðrum vest­ræn­um lönd­um, færa mennta- og heil­brigðis­kerf­in nær því sem ger­ist ann­ars staðar á Norður­lönd­um, haga orku­mál­um eins og Norðmenn og Dan­ir, horfa til nýrra leiða í sam­göng­um, taka er­lendri fjár­fest­ingu opn­um örm­um, jafna at­kvæðis­rétt, ein­falda rekstr­ar­um­hverfi lít­illa fyr­ir­tækja með af­námi reglu­verks og vera óhrædd við að taka for­ystu í lofts­lags­mál­um með raun­veru­leg­um lausn­um. Og óhrædd við að velta öll­um stein­um úr vegi sem óvart lentu í sól­inni í dag­renn­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár