Atlas hristir upp í ráðgjafateymi Trumps

Nýjasti ráð­gjafi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta varð­andi kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gengur langt í frá í takt við þá sem fyrir eru í teym­inu. Hann hefur viðrað þá skoðun sína að stefna eigi að hjarð­ó­næmi með því að aflétta tak­mörk­unum.

Læknirinn Scott Atlas á blaðamannafundi í Hvíta húsinu á dögunum.
Lækn­ir­inn Scott Atlas á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu á dög­unum. Mynd: EPA

Tauga­lækn­ir­inn Scott Atlas, sem bætt­ist í ráð­gjafa­hóp Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta í ágúst, hefur talað fyrir því að væn­leg­asta leiðin í bar­átt­unni gegn kór­ónu­veiru­far­aldr­inum sé að leyfa veirunni að breið­ast út í sam­fé­lag­inu en á sama tíma að vernda íbúa hjúkr­un­ar­heim­ila og aðra við­kvæma hópa. Atlas hefur viðrað þessa skoðun sína síð­ustu mán­uði og Washington Post hefur eftir heim­ild­ar­mönnum sínum að þessa leið hafi hann nú einnig lagt til við for­set­ann. Talsmenn Hvíta húss­ins hafa þó ítrekað að stefna Trump sé óbreytt, von­ast sé til þess að árang­urs­ríkt bólu­efni komi sem fyrst á markað sem muni leiða banda­rísku þjóð­ina út úr hömlum far­ald­urs­ins. Engu að síður herma heim­ildir Washington Post að und­ir­bún­ingur aðgerða í takt við ráð­legg­ingar Atlas sé þegar haf­inn og benda breyt­ingar á fram­kvæmd skimunar fyrir veirunni í þá átt.

Hin umdeilda leið að hjarð­ó­næmi sem Atlas leggur til er oft kennd við Svíþjóð. Í henni felst að setja litlar sam­fé­lags­legar hömlur og að heil­brigt fólk sýk­ist og myndi mótefni í stað þess að tak­marka sam­neyti fólks og reyna þannig að koma í veg fyrir útbreiðsl­una.

[adspot]

Sænsk yfir­völd hafa allt frá upp­hafi far­ald­urs­ins verið harð­lega gagn­rýnd fyrir sínar slöku aðgerðir og á það bent að þar í landi sé dán­ar­tíðni vegna COVID-19 einna hæst í heim­inum. Á sama tíma hafi Svíum ekki tek­ist að kom­ast hjá efna­hagslægð frekar en öðrum ríkjum sem völdu harð­ari aðgerðir og tak­mark­anir.

Sænska leiðin á sér þó stuðn­ings­menn víða. Þeir hafa bent á að þó að sam­dráttur í hag­kerfi Sví­þjóðar hafi verið 8,6 pró­sent á tíma­bil­inu apríl til júní miðað við mán­uð­ina þrjá þar á undan hafi hann verið minni en í öðrum löndum Evr­ópu­sam­bands­ins. Að auki vilja þeir meina að harðar aðgerðir séu skerð­ing á frelsi ein­stak­ling­anna og að slíkt sé ekki létt­vægt í stóru mynd­inni.

Scott Gottlieb, fyrr­ver­andi for­stjóri Matvæla- og lyfja­stofn­unar Banda­ríkj­anna, skrif­aði grein í The Wall Street Journal á sunnu­dag­inn þar sem hann var­aði ein­dregið við sænsku leið­inni. Fylgja ætti áfram þeirri aðferð að tak­marka útbreiðsl­una eins og hægt er. „Sænsk stjórn­völd leyfðu veirunni að mestu að breið­ast út í upp­hafi á sama tíma og skref voru tekin til að vernda aldr­aða,“ skrif­aði Gottlieb. Stefnt hafi verið að hjarð­ó­næmi til að koma í veg fyrir efna­hags­legar þreng­ingar. En ýmis­legt hafi gerst í Svíþjóð sem verði að fylgja umræð­unni um sænsku leið­ina. Eitt af því sé að þó að ekki hafi verið gripið til harðra tak­mark­ana á sam­komum hafi Svíar margir hverjir haldið sig til hlés, jafn­vel ungt og heil­brigt fólk. Þar hafi yfir 5.800 manns lát­ist vegna COVID-19 og þrátt fyrir allt sé hjarð­ó­næmi langt frá því náð.

[links]Ýmsir sér­fræð­ingar, m.a. Paul Romer, hag­fræð­ingur sem hlaut Nóbels­verð­launin árið 2018, hafa tekið í sama streng og líst engan veg­inn á að sænska leiðin verði farin í Banda­ríkj­unum. Romer bendir á að reynslan hafi ítrekað sýnt að ef smit í sam­fé­lag­inu verði almennt sé ekki hægt að hindra að það ber­ist í við­kvæma hópa, þrátt fyrir við­leitni í þá átt. Fórn­ar­kostn­að­ur­inn gæti orðið gríð­ar­legur og hund­ruð þús­unda manna, jafn­vel millj­ónir, dáið.

Í ráð­gjafateymi Trumps vegna far­ald­urs­ins eru ýmsir sér­fræð­ingar í smit­sjúk­dómum og þó að Atlas sé læknir er hann ekki sér­fræð­ingur á því sviði. En líkt og víð­ast hvar í heim­inum eru stjórn­völd nú farin að taka fleiri þætti inn í mynd­ina en sótt­varna­sjón­ar­mið. Trump vildi fá fleiri sjón­ar­horn inn í teymið og Atlas, sem hefur tjáð sig oft­sinnis um aðferða­fræð­ina í sumar, var því feng­inn að borð­inu.

Trump vill aflétta takmörkunum sem fyrst

Eftir að frétta­skýr­ing Washington Post var birt í gær sendi hann frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagð­ist ekki hafa lagt form­lega til að hjarð­ó­næm­is­leiðin yrði farin. Hins vegar hefur Trump óskað eftir upp­lýs­ingum um áhrif þeirrar leiðar, ekki síst hver þau yrðu á efna­hags­líf lands­ins. Í vik­unni sagði hann á fundi Repúblikana­flokks­ins að leita yrði leiða til að opna skóla og fyr­ir­tæki. „Við viljum hafa [skóla og fyr­ir­tæki] opin. Þau verða að hafa opið. Fólk verður að kom­ast aftur í vinn­una.“

Trump hefur hingað til fyrst og fremst reitt sig á ráð­gjöf Anthony Fauci, helsta sér­fræð­ings Banda­ríkj­anna í smit­sjúk­dómum, og Deboruh Birx, sem leitt hefur sam­hæf­ingu aðgerða stjórn­valda í far­aldr­inum. Þau hafa bæði sagt að hjarð­ó­næm­is­leiðin sé ekki væn­leg til árang­urs. Atlas hefur hins vegar sagt opin­ber­lega að fjölgun smita muni verða til þess að ónæmi meðal þjóð­ar­innar náist fyrr og að því þurfi ekki að fylgja stór­kost­leg fjölgun dauðs­falla svo lengi sem það tak­ist að vernda við­kvæma hópa.

Sér­fræð­ingar í smit­sjúk­dómum hafa á sama tíma vakið athygli á því að 25 þús­und Banda­ríkja­menn yngri en 65 ára hafi lát­ist vegna COVID-19. Þeir hafa einnig bent á að í Banda­ríkj­unum er offita, sem talin er áhættu­þáttur, útbreidd og að sömu sögu megi segja um hjarta- og lungna­sjúk­dóma. Allt til­heyri þetta fólk við­kvæmum hópum þegar komi að far­aldr­inum og að stór hluti búi utan hjúkr­un­ar­heim­ila.

„Þegar ungt og heil­brigt fólk fær sjúk­dóm­inn, þá veldur hann því ekki erf­ið­leikum,“ sagði Atlas í við­tali við Fox-frétta­stof­una í júlí. „Þegar þetta fólk fær sjúk­dóm­inn er það ekki raun­veru­legt vanda­mál, og í reynd, eins og við sögðum fyrir mörgum mán­uðum síðan, þegar þú ein­angrar alla, líka heil­brigða fólkið, þá ertu að fram­lengja vand­ann því þú ert að koma í veg fyrir ónæmi í sam­fé­lag­inu. Það að fólk sem ekki er í áhættu­hópum fái sýk­ing­una er ekki vanda­mál.“

Óþarfi að skima meðal einkennalausra

Smit­sjúk­dóma­stofnun Banda­ríkj­anna, CDC, upp­færði nýverið leið­bein­ingar sínar um skimun fyrir veirunni. Samkvæmt þeim þarf nú ekki að skima meðal ein­kenna­lausra, jafn­vel þótt að þeir hafi umgeng­ist sýkta. Stofn­unin telur að um 40 pró­sent þeirra sem sýkst hafa af COVID-19 séu ein­kenna­lausir og fram hefur komið að stór hluti smita sem greinst hafi í sumar séu vegna ungs fólks sem ekki hefur fundið ein­kenni.

Tæplega 6 millj­ónir manna hafa greinst með veiruna í Banda­ríkj­unum til þessa og að minnsta kosti 180 þús­und hafa lát­ist vegna COVID-19.

Atlas telur að hjarð­ó­næmi hafi þegar mynd­ast í New York, Chicago og New Orleans en því eru Fauci og Birx ósam­mála. Áfram ætti að fara var­lega í að aflétta tak­mörk­unum.

Hvenær næst hjarðónæmi?

Einn óvissu­þátt­ur­inn er sá hversu margir þurfi að sýkj­ast svo hægt sé að tala um hjarð­ó­næmi sem leiði til þess að smitum muni fækka stór­lega. Sumir vilja meina að 20 pró­sent sam­fé­lags sé nóg en aðrir að talan þurfi að vera mun nærri, jafn­vel um 70 pró­sent. Á þeirri línu eru t.d. sér­fræð­ingar Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar.

Í frétta­skýr­ingu Washington Post segir að ef 65 pró­sent banda­rísku þjóð­ar­innar, sem telur 328 millj­ónir manna, þurfi að smit­ast til að ná hjarð­ó­næmi myndu mögu­lega yfir tvær millj­ónir manna deyja vegna COVID-19.

Og óvissu­þætt­irnir eru fleiri. Lang­tíma­ein­kenni kór­ónu­veiru­sýk­ingar eru nú að koma í ljós. Fólk sem veikt­ist af COVID-19 hefur margt hvert mán­uðum saman verið að fást við verki ýmis­konar og þrek­leysi. Ef sækj­ast á eftir hjarð­ó­næmi án bólu­efnis þarf einnig að taka það með í reikn­ing­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár