Heiðveig rekin úr Sjómannafélaginu

Heiðveig María Ein­ars­dóttir hafði til­kynnt um fram­boð til for­manns í Sjó­manna­fé­lag­inu en henni hefur nú verið vikið úr félag­inu með bréfi.

Heiðveig María Einarsdóttir
Heiðveig María Ein­ars­dóttir Mynd: Þröstur Njálsson

Heiðveig María Ein­ars­dóttir, sem hefur til­kynnt um fram­boð til for­manns í Sjó­manna­fé­lagi Íslands, hefur fengið bréf frá for­ystu félags­ins, und­ir­ritað af Jónasi Garð­ars­syni, for­manni, þar sem henni er vikið úr félag­inu.

Frá þessu er greint á fram­boðs­síðu Heið­veigar Maríu.

„Nú er ég end­an­lega orð­laus, ég vissi að þeir myndu ganga langt ! En að reka mig úr félag­inu er eitt­hvað sem mig hafði ekki getað órað fyrir að gæti gerst , að minnsta kosti ekki í okkar heims­hluta! Ég fékk bréf nú í dag frá for­manni Sjó­manna­fé­lags­ins þar sem hann rak mig úr félag­inu á grund­velli sam­þykktar trún­að­ar­manna­ráðs eftir kröfu fjög­urra full­trúa hins sama ráðs !“ segir Heiðveig María á Facebook.

Í bréfi til hennar segir að hún hafi vegið að heiðri félags­ins með órök­studdum hætti og farið fram gegn félag­inu opin­ber­lega. Þetta er ekki rök­stutt með dæmum, en fjórir félags­menn fóru fram á til­lög­una, sam­kvæmt bréfi.

Hún hefur harð­lega gagn­rýnt for­ystu félags­ins, og meðal ann­ars bent á lausa­tök í starf­semi félags­ins, ekki síst þegar kemur að form­legum lögum og reglum þess.

Í við­tali við 200 mílur, vef um sjáv­ar­út­vegs­mál, sagði hún meðal ann­ars að lög félags­ins hefðu ekki haldið á milli aðal­funda og tekið að breyt­ast í tíma og ótíma. „Í fyrstu geri ég mér ekki al­veg grein fyr­ir því hvað er að eiga sér stað, ekki fyrr en ég fer inn á vef­safn Lands­bóka­safns, þar sem geymd eru af­rit af vef fé­lags­ins eins og hann lít­ur út hverju sinni. Þar sé ég að búið er að bæta inn í lög­in ákvæði um að þeir ein­ir séu kjör­geng­ir til for­mennsku sem greitt hafi til fé­lags­ins í þrjú ár þar á und­an,“ sagði Heiðveig María meðal ann­ars í við­tali við 200 mílur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár