Vilja setja framtíð Reykjavíkurflugvallar í þjóðaratkvæði

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stefnt er að því að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fari fram um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar á allar næstu dögum. Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að hún sé í loka­vinnslu en hann býst fast­lega við því að vera á meðal flutn­ings­manna til­lög­unar. Ekki liggur fyrir hverjir aðrir muni verða flutn­ings­menn hennar en talið er lík­legt að Kristján L. Möller, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem hættir á þingi eftir kom­andi kosn­ingar, verði fyrsti flutn­ings­maður hennar. Engin þing­maður Bjartrar fram­tíðar né Pírata stendur að til­lög­unni. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar er rætt við Þorstein sem seg­ist efast um að hægt verði að kjósa um fram­tíð flug­vall­ar­ins sam­hliða kom­andi þing­kosn­ingum, þótt það væri æski­legt. Hann segir þverpóli­tískan vilja til að setja það í þjóð­ar­at­kvæði hvort að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði áfram í Vatns­mýri.

Var kosið ráðgefandi árið 2001

Lengi hefur verið vilji fyrir því hjá Reykja­vík­ur­borg að loka flug­vell­inum og nýta landið í Vatns­mýr­inni undir fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu borg­ar­innar. Árið 2001 kusu borg­ar­búar í ráð­gef­andi atkvæða­greiðslu um hvort flug­völl­ur­inn ætti að vera í Vatns­mýr­inni eftir árið 2016. Nið­ur­staða þeirrar kosn­ingar var að alls vildu 50,6 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu að hann myndi fara en 49.4 pró­sent að hann yrði áfram.

Nið­ur­staðan var hins vegar ekki bind­andi þar sem borg­ar­stjórn hafði sett skil­yrði um þátt­töku að minnsta kosti helm­ings kosn­inga­bærra manna til að svo yrði. Kjör­sókn var hins vegar 37,1 pró­sent.

Í októ­ber 2013 und­ir­rit­uðu full­trú­ar rík­is­ins, Reykja­vík­ur­borg­ar og Icelanda­ir Group sam­komu­lag um inn­an­lands­flug. Sam­komu­lagið var und­ir­ritað af Jóni Gn­arr, þá borg­ar­stjóri Reykja­víkur, Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þá inn­an­rík­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra og Björgólfur Jó­hanns­son, for­stjóri Icelanda­ir Group. Samkvæmt því var sam­þykkt að ljúka vinnu við end­ur­skoðun á deiliskipu­lagi fyr­ir­Reykja­vík­­­ur­flug­­völl og ákveðið að hann yrði á slíku til 2022 í stað 2016. Í milli­tíð­inni átti að vinna skýrslu um fram­tíð­ar­stað­setn­ingu inn­an­lands­flug­vallar, en hún var unnin af Rögnu­nefnd­inni svoköll­uðu. Skýrslu henn­ar var skilað í fyrra og nið­­ur­­staða nefnd­­ar­innar leysti ekki deilur um fram­­tíð Reykja­vík­­­ur­flug­vallar á nokkurn hátt. Ákvörðun á grund­velli til­­lagna hennar liggur enn ekki fyr­­ir. Þó hefur Icelandair Group greint frá því að félagið hyggi á til­rauna­flug í Hvassa­hrauni til að kanna betur fýsi­leika stað­setn­ing­ar­innar.

Hæstiréttur lætur loka neyðarbraut

Stórt skref í átt að lokun Reykja­vík­ur­flug­vallar var stigið með dómi Hæsta­réttar í júní síð­ast­liðnum, þegar hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið þyrfti að standa við sam­komu­lag sitt við Reykja­vík­ur­borg um að loka norð­aust­ur/suð­vest­ur­-flug­braut­inni, sem stundum er kölluð neyð­ar­braut­in, á Reykj­ar­vík­ur­flug­velli innan 16 vikna.

Lokun braut­­ar­innar hefur staðið til árum sam­­an. Árið 2005 und­ir­­rit­uðu þá­ver­andi borg­­ar­­stjóri Stein­unn Val­­dís Ósk­­ar­s­dóttir og þáver­andi sam­­göng­u­ráð­herra Sturla Böðv­­­ar­s­­son sam­komu­lag um sam­­göng­u­mið­­stöð sem rísa skyldi í Vatns­­­mýr­inni. Hún átti að rísa þar sem braut 06/24 er. Árið 2009 und­ir­­rit­uðu Krist­ján L. Möll­er, þáver­andi sam­­göng­u­ráð­herra, og Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­andi borg­­ar­­stjóri, sam­komu­lag um að brautin ætti að loka, en þó var sá fyr­ir­vari á því sam­komu­lagi að það myndi rísa sam­­göng­u­mið­­stöð við enda brautar 06/24.

Framsóknarmenn vilja taka skipulagsvald af borginni

Þingmenn og borg­ar­full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa lengi barist fyrir veru flug­vall­ar­ins í Vatns­mýr­inni. Fyrir síð­ustu sveita­stjórn­ar­kosn­ingar var fram­boði flokks­ins breytt í fram­boð Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina skömmu fyrir kosn­ingar, þegar fylgi þess mæld­ist afleitt.

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar Alþing­is, til­kynnti í sumar að hann ætli að leggja fram frum­varp á Alþingi þegar það kemur saman aftur sem mundi koma í veg fyrir að norð­aust­ur/suð­vest­ur­-flug­braut­inni verði lok­að.

Hann hefur einnig lagt fram frum­vörp sem fela í sér að skipu­lags­vald sé tekið af Reykja­vík­ur­borg á Reykja­vík­ur­flug­velli og fært til rík­is­ins. Þau hafa ekki hlotið braut­ar­gengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár