Framsóknarmenn reyna aftur að koma Reykjavikurflugvelli undir ríkið

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, mun á morgun leggja fram á ný frum­varp sem felur í sér að skipu­lags­vald sé tekið af Reykja­vík­ur­borg á Reykja­vík­ur­flug­velli og fært til rík­is­ins. Hösk­uldur vill sömu­leiðis kanna hvort ekki eigi að flokka allt inn­an­lands­flug sem almenn­ings­sam­göngur þannig að það geti verið styrkt á þeim for­sendum. Þetta kom fram í máli Hösk­uldar á opnum fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins á Egils­stöðum í gær. Frétta­vef­ur­inn Aust­ur­frétt greinir frá.

Hösk­uldur sagði enn fremur að finni „sífellt meiri og betri stuðn­ing við frum­varpið“ og að það verði aldrei byggður flug­völlur í Hvassa­hrauni, líkt og Rögnu­nefndin svo­kallað mælti með að yrði kannað ítar­lega.

Hösk­uldur hefur áður lagt fram frum­varpið og í fyrra­sumar stóð allur þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins að baki því þegar það var lagt fram. Þá snérist frum­varpið um að ríkið myndi taka yfir skipu­lags­vald á öllum alþjóða­flug­völlum í land­inu, þar á meðal Reykja­vík­ur­flug­velli. Aðal­skipu­lag Reykja­vík­ur­borgar gerir ráð fyrir því að hin svo­kall­aða neyð­ar­braut flug­vall­ar­ins loki í náinni fram­tíð og að flug­völl­ur­inn verði ekki til fram­búðar í Vatns­mýr­inni. Mikil and­staða hefur verið gagn­vart þeim breyt­ingum, meðal ann­ars hjá Fram­sókn­ar­mönnum sem buðu fram með þrýsti­hópi flug­vall­ar­vina í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Reykja­vík.

Ef frum­varpið verður að lögum mun skipu­lags­valdið fær­ast frá borg­inni á hendur inn­an­rík­is­ráð­herra. Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra sagð­ist ekki styðja frum­varpið þegar það var lagt fram í fyrra og sagði að hún gæti ekki séð fyrir sér að sú nið­ur­staða sem boðuð væri í frum­varpi Hösk­uldar væri nið­ur­staða sem sátt yrði um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár