Undirbýr frumvarp til að aftra lokun flugbrautarinnar

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í norðausturkjördæmi, ætlar að leggja fram frumvarp sem koma á í veg fyrir lokun neyðarbrautarinnar svokölluðu.
Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í norð­aust­ur­kjör­dæmi, ætlar að leggja fram frum­varp sem koma á í veg fyrir lokun neyð­ar­braut­ar­innar svoköll­uðu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis, ætlar að leggja fram frum­varp á Alþingi þegar það kemur saman aftur sem mundi koma í veg fyrir að norð­austur/suð­vestur-flug­braut­inni verði lokað. Hæsti­réttur stað­festi á dög­unum dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að braut­inni skyldi lokað í sam­ræmi við sam­komu­lag inn­an­rík­is­ráð­herra við Reykja­vík­ur­borg.

„Frum­varpið myndi festa í lög að flug­völl­ur­inn yrði í óbreyttri mynd, á þeim stað sem hann er, þar til Alþingi hefur tekið ákvörðun um annan val­kost, og enn fremur að sá val­kostur sé til­bú­inn,“ er haft eftir Höskuldi í Morg­un­blað­inu í dag. Hann segir að ekki megi loka „mik­il­væg­asta sam­göngu­mann­virki þjóð­ar­innnar þegar ekk­ert annað er í boði, heldur aðeins vanga­veltur um hvað muni koma í stað­inn.“

Reykja­vík­ur­borg stefndi rík­inu vegna ákvörð­unar Ólafar Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra, um að standa ekki við sam­komu­lag sem gert var haustið 2013, í tíð Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu við Jón Gnarr þegar hann var borg­ar­stjóri, um að loka þriðju flug­braut­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli. Upp­bygg­ing íbúða­hvefis er þegar hafin við aust­ari enda flug­braut­ar­innar sam­kvæmt aðal­skipu­lagi sem unnið var í sam­ræmi við sam­komu­lag borg­ar­innar og rík­is­ins.

Hér­aðs­dómur dæmdi í mál­inu í mars og komst að þeirri nið­ur­stöðu að loka eigi braut­inni. Í dóms­orði sagði að inn­an­rík­is­ráð­herra eigi að end­ur­skoða skipu­lags­reglur til sam­ræmis við þá lok­un. Hæsti­réttur stað­festi dóm hér­aðs­dóms á fimmtu­dag.

For­svars­menn flug­fé­lag­anna sem sinna inn­an­lands­flugi eru einnig sam­tali við Morg­un­blaðið. Þeir eru á sama máli um að lokun þriðju flug­braut­ar­innar í Vatns­mýri muni hafa áhrif á rekstur félaga þeirra. Reykja­vík­ur­flug­völlur sé ekki oft lok­aður; aðeins nokkra daga á ári, en þeim dögum mun fjölga um helm­ing verði flug­braut­inni lokað sam­kvæmt áætl­unum Flug­fé­lags Íslands.

Lokun hefur lengi staðið til

Lokun braut­­ar­innar hefur staðið árum sam­­an. Árið 2005 und­ir­­rit­uðu þá­ver­andi borg­­ar­­stjóri Stein­unn Val­­dís Ósk­­ar­s­dóttir og þáver­andi sam­­göng­u­ráð­herra Sturla Böðv­­­ar­s­­son sam­komu­lag um sam­­göng­u­mið­­stöð sem rísa skyldi í Vatns­­­mýr­inni. Hún átti að rísa þar sem braut 06/24 er. Árið 2009 und­ir­­rit­uðu Krist­ján L. Möll­er, þáver­andi sam­­göng­u­ráð­herra, og Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­andi borg­­ar­­stjóri, sam­komu­lag um að brautin ætti að loka, en þó var sá fyr­ir­vari á því sam­komu­lagi að það myndi rísa sam­­göng­u­mið­­stöð við enda brautar 06/24.

Í októ­ber 2013 und­ir­­rit­aði Hanna Birna, þá inn­­an­­rík­­is­ráð­herra, og Jón Gnarr, þáver­andi borg­­ar­­stjóri, sam­­þykkt um að ljúka vinnu við end­­ur­­skoðun á deiliskipu­lagi fyrir Reykja­vík­­­ur­flug­­völl. Þegar því yrði lokið átti að til­­kynna um lokun braut­­ar­inn­­ar. Í des­em­ber 2013 óskaði inn­­an­­rík­­is­ráðu­­neytið eftir því að und­ir­­bún­­ingur yrði hafin að lokun flug­­braut­­ar­inn­­ar, með þeim fyr­ir­vara að ekk­ert yrði gert fyrr en að Rögn­u­­nefndin svo­­kall­aða myndi skila nið­­ur­­stöðum sín­­um. Skýrslu henn­ar var skilað í fyrra og nið­­ur­­staða nefnd­­ar­innar leysti ekki deilur um fram­­tíð Reykja­vík­­­ur­flug­vallar á nokkurn hátt. Ákvörðun á grund­velli til­­lagna hennar liggur enn ekki fyr­­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár