Að búa með tengdó

Myndir þú vilja búa með tengdó? Mörgum þætti slíkt aldeilis frá­leit upp­á­stunga og myndu segja nei, án þess að hugsa sig um. En hinir eru líka margir sem vel gætu hugsað sér það og í Danmörku fer þeim ört fjölg­andi.

Tengdamóðirinn á myndinni tengist fréttaskýringunni ekki beint.
Tengda­móð­ir­inn á mynd­inni teng­ist frétta­skýr­ing­unni ekki beint. Mynd: Tom Hussey / Getty Images

Miðað við þær fjöl­mörgu sögur sem til eru um tann­hvassar tengda­mömmur mætti halda að þær væru hálf­gerðar grýlur, sí og æ með vönd­inn á lofti, skammist yfir því að ekki sé nægi­lega vel ryksugað, börnin jafn­vel í göt­óttum fötum. Í tengda­mömmu­sög­unum er það oft­ast nær móðir eig­in­manns­ins sem þykir tengda­dóttirin ekki hugsa nógu vel um „dreng­inn“, hann fái ekki sama atlæti og meðan hann var í for­eldra­húsum „hann er eitt­hvað svo fölur og tek­inn.“ Margar sögur eru til um tengda­mæð­urnar sem telja sig þurfa að kenna eig­in­konu son­ar­ins sitt af hverju um „hag­nýt heim­il­is­fræði“ oftar en ekki við tak­mark­aða hrifn­ingu „nem­and­ans“. Ein­hverra hluta vegna eru slíkar sögur af tengda­feðrum og -sonum mun sjald­gæfari. Kannski er skýr­ingin sú að þessi tengda­mömmu­sögu­hefð er gömul, frá þeim tíma þegar heim­ilið var fyrst og fremst vinnu­staður kvenna.

Veru­leik­inn er hins vegar allt annar en í sög­unum af þeim tann­hvössu tengda­mæðrum sem stundum er grín­ast með.

Gamla kynslóðafjölskyldan

Fyrir ekki ýkja­mörgum ára­tugum, ekki síst til sveita, var það algeng­ara en ekki að innan veggja hvers heim­ilis byggju þrjár, jafn­vel fjórar, kyn­slóðir. Afi og amma, for­eldrar og börn, jafn­vel barna­börn. Þetta þótti sjálf­sagt. Þá þótti ekk­ert eðli­legra en að hjónin í hús­inu hefðu for­eldra, að minnsta kosti ann­ars þeirra, á sínum snærum. Stofn­anir fyrir aldr­aða fyr­ir­fund­ust vart og afinn og amman í hús­inu voru sjálf­sagður hluti fjöl­skyld­unnar. Þau kenndu iðu­lega börnum að lesa, sögðu þeim sögur og litu til með þeim heima fyrir. Gamla fólkið, einkum konur en líka oft karlar, var dug­legt að prjóna, til dæmis sokka, vett­linga, nær­föt og peysur. Á heim­ilum þurfti að inna af hendi fjöl­margt sem ekki þekk­ist í dag, matur var að miklu leyti unn­inn heima, í það fór mik­ill tími, það var ekki hlaupið í búð­ina eftir rabar­bara­sult­unni eins og nú er gert. Börnin báru virð­ingu fyrir þeim eldri sem höfðu á móti ánægj­una af því að sjá ung­viðið þroskast og dafna.

Ýmsar ástæður voru fyrir þessum „félags­bú­skap“, einkum þó praktískar.

Þetta breytt­ist smátt og smátt og í dag þykir það síður en svo sjálf­sagt, að minnsta kosti á Vest­ur­löndum, að þeir öldr­uðu búi hjá börnum sínum. Þekktur rit­höf­undur orð­aði það svo að „nú vilja allir vera prí­vat, hanga einir í sinni holu, mesta lagi með mak­anum, og svo heim­il­is­vin­inum: sjón­varp­inu.“ Kannski er þetta aðeins orðum aukið en margir þekkja þessa lýs­ingu.

Í Danmörku fjölgar kynslóðafjölskyldum sem búa saman

Margir þekkja það að flytja tíma­bundið heim til for­eldr­anna, eða tengda­for­eldr­anna. Oft er það milli­bils­á­stand, meðan fólk er „á milli íbúða“.

Þótt víða séu margir bygg­inga­kranar sem ber við himin er hús­næð­is­skortur alþekkt vanda­mál, ekki síst í borgum. Danmörk sker sig ekki úr að þessu leyti, þar er hús­næði dýrt, fram­boðið tak­markað en eft­ir­spurnin mikil. Verst er ástandið í höf­uð­borg­inni Kaup­manna­höfn en þangað flytja í hverjum mán­uði rúm­lega 1100 manns,umfram þá sem flytja burt.

Á síð­ustu árum hefur það gerst að kyn­slóða­heim­ilum hefur fjölgað mikið í Danmörku. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá dönsku þjóð­skránni eru nú rúm­lega ell­efu þús­und kyn­slóða­fjöl­skyldur í land­inu, sam­tals um átta­tíu þús­und manns. Miðað við íbúa­fjölda lands­ins (5.7 millj­ónir) er þetta svo sem ekki ýkja há tala en hefur þó hækkað um þrjá­tíu pró­sent á nokkrum árum.

Af hverju?

Dag­blaðið Jót­land­s­póst­ur­inn hafði fyrir skömmu sam­band við all­stóran hóp fólks, sem ýmist er nýflutt til tengda­fólks, eða hefur búið á kyn­slóða­heim­ili um ára­bil. Blaða­menn­irnir spurðu um ástæður þess að fólk hefði valið þetta fyr­ir­komu­lag. Flestir nefndu fyrst að það væri af praktískum ástæðum, það væri ein­fald­lega mun hag­kvæmara þar sem fleiri deila hús­næð­is­kostn­að­inum, matar- og raf­magns­reikn­ingum o.s.frv. Þetta kemur ekki sér­lega á óvart. En þeir sem spurðir voru nefndu fleira. Barna­fólk nefndi nær allt að það væri mikið öryggi að hafa eldri kyn­slóð á heim­il­inu. Alltaf, eða oft­ast, ein­hver heima þegar börnin kæmu heim úr skóla og það kynnu þau vel að meta. Þegar börnin voru spurð voru svörin á sömu leið, það væri svo gott að ein­hver væri heima þegar skóla­deg­inum lyki. ,Afi og amma hafa alltaf tíma og af því að þau eru heima gerir ekk­ert til þó pabbi og mamma komi seinna heim“ var algeng skýr­ing þeirra ungu.

Eldra fólkið sagði líka að það kynnt­ist unga fólk­inu miklu betur en ef það byggi ann­ars staðar, jafn­vel í öðrum lands­hluta.

Þegar spurt var hvort þessu fylgdu ekki líka ókostir svör­uðu flestir neit­andi. Sögðu að þeir hefðu ekki ákveðið að stíga þetta skref nema vera nokkurn veg­inn vissir um að þetta væri rétt ákvörðun.

Fast­eigna­salar segja að þeim fjölgi stöðugt sem leiti að hús­næði sem sé nægi­lega stórt fyrir pabba, mömmu, börn og tengda­for­eld­rana. Danskar ferða­skrif­stofur segja sömu­leiðis að ferðir þar sem kyn­slóða­fjöl­skyldur ferð­ist saman njóti æ meiri vin­sælda.

Fjöl­skyldu­ráð­gjafi sem Jót­land­s­póst­ur­inn ræddi við sagð­ist ekki undr­ast að æ fleiri skuli velja kyn­slóða­fjöl­skyldu­formið. Það sé hins vegar nauð­syn­legt að koma sér saman um ákveðnar reglur, til að tryggja að allir séu sáttir. „Það gengur ekki að tengda­mamma verði gerð að vinnu­konu, slíkt fyr­ir­komu­lag er dæmt til að mis­takast“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár