LEGO klúðrið í Suður-Kóreu

Allt hefur gengið á aft­ur­fót­unum hjá Legoland í Suður-Kóreu síðan opnað var í maí. Aðsóknin hefur verið langt undir vænt­ingum og bygg­inga­fyr­ir­tækið komið í þrot. Skemmti­garð­ur­inn var reistur á einu merkasta forn­leifa­svæði lands­ins.

Legoland Korea er tíundi Lego-skemmtigarðurinn í heiminum og sagður sá næststærsti. Hann er á við fjóra og hálfa Smáralind að stærð.
Legoland Korea er tíundi Lego-skemmti­garð­ur­inn í heim­inum og sagður sá næst­stærsti. Hann er á við fjóra og hálfa Smára­lind að stærð. Mynd: EPA

Margir þekkja mál­tækið „Róm var ekki byggð á einum degi“ sem gjarna er notað um verk sem vandað er til og taka langan tíma. Hið síð­ar­nefnda á sann­ar­lega við um Legoland Korea en frá því að samn­ingur um fram­kvæmdir við garð­inn var und­ir­rit­aður og þangað til opnað var liðu 11 ár.

Skemmti­garð­ur­inn er á Hajung-eyju í Geumho-fljóti um 150 kíló­metrum fyrir sunnan höf­uð­borg­ina Seúl. Í Gangwondo-hér­aði. Legoland Korea er fyrsti erlendi skemmti­garð­ur­inn, ef svo má að orði kom­ast, sem stofn­settur hefur verið í Suður-Kóreu.

Legoland Korea er tíundi Lego-skemmti­garð­ur­inn í heim­inum og sagður sá næst­stærsti. Svæðið er sam­tals um 280 þús­und fer­metrar, til sam­an­burðar má nefna að gólf­flötur Smára­lindar er 62 þús­und fer­metrar. Í skemmti­garð­inum eru meðal ann­ars 150 „hót­el­her­bergi“ gerð úr Legokubbum.

Sáu fyrir sér þúsundir starfa

Stofnun skemmti­garðs eins og Legoland Korea krefst mik­ils und­ir­bún­ings. Árið 2010 komu fyrst fram hug­myndir um að reisa Lego-skemmti­garð á Hajung-eyju. Stjórn­völd sáu þarna tæki­færi til að efla atvinnu­lífið á svæð­inu, margir myndu fá vinnu í skemmti­garð­inum og við ýmis konar þjón­ustu, á veit­inga­stöðum, hót­elum o.s.frv.

Áætlanir gerðu ráð fyrir að sam­tals yrðu til um níu þús­und störf í kringum starf­semi Legoland Korea. Áætlanir gerðu jafn­framt ráð fyrir að tvær millj­ónir gesta kæmu árlega í skemmti­garð­inn fyrstu tvö til þrjú árin en færi svo fjölg­andi ár frá ári.

Fornminjar í jörðu

Íbúar á svæð­inu í nágrenni hins fyr­ir­hug­aða skemmti­garðs töldu sig vita að á Hajung-eyj­unni, þar sem Legoland Korea átti að rísa, væru forn­minjar í jörðu. Frá­sagnir um þær höfðu borist milli kyn­slóða öldum saman.

Þegar jarð­vegs­rann­sóknir vegna fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda hófust kom í ljós að sá grunur var á rökum reistur. Og forn­minjarnar reynd­ust bæði meiri og merki­legri en nokkurn hafði grunað. Eitt merki­leg­asta forn­minja­svæði í land­inu var að finna nákvæm­lega þar sem Legoland Korea hafði verið val­inn staður. Þúsundir mörg hund­ruð ára gam­alla gripa var að finna í jörðu á svæð­inu. Kóreskir forn­leifa­fræð­ingar sögðu svæðið ómet­an­legan menn­ing­ar­arf sem ekki mætti fyrir nokkurn mun eyði­leggja.

Fjölmörg sam­tök áhuga­fólks víða um heim mót­mæltu fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum og sögðu það ganga glæpi næst að leggja svæðið á Hajung eyju undir skemmti­garð. „Hverjum dytti í hug að ryðja burt Sto­nehenge risa­björg­unum, nú eða Parthenon á Akropol­is­hæð í Aþenu, eða píramíd­unum í Egypta­landi, til að reisa Legoland? Ekki nokkrum lif­andi manni. Og slíkar hug­myndir myndu kalla á mót­mæli um allan heim,“ sagði í sam­þykkt sam­taka áhuga­fólks í Suður-Kóreu.

Mótmæli og tafir

Samtökin Volunt­ary Agency Network of Korea (Vank) með 120 þús­und með­limi í Suður-Kóreu og 30 þús­und til við­bótar víða um heim skor­uðu á Unesco, Menn­ing­ar­mála­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, að kanna hvort hægt væri með ein­hverjum ráðum að koma í veg fyrir að Legoland Korea yrði reist á Hajung-eyj­unni.

Allt kom fyrir ekki. Hart var deilt um skemmti­garð­inn í hér­aðs­stjórn­inni (þar sitja 46) sem á end­anum sam­þykkti fram­kvæmd­irnar, sem þá voru reyndar löngu hafnar.

26. mars síð­ast­lið­inn fór fram, í ausandi rign­ingu, sér­stök opn­un­ar­at­höfn í Legoland Korea, meðal gesta þar var danski sendi­herr­ann í Suður- Kóreu. Allan apr­íl­mánuð var svo verið að „prufu­keyra“ tæki og tól í skemmti­garð­inum sem var form­lega opn­aður 5. maí.

Fjöl­miðlar í Suður-Kóreu fjöll­uðu ítar­lega um opn­un­ina en gagn­rýnin hélt líka áfram. Meðal ann­ars lýstu margir efa­semdum um að til­koma Legoland Korea myndi draga úr atvinnu­leysi á svæð­inu þar sem næstum 90 pró­sent starfa í skemmti­garð­inum væru bundin við sum­ar­tím­ann. Sömu­leiðis að gestir myndu ekki sækja veit­inga­staði utan Legoland Korea eða versla í búðum heima­manna.

Ekki allt í lukkunnar velstandi

Fljót­lega eftir að Legoland Korea var opnað kom í ljós að áætl­anir um aðsókn­ina voru byggðar á mik­illi bjart­sýni, íbúar lands­ins flykkt­ust ekki í skemmti­garð­inn. Margir voru ósáttir við stað­ar­valið, aðgöngu­mið­arnir sagðir alltof dýrir, sömu­leiðis gjald í ein­stök tæki og verð á veit­ingum him­in­hátt, eins og kom­ist var að orði í dag­blað­inu The Korea Times.

Það hafa sem sé ekki komið jafn miklir pen­ingar í kass­ann og von­ast hafði verið til. Nýlega hafa komið fram upp­lýs­ingar sem reitt hafa íbúa Gangwondo-hér­aðs til reiði. Gangwondo er eitt fámenn­asta hérað Suður-Kóreu, íbú­arnir innan við tvær millj­ónir.

Ábyrgð og gjaldþrot

Fyr­ir­tækið sem byggði Legoland Korea heitir Iwon Jeil Cha. Það var stofnað til að byggja skemmti­garð­inn. Gangwondo hérað er eig­andi að tæp­lega helm­ings hlut í fyr­ir­tæk­inu og til að fjár­magna bygg­ingu skemmti­garðs­ins fékk fyr­ir­tækið lán frá Seðla­banka Suður-Kóreu.

Láns­upp­hæðin sam­svar­aði 22 millj­örðum íslenskra króna. Bankinn sam­þykkti lánið vegna þess að stjórn Gangwondo hér­aðs gekkst í ábyrgð fyrir lán­inu og það þýddi að láns­hæf­is­matið var A1 sem er það hæsta í land­inu. Lánið átti að greiða upp fyrir lok sept­em­ber sl. en Iwon Jeil Cha gat ekki borgað og nú hefur fyr­ir­tækið verið lýst gjald­þrota.

Alvarlegar afleiðingar

Gjald­þrot Iwon Jeil Cha hefur að lík­indum mikil áhrif. Það hefur lengi tíðkast að stór fyr­ir­tæki í Suður-Kóreu fái lán frá seðla­banka lands­ins með ábyrgð rík­is­rek­ins ábyrgða­sjóðs, Korea Credit Guarantee Fund. Í könnun meðal for­svars­manna 600 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins kom fram að þeir teldu að fram­vegis yrði mun erf­ið­ara að fá lán, sem þó væru bráð­nauð­syn­leg til að „halda hjól­unum“ gang­andi.

Skömmu eftir að upp­lýs­ing­arnar um gjald­þrot Iwon Jeil Cha komu fram í dags­ljósið var til­kynnt að Legoland Korea yrði lokað í vetur en opnað aftur í mars. Stjórn­endum skemmti­garðs­ins hafði láðst að til­kynna starfs­fólk­inu um lok­un­ina og það yrði launa­laust í vetur. Og fékk ekki lof­orð um áfram­hald­andi störf þegar aftur yrði opnað.

For­svars­menn Merlin-fyr­ir­tæk­is­ins sem rekur Legoland Korea sögðu í tölvu­pósti til danska dag­blaðs­ins Politi­ken að vand­ræði bygg­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Iwon Jeil Cha hefðu engin áhrif á rekstur skemmti­garðs­ins. „Við erum bjart­sýnir“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár