Guðmundur Andri: „Þórunn mun sem sagt leiða listann og það styð ég“

Fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar mun leiða lista flokks­ins í Kraganum. Núver­andi odd­viti sest í annað sætið.

Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir. Mynd: BHM

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir mun leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, fjöl­menn­asta kjör­dæmi lands­ins, í næstu þing­kosn­ingum. Frá þessu greinir núver­andi odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu, Guð­mundur Andri Thorsson, í stöðu­upp­færslu á Facebook. Guð­mundur Andri ætlar að taka annað sætið á list­anum.

Þórunn hefur verið for­maður Banda­lags háskóla­manna (BHM) frá árinu 2015. Þar áður var hún fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar. Hún sat á þingi fyrir flokk­inn frá árinu 1999 til 2011 og var umhverf­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Geirs H. Haarde, sem sat við völd frá 2007-2009. Eftir að hún lét af þing­mennsku var hún um skeið aðstoð­ar­maður Árna Páls Árna­sonar, þáver­andi for­manns flokks­ins og gerð­ist síðar, líkt og áður sagði, fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar.

[adspot]Í stöðu­upp­færslu sinni segir Guð­mundur Andri að ýmsir hafi sóst eftir því að leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í kjör­dæm­inu. „Ég lét þess getið við Upp­still­ing­ar­nefnd að ég væri til í að sitja áfram, til þjón­ustu reiðu­bú­inn; ég teldi mjög lík­legt að við fengjum tvo þing­menn næst og sagð­ist til­bú­inn til að berj­ast fyrir því að end­ur­heimta annað sætið, eins og ég hafði end­ur­heimt fyrsta sætið síð­ast. Frétta­blaðið segir það fáheyrt í frétt í dag að odd­viti færi sig um sæti og virð­ist telja það firn mikil að rúm­lega sex­tugur karl standi upp fyrir sér yngri konu. Það held ég að sé ofmælt; minni til dæmis á það þegar Ögmundur Jónasson stóð upp fyrir Guðfríði Lilju Grét­ars­dóttur í Kraganum.

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir mun sem sagt leiða list­ann og það styð ég. Hún hefur verið öfl­ugur málsvari launa­fólks und­an­farin ár en var áður þing­maður kjör­dæm­is­ins og ráð­herra. Hún verður öflug í fyrsta sæti. Og ég verð öfl­ugur í öðru sæti. Að ekki sé nú talað um unga fólkið sem kemur svo í næstu sætum á eftir.“

Þegar liggur fyrir hvernig listi Sam­fylk­ing­ar­innar verður í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur. Þær Helga Vala Helga­dóttir og Kristrún Frosta­dóttir munu sitja í odd­vita­sætum. Helga Vala hefur verið þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður síðan árið 2017. Hún er auk þess for­maður vel­ferð­ar­nefnd­ar. Kristrún er á ný á lista hjá flokknum en hún starf­aði áður sem aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir gekk í raðir Sam­fylk­ing­ar­innar fyrr á þessum þing­vetri eftir að hafa setið á þingi um nokk­urt skeið sem óháður þing­mað­ur. Hún var kjörin á þing fyrir Vinstri­hreyf­ing­una – grænt fram­boð árið 2016 og hefur setið sem þing­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis allt frá því hún var kjörin á þing og í til­kynn­ingu sem hún sendi frá sér í síð­ari hluta jan­úar á þessu ári sagð­ist hún vilja leiða flokk­inn í því kjör­dæmi. Í kom­andi kosn­ingum verður hún hins vegar önnur á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suð­ur.

Nýr á lista Sam­fylk­ing­ar­innar verður Jóhann Páll Jóhanns­son sem starfað hefur sem blaða­maður um ára­bil. Hann tekur annað sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur. Á eftir þeim Rósu Björk og Jóhanni Páli koma þau Viðar Egg­erts­son, leik­stjóri, í þriðja sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Dag­björt Hákon­ar­dótt­ir, lög­fræð­ing­ur, í þriðja sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár