Ungt fólk um skuggakosningarnar: „Svindl að eldra fólk sé að ákveða framtíð unga fólksins“

Vaka Orra­dóttir, nem­andi í Mennta­skól­anum í Hamra­hlíð, ræddi við aðra fram­halds­skóla­nema um kosn­inga­þátt­töku ungs fólks, skoð­anir þeirra á stjórn­málum og spurði hvort þau myndu kjósa ef þau gætu, hvað þá og af hverju.

Skugga­kosn­ingar fóru fram í fram­halds­skólum lands­ins dag­ana 10. til 13. októ­ber og verða nið­ur­stöður birtar eftir að kjör­stöðum lokar á morgun, laug­ar­dag. Þá verður hægt að bera nið­ur­stöður Alþing­ins­kosn­inga saman við nið­ur­stöður ung­menna sem hafa ekki enn náð aldri til að kjósa.

Skugga­kosn­ingar voru verk­efni styrkt af inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, mennta- og menn­inga­mála­ráðu­neyt­inu og Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga með það að marki að auka kosn­inga­þátt­töku ungs fólks. Í skugga­kosn­ing­unum gafst ungu fólki tæki­færi til þess að kynna sér mál­efni og koma sínum skoð­unum á fram­færi. Kosn­ing­arnar voru á vegum lýð­ræð­isátaks­ins Ég kýs, sem vinnur að því að efla áhuga ungs fólks á stjórn­málum, og hvetja þau til að kjósa eftir upp­lýstri ákvörðun.

Kosn­inga­þát­taka á Íslandi er að minnka með árunum, en sam­kvæmt skráðri kjör­sókn eftir aldri í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014 mættu aðeins 45,4% fólks á aldr­inum 20-24 ára á kjör­stað. Samt sem áður hefur margt ungt fólk mik­inn áhuga á stjórn­málum og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár