Saknar skýrari aðgerðaáætlunar frá ríkisstjórninni

Viðbrögð stjórn­valda í þeirri stöðu sem upp er komin þurfa að vera skýr, afger­andi og fum­laus, að sögn Þor­steins Víglunds­sonar þing­manns Við­reisnar.

„Við, líkt og aðrar þjóðir, ein­fald­lega vitum ekki hvað er framundan. Þetta er óvenju­leg staða vegna þess­arar miklu óvissu sem henni fylgir og afskap­lega erfitt að segja til um hvað næstu vikur og mán­uðir munu bera í skauti sér,“ sagði Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar í umræðum um aðgerðir stjórn­valda vegna COVID-19 far­ald­urs­ins á Alþingi í dag.

Þing­mað­ur­inn brýndi rík­is­stjórn­ina til dáða í ræðu sinni og kall­aði eftir auknum skýr­leika þaðan hvað aðgerðir varðar. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, sem flutti þing­inu munn­lega skýrslu um aðgerðir stjórn­valda í efna­hags­málum, kynnti engar nýjar aðgerðir til við­bótar við það sem kynnt var á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­inar á þriðju­dag­inn.

[links]

Þor­steinn sagði vand­ann í raun vera tví­þættan nú, þar sem efna­hags­nið­ur­sveifla hefði haf­ist fyrir rúmu ári síðan og rík­is­stjórnin hefði ekki mætt henni nægi­legri festu af rík­is­stjórn­inni. Ferða­þjón­ustan hefði verið í hörðu árferði í meira en eitt ár, sem gerði höggið nú þyngra en ella.

„Þess vegna þurfa við­brögðin núna að vera skýr, þau þurfa að vera afger­andi, þau þurfa að vera fum­laus,“ sagði Þor­steinn og bætti við að þessa skýr­leika sakn­aði hann enn í yfir­lýs­ingum stjórn­valda um aðgerðir vegna veirunna.

Hann sagði að það hefði verið hug­hreystandi að heyra for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra segja í þing­inu í dag að rík­is­stjórnin myndi gera „allt sem þyrfti“ til að bregð­ast við afleið­ingum COVID-19 á hag­kerfið, en það væri ekki nóg.

[adspot]

Þing­mað­ur­inn sagði blaða­manna­fund rík­is­stjórn­ar­innar á þriðju­dag hafa verið „inni­stæðu­lít­inn“ um aðgerðir vegna veirunnar og bar hann saman við skýrar aðgerðir sem fjár­mála­ráð­herra Bret­lands kynnti þing­inu í Westminster í gær.

Þor­steinn sagði að ef rík­is­stjórnin kynnti ekki skýr­ari aðgerðir á næstu dögum væri hætta á að við­brögð fyr­ir­tækja við efna­hags­högg­inu yrðu öfga­full, sem myndi enn dýpka nið­ur­sveifl­una.

Lagði hann meðal ann­ars til að ríkið gripi til aðgerða til að hjálpa fyr­ir­tækjum að fækka fólki og að tíma­bundin úrræði yrðu virkjuð til að færa fólk yfir á atvinnu­leys­is­bætur, svo fyr­ir­tækin yrðu enn á sínum stað þegar veiru­far­ald­ur­inn og efna­hags­nið­ur­sveiflan yrði liðin hjá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár