Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Alþjóðadagur mannréttinda

Alþjóðadagur mannréttinda

Hugtakið mannréttindi hefur tvær stefnur, annars vegar að forðast og hins vegar að sækjast eftir. Mannréttindi verða ekki öflug nema með linnulausum lærdómi og reynslu. Mannréttindi virðast ekki vera eðlisleg viðbrögð heldur fremur margar lærðar dyggðir.

1. Mannréttindi felast í því að læra að forðast illsku, kúgun og ofbeldi og temja sér að vinna gegn þessari grimmd hvenær og hvar sem er með aðferðum sem skapa ekki enn meira ofbeldi heldur draga úr því. Friðarmenning er mannréttindamegin.

2. Mannréttindi felast í kærleika sem felst í hjartahlýju gagnvart náunganum, samlíðun með öðrum og lönguninni til að gera líf annarra bærilegt. Flestöllum reynist auðvelt að elska sína nánustu en kærleikur þýðir elsku og virðingu á milli óskyldra og ólíkra hópa. Að bera hag óviðkomandi fyrir brjósti og að vera viljugur til að gera eitthvað sem skiptir máli fyrir aðra – það er kærleikur - sem veitir jafnframt vernd gegn ofbeldi.

Kærleikurinn brýtur reglur til að rétta náunganum hjálparhönd, hann er ekki smámunasamur og tapar sér ekki í smáaletrinu.

Mannréttindi styðja ævinlega lífið sjálft

Mannréttindi virða engin landamæri, stöður, ríkidæmi né neitt annað sem notað er til að draga línur á milli einstaklinga eða hópa. Auðvelt er að bera kennsl á mannréttindi, þau styðja ævinlega lífið og vinna gegn allri kúgun, eyðileggingu og dauða.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni