Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira verðtryggt á einum mánuði frá því fyrir faraldur

Frá vor­inu 2020 og fram á síð­ast­liðið haust greiddu sjóðs­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða upp 112 millj­arða króna af verð­tryggðum lánum umfram það sem þeir tóku af slíkum. Síðustu tvo mán­uði hafa þeir tekið fleiri slík lán en þeir hafa borgað upp.

Frá vor­inu 2020 og fram á síð­ast­liðið haust greiddu sjóðs­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða upp 112 millj­arða króna af verð­tryggðum lánum umfram það sem þeir tóku af slíkum. Síðustu tvo mán­uði hafa þeir tekið fleiri slík lán en þeir hafa borgað upp.

Hrein ný útlán líf­eyr­is­sjóða lands­ins til sjóðs­fé­laga sinna vegna íbúð­ar­kaupa námu 4,9 millj­örðum króna í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Þar af lán­uðu sjóð­irnir tæp­lega 1,2 millj­arða króna í verð­tryggð lán. Það er hæsta útlána­upp­hæð sem þeir hafa lánað í slíkum lánum innan mán­aðar frá mars 2020, eða við upp­haf kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Nóvember var annar mán­uð­ur­inn í röð sem verð­tryggð útlán líf­eyr­is­sjóð­anna fór yfir einn millj­arð króna. Þar áður höfðu ný verð­tryggð útlán, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum, verið nei­kvæð í 26 mán­uði sam­fleytt, eða síðan í maí 2020. Samtals höfðu lán­tak­endur þá greitt upp 112,1 millj­arða króna af verð­tryggðum lánum umfram það sem þeir tóku að láni.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Seðla­banka Íslands um stöðu líf­eyr­is­sjóða lands­ins.

Staðan breyst hratt

Ástæða þess að verð­tryggð lán féllu úr tísku er til­tölu­lega ein­föld: Frá byrjun árs 2019 hefur verið hag­kvæmara að taka óverð­tryggð lán á Íslandi en verð­tryggð. Lág verð­bólga framan af tíma­bil­inu sam­hliða því að vextir voru lækk­aðir skarpt bjó til þessa stöð­u. Verð­tryggðu lánin hafa þó alltaf þann kost fyrir suma að greiðslu­byrði af þeim er lægri, sem gerir þau eft­ir­sókn­ar­verð­ari fyrir fólk með lægri tekjur til að það stand­ist greiðslu­mat lán­veit­enda. Á móti þarf sá hópur að sætta sig við að verð­bætur vegna verð­bólgu leggj­ast á höf­uð­stól láns­ins. Fyrir vikið greið­ist höf­uð­stól­inn mun hægar niður og í mik­illi verð­bólgu getur hann hækkað skarpt.

Þessi þróun leiddi af sér miklar hækk­anir á íbúða­verði. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur það hækkað um meira en 50 pró­sent frá byrjun árs 2020.

Staðan hefur breyst hratt hér­lendis. Um tíma árið 2020 var verð­bólga undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði og ofan í þá stöðu voru stýri­vextir lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent. Þeir höfðu aldrei verið lægri.

Nú er staðan önn­ur. Verð­bólgan er 9,6 pró­sent. Stýri­vextir eru komnir í sex pró­sent sem skilað hefur óverð­tryggðum íbúða­lána­vöxtum í að fara að nálg­ast átta pró­sent að jafn­aði og óverð­tryggðir vextir stærstu bank­anna þriggja, sem halda á 72 pró­sent af úti­stand­andi íbúða­lán­um, hafa ekki verið jafn háir síðan 2010.

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) kemur fram að ef verð­bólgu­spá Seðla­banka Íslands, sem spáir því að hún muni hjaðna niður í 4,4 pró­sent næsta árið, gengur eftir og vextir á hús­næð­is­lánum hald­ist óbreyttir þá „borgar sig nú frekar að taka verð­tryggt lán en óverð­tryggt og hefur sú verið raunin frá því í júní síð­ast­liðn­um.“

Hins vegar eru óverð­tryggð lán enn hag­kvæm­ari ef verð­bólga á eftir að hjaðna hægar en í spánni.

Ekki ráð­legg­ing

HMS tekur sér­stak­lega fram að í þessu felist ekki ráð­legg­ing um lán­tök­ur. Það geti borgað sig að taka óhag­kvæmara lán þegar tekið sé til­lit til ann­arra þátta. Þar er sér­stak­lega nefnt að verð­tryggð lán geri fólki kleift að kaupa dýr­ari íbúðir en óverð­tryggð. „Meiri eigna­myndun vegna hækk­andi íbúða­verðs getur vegið á móti hærri fjár­magns­kostn­aði. Þetta á sér­stak­lega við um fólk sem hefur tök á að kaupa sér íbúð með verð­tryggðu láni en ekki með óverð­tryggðu því það ræður ekki við greiðslu­byrð­ina.“

Í ágúst gerð­ust þau tíð­indi að að hrein ný verð­tryggð útlán voru jákvæð í fyrsta sinn síðan í byrjun árs 2020. Það þýðir að útlán voru hærri en upp­greiðslur og óreglu­legar inn­borg­an­ir. Í skýrsl­unni kemur fram að verð­tryggð lán hafi unnið hratt á síðan þá. Í októ­ber voru þau tæp­lega 47 pró­sent allra nýrra útlána og því nokkurn veg­inn á pari við óverð­tryggð lán í vin­sæld­um.

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands hafði lýst yfir áhyggjum af þess­ari mögu­legu þróun í júlí síð­ast­liðn­um. Í fund­ar­gerð hennar frá þeim tíma sagði að nefndin teldi þá auknar líkur á að heim­ilin væru að leita í verð­­tryggð lán til að lækka greiðslu­­byrði til skamms tíma. „Töldu nefnd­­ar­­menn að sú þróun gæti verið vara­­söm. [...] Verð­­bólgan legð­ist beint ofan á höf­uð­stól lán­anna sem gæti dregið veru­­lega úr við­­náms­­þrótti skuld­­settra lán­tak­enda.“

Verðtryggð lán enn meirihluti lána

Þegar vextir voru í sögu­legu lág­marki á Íslandi á árunum 2019 og fram til maí­mán­aðar í fyrra, þegar stýri­vextir stóðu í 0,75 pró­sent, flykkt­ust heim­ili lands­ins í óverð­tryggð lán.

Það hefur lækkað hlut­­deild verð­­tryggðra lána af úti­stand­and­andi lánum en sam­kvæmt nýj­ustu útgáfu rits­ins Pen­inga­mál, sem Seðla­banki Íslands heldur úti, er hún samt sem áður en um 56 pró­­sent. Meiri­hluti úti­stand­andi lána er því verð­tryggð­ur.

Þegar stýri­vextir fóru að hækka – þeir hafa nú verið hækk­aðir tíu sinnum í röð og standa í sex pró­sentum – hækk­aði greiðslu­byrði þeirra sem voru með óverð­tryggð lán gríð­ar­lega. Í skýrslu HMS kemur fram að frá miðju ári 2020 hafi greiðslu­byrði fast­eigna­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 34,7 pró­sent ef miðað er við verð­tryggð lán og heil 105,1 pró­sent ef miðað er við óverð­tryggð lán.

Stór hluti heim­ila með veru­lega auk­inn kostnað

Um fjórð­ungur allra íbúða­lána eru óverð­tryggð og á breyti­legum vöxt­um. Sá hópur tekur því á sig þessar vaxta­hækk­­­anir af fullum þunga.

Í skýrslu HMS kemur fram að greiðslu­­byrði óverð­­tryggðra lána væri 63.600 krónur fyrir hverjar tíu millj­­ónir króna sem teknar eru að láni. Það þýðir að fyrir þann sem er með 50 milljón króna lán er greiðslu­­byrðin á mán­uði 318.000 krón­­ur. Í maí í fyrra, þegar stýri­vextir voru í sög­u­­legu lág­­marki, var greiðslu­­byrði af láni upp á sömu upp­­hæð 188.500 krón­­ur. Hún hefur því hækkað um 129.500 krónur á einu og hálfu ári, eða um 69 pró­­sent. Það er aukin greiðslu­­byrði upp á rúm­­lega 1,5 millj­­ónir króna á ári.

Ef horft er styttra aftur í tím­ann, til maí 2022, hefur greiðslu­­byrðin af ofan­­greindu láni hækkað um 89.500 krónur á mán­uði, eða um 39 pró­­sent.

Ofan á þetta eru 4.451 heim­ili með óverð­­tryggð lán á föstum vöxtum sem komi til end­­ur­­skoð­unar næsta árið. Fjöldi heim­ila lýkur líka fast­­vaxta­­tíma­bili sínu á árinu 2024 en alls koma 340 millj­­arðar króna í óverð­­tryggðum íbúða­lánum til vaxta­end­­ur­­skoð­unar á þessum tveimur árum. Á árinu 2025 koma svo lán upp á 250 millj­­arða króna í við­­bót til end­­ur­­skoð­un­­ar, en þorri þeirra lána eru óverð­­tryggð.

Því er ljóst að stór hluti heim­ila í land­inu annað hvort býr við veru­­­lega auk­inn hús­næð­is­­­kostnað eða sér fram á veru­­­lega aukn­ing­u.

Þriðjungur nær ekki endum saman

Þessi staða kom skýrt fram í nýlegri könnun Maskínu sem frétta­stofa Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis greindi frá á gaml­árs­dag. Í henni sögð­ust 29,4 pró­sent lands­manna annað hvort ekki ná endum saman og vera að safna skuldum (7,3 pró­sent) eða hafa átt í erf­ið­leikum með að ná endum saman und­an­farið en væru þó ekki farin að safna skuldum (22,1 pró­sent). Rúmur þriðj­ungur þjóð­ar­innar, 35,1 pró­sent nær endum saman um hver mán­aða­mót en lítið umfram það. Sama hlut­fall nær mjög vel endum saman og getur sparað um flest mán­aða­mót.

Við blasir að tekju­lægstu hóp­arnir eru þeir sem erf­ið­ast eiga með að ná endum saman. Í lok nóv­em­ber var greint frá því að 80 hafi sótt um aðstoð vegna fjár­hags­vanda til umboðs­manns skuld­ara í mán­uð­inum á undan, sem er um þriðj­ungi yfir með­al­tali mán­að­anna á undan. Í frétt RÚV um málið kom meðal ann­ars fram að öryrkjar sem leitað höfðu til umboðs­manns skuld­ara á fyrstu rúmu tíu mán­uðum síð­asta árs voru að með­al­tali 3500 krónur í mínus eftir að hafa greitt öll föst útgjöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár