Trump ætlar að banna alla nýja innflytjendur

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ætlar að gefa út til­skipun sem bannar tíma­bundið öllum útlend­ingum sem vilja búa og starfa í Banda­ríkj­unum að gera það. Til­gang­ur­inn er að verja banda­rískt vinnu­afl frá sam­keppni erlendis frá.

Donald Trump á blaðamannafundi sem haldinn var í Hvíta húsinu í gær.
Donald Trump á blaða­manna­fundi sem hald­inn var í Hvíta hús­inu í gær. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, greindi frá því á Twitter í nótt að hann ætl­aði sér að loka Banda­ríkj­unum fyrir fólki ann­ars­staðar að sem hefði hug á því að flytja til lands­ins, til dæmis til að starfa. Þetta seg­ist hann ætla að gera til að verja banda­rískt vinnu­afl fyrir sam­keppni erlendis frá þegar að efna­hagur lands­ins fer að jafna sig af áhrifum sem hann hefur orðið fyrir vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar.

Trump skrif­aði á Twitter að hann hygð­ist skrifa undir for­seta­til­skipun um að fresta öllum inn­flutn­ingi fólks til Banda­ríkj­anna til að ná fram þessu mark­miði sínu.

Ljóst má vera að til­skip­unin mun ekki hafa nein telj­andi áhrif til skamms tíma þar sem að 150 lönd í heim­inum hafa þegar sett ein­hvers­konar skorður á ferða­lög og 50 lönd hafa algjör­lega lokað landa­mærum sínum tíma­bundið. Auk þess eru miklar hömlur á allt efna­hags­legt gang­verk víð­ast hvar í heim­inum sem dregur nær alveg úr líkum þess að fólk sé að flytja sig á milli landa í leit af störfum.

For­set­inn sætti þó strax mik­illi gagn­rýni vegna yfir­lýs­ing­ar­innar fyrir að vera að nýta sér neyð­ar­á­stand til að inn­leiða póli­tíska hug­mynda­fræði sem hann aðhyllist og berst fyrir, en yfir­stand­andi aðstæður kalli ekki á. Í umfjöllun The New York Times er sagt að yfir­lýs­ingin séu nýjasta til­raun Trump til að inn­sigla Banda­ríkin frá umheim­inum.

[adspot]Búist sé við að form­leg til­skipun um að banna afgreiðslu nýrra grænna korta, sem veita land­vist­ar­leyfi, eða atvinnu­leyfa gætu sam­kvæmt upp­lýs­ingum blaðs­ins verið lögð fram í næstu viku. Áætlunin gangi út á að rík­is­stjórn Trump þyrfti ekki lengur að sam­þykkja umsókn frá neinum erlendum rík­is­borg­arar sem vildi búa eða starfa í Banda­ríkj­unum um óskil­greinda fram­tíð. Með því myndi hið lög­lega inn­flytj­enda­kerfi Banda­ríkj­anna verða tekið úr sam­bandi á sama hátt og Trump hefur lengi barist fyrir að kerfi ólög­legra inn­flytj­enda í Banda­ríkj­unum verði. Ekki liggur fyrir enn sem komið er á hvaða laga­grund­velli Trump ætlar sér að ráð­ast í þessar aðgerðir.

Umfang vega­bréfs­á­rit­ana sem veittar hafa verið til útlend­inga sem vilja flytja til Banda­ríkj­anna hefur dreg­ist veru­lega saman í valda­tíð Trump. Árið 2016, þegar hann var kjör­inn, voru 617.752 slíkar veittar. Í fyrra voru þær 462.422 og höfðu því dreg­ist saman um fjórð­ung.

Í takti við áherslur hans frá upphafi

For­seta­tíð Trump hefur ein­kennst mjög af auknum þjóð­ern­is­legum áherslum og ríkum vilja hans til að tak­marka flæði inn­flytj­enda til lands­ins. Hug­mynda­fræðin gengur út á að setja Banda­ríkin í fyrsta sætið (e. „America first“) og að gera Banda­ríkin stór­kost­leg að nýju (e. „Make America Great Again“). Á meðal helstu kosn­inga­lof­orða hans voru að byggja múr við landa­mæri Mexíkó til að ná fram því mark­miði. Sá múr hefur ekki verið reistur. Auk þess hefur Trump staðið í fjölda deilna við við­skipta­lönd Banda­ríkj­anna um gild­andi við­skipta­samn­inga þeirra á milli sem honum hefur fund­ist halla á sína lands­menn. Þar ber hæst að nefna nágrann­anna Mexíkó og Kanada ann­ars vegar og Kína hins vegar. Skýr vilji for­set­ans hefur verið að fram­leiðsla af ýmsum toga flytj­ist í auknum mæli heild­rænt aftur til Banda­ríkj­anna, enda hefur hann notið mik­illar hylli í þeim ríkjum þar sem iðn­aður var áður und­ir­stöðu­at­vinnu­vegur en mörg störf hafa horfið til ann­arra landa sam­hliða alþjóða­væð­ing­unni.

Á dag­legum blaða­manna­fundi vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, þar sem Trump fer iðu­lega mik­inn um ýmis mál­efni, í gær tal­aði for­set­inn meðal ann­ars um að hann vildi að vörur yrðu full­gerðar aftur í Banda­ríkj­unum. Þ.e. að snúið yrði af þeirri braut alþjóða­væð­ingar að íhlutir yrðu fram­leiddir þar sem það er hag­stæð­ast og getan til þess er mest, en þess í stað yrðu þeir allir fram­leiddir innan landamæra Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár