„Öfgar til hægri og vinstri eru eins og hver önnur tískusveifla“

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir að fram­tíðin ráð­ist á miðj­unni. Það viti fram­sókn­ar­fólk og telur hann að flestir Íslend­ingar viti það innst inni.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Fram­tíðin ræðst á miðj­unni. Það vitum við og það held ég að flestir Íslend­ingar viti innst inni. Öfgar til hægri og vinstri eru eins og hver önnur tísku­sveifla. Öfgar til hægri nær­ast á öfgum til vinstri, þær ýkja ástand og sundra sam­fé­lögum.“

Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í ræðu sinni á mið­stjórn­ar­fundi flokks­ins í morgun.

Hann sagði jafn­framt að stefna flokks­ins boð­aði umbætur en ekki bylt­ingar. „Við leiðum saman ólík öfl og ólíka hags­muni til að sam­fé­lagið verði á morgun betra en það var í gær. Veturinn verður erf­iður fyrir marga en með krafti sam­fé­lags­ins, með krafti sam­vinn­unnar þá mun hann verða auð­veld­ari. Og eftir vetur kemur vor og þá verðum við von­andi aftur farin að faðma fólkið okkar og getum horft grímu­laus fram á veg­inn.“

Ætlar einhver að græða og hámarka hagnað sinn í krísu sem þessari?

Sigurður Ingi gerði á fund­inum vaxta­hækk­anir að umtals­efni. „Seðla­bank­inn sendi bönk­unum skýr skila­boð í vik­unni og lækk­aði stýri­vexti en fram að því höfðu bank­arnir hækkað vext­ina. Vaxta­hækkun bank­ana er ekki til þess fallin að hvetja til fjár­fest­inga – fjár­fest­inga sem þarf til að kom­ast út úr krís­unni. Hvar liggur þá ábyrgð bank­ana? Bank­arnir segja auk­inn fjár­magns­kostnað vera að sliga þá – gott og vel. Við lækk­uðum reyndar banka­skatt­inn hraðar til að lækka kostnað bank­anna.

En ég spyr á móti: Ætlar ein­hver að græða og hámarka hagnað sinn í krísu sem þess­ari? Hér verða allir að koma að borð­inu sem eru aflögu­færir. Bank­arnir líka. Það er grund­völlur þess að snúa hag­vexti úr mínus í plús og fá hjólin aftur til að snú­ast. Seðla­bank­inn hefur staðið við sitt, rík­is­sjóður hefur sett fram aðgerðir og stuðn­ings­lán verða fram­lengd. Nú er komið að bönk­unum að sýna á spilin.“

Vill hækka endurgreiðslur í 35 prósent

Þá sagð­ist Sigurður Ingi sjá stórt tæki­færi í því að styðja enn frekar við kvik­mynda­gerð­ina með því að hækka end­ur­greiðslur í 35 pró­sent líkt og gert væri í þeim löndum sem keppa við Ísland um verk­efni.

„Það skref, í við­bót við metn­að­ar­fulla kvik­mynda­stefnu sem Lilja Dögg hefur lagt fram, myndi gera kvik­mynda­gerð­ina enn öfl­ugri atvinnu­veg fyrir Ísland. Þar með yrði lagður horn­steinn að fjórðu stoð efna­hags­lífs­ins, stoð skap­andi greina. Öflugur kvik­mynda­iðn­aður styður fram­sókn ferða­þjón­ust­unnar. Ferða­venjukönnun sýnir að tæp­lega 40 pró­sent af þeim ferða­mönnum sem hingað koma taka ákvörðun um það eftir að hafa séð Ísland á skjánum eða á tjald­inu.

Kvik­mynda­gerðin styður líka inn­lenda mat­væla­fram­leiðlsu bæði beint og óbeint og nýt­ist í sam­eig­in­legu frá­sögn­ina af hreina land­inu – með hreint vatn, heil­næmt loft og örugg mat­væli og nátt­úru sem á engan sinn líka,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár