Einkaneysla, bankahagnaður, íbúðarkaup, dauði og drykkja juku tekjur ríkissjóðs

Tekjur rík­is­sjóðs á fyrstu níu mán­uðum árs­ins voru tíu pró­sent hærri en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Auknar skatt­tekjur og sala á hlut í Íslands­banka eru ástæðan.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og félagar hans í ríkisstjórninni geta verið sátt með að hallinn í ár stefnir í að vera mun minni en áætlað var.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og félagar hans í rík­is­stjórn­inni geta verið sátt með að hall­inn í ár stefnir í að vera mun minni en áætlað var. Mynd: Bára Huld Beck

Afkoma rík­is­sjóðs var mun betri en áætl­anir gerðu ráð fyrir á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021. Reiknað hafði verið með halla upp á 189 millj­arða króna en hann reynd­ist vera 138 millj­arðar króna, eða 51 millj­arði króna betri en áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Ástæðan er fyrst og fremst sú að tekjur rík­is­sjóðs voru tíu pró­sent hærri en reiknað hafði verið með í áætl­unum. Frá byrjun árs og til loka sept­em­ber skil­aði 621 millj­arður króna sér sem tekjur í rík­is­kass­ann, en rík­is­fjár­mála­á­ætlun hafði gert ráð fyrir því að tekj­urnar yrðu 565 millj­arðar króna á tíma­bil­inu. Tekj­urnar voru því 56 millj­örðum krónum meiri en búist hafði verið við.

Útgjöldin voru aðeins hærri en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir, alls tæp­lega fimm millj­örðum króna, og fjár­muna­tekjur voru rúm­lega níu millj­örðum krónum lægri en stefnt hafði verið að.

Þetta kemur fram í upp­gjöri rík­is­sjóðs fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins 2021 sem gert var opin­bert í gær.

Virðisaukaskattur langt yfir áætlun

Auknar tekjur eru fyrst og síð­ast vegna þess að rík­is­sjóður inn­heimti 45,5 millj­arða króna meira í skatt­tekjur en til stóð. Auk þess voru fjár­fest­inga­hreyf­ingar jákvæðar og nam hreint inn­streymi þeirra á tíma­bil­inu 12,9 millj­örðum króna, aðal­lega vegna sölu á 35 pró­sent hlut í Íslands­banka í sumar. Búast má við því að virði 65 pró­sent eign­ar­hlutar rík­is­ins í Íslands­banka muni hækka umtals­vert um kom­andi ára­mót þegar hann verður í fyrsta sinn met­inn á mark­aðsvirði, en bank­inn var skráður á markað í júní. Mark­aðsvirði hlut­ar­ins er sem stendur 162,5 millj­arðar króna.

[adspot]Mestu mun­aði um það að virð­is­auka­skattur sem leggst á flestar vörur og þjón­ustu skil­aði 23,3 millj­örðum krónum meira í kass­ann en búist var við, sem er merki um að einka­neysla hér­lendis hafi verið mun kröft­ugri en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir. Alls voru tekjur rík­is­sjóðs af virð­is­auka­skatti 40 pró­sent hærri á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 en á sama tíma­bili árið áður.

Hagnaður bankanna skilaði auknum skatttekjum

Nokkrir smærri skatt­stofnar skil­uðu mun hærri fjár­hæðum en búist var við í rík­is­sjóð.

Þar má til að mynda nefna sér­staka skatta sem leggj­ast á fjár­mála­fyr­ir­tæki. Áætlanir gerðu ráð fyrir að þeir myndu skila 2,7 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann frá byrjun árs og til loka sept­em­ber en raunin varð sú að tekjur vegna þeirra voru 7,3 millj­arðar króna, eða 170 pró­sent hærri en reiknað var með.

[links]Þar munar mestu um það sem í dag­legu tali er kallað banka­skattur. Hann leggst á þá banka sem skulda meira en 50 millj­arða króna. ​​Alls borga fimm fjár­mála­fyr­ir­tæki skatt­inn en þorra hans greiða stóru bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki. Þessir þrír bankar hafa skilað miklum hagn­aði það sem af er ári, en á fyrstu níu mán­uðum árs­ins nam sam­an­lagður hagn­aður þeirra um 60 millj­örðum króna. Það er meiri hagn­aður en þeir hafa sýnt innan árs síðan árið 2015.

Banka­skatt­ur­inn var lækk­aður í fyrra úr 0,376 í 0,145 pró­sent. Fyrir vikið lækk­aði álagður banka­skattur sem rík­is­sjóður lagði á bank­ana um 6,1 millj­arð króna vegna árs­ins 2020 og var 4,8 millj­arðar króna. Það er lækkun upp á 56,2 pró­sent. Þótt álagður banka­skattur hafi hækkað mikið milli ára vegna gríð­ar­legrar hagn­að­ar­aukn­ingar hjá stærstu bönkum lands­ins er ljóst að ef banka­skatt­ur­inn hefði ekki verið lækk­aður þá hefðu tekjur rík­is­sjóðs af honum verið miklu hærri en raun ber vitni.

Til við­bótar við banka­skatt­inn greiða Fjár­mála­fyr­ir­tæki, verð­bréfa­fyr­ir­tæki og trygg­inga­fé­lög fjár­sýslu­skatt og sér­stakan fjár­sýslu­skatt. Stofn fjár­sýslu­skatts eru allar teg­undir skatt­skyldra launa og þókn­ana og er hann 5,5 pró­sent. Sérstaki fjár­sýslu­skatt­ur­inn er svo 6,0 pró­sent við­bótar tekju­skattur á tekju­stofn umfram einn millj­arð króna.

Dauðinn og drykkjan tekjuberandi

Tekjur af erfða­fjár­skatti, áfeng­is­gjaldi og stimp­il­gjöldum voru líka umtals­vert meiri en áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Erfða­fjár­skattur er tíu pró­sent af heild­ar­verð­mæti allra fjár­hags­legra verð­mæta og eigna sem liggja fyrir við and­lát arf­leif­anda að frá­dregnum skuldum og útfar­ar­kostn­aði.

Skatt­leys­is­mörk erfða­fjár­skatts hækk­uðu úr 1,5 í fimm millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót en þau eiga þó ekki við þegar um fyr­ir­fram­greiddan arf er að ræða.

Áætlanir gerðu ráð fyrir að erfða­fjár­skattur myndi skila 2,6 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann á fyrstu níu mán­uðum árs­ins en raunin varð sú að tekjur vegna hans voru 5,4 millj­arðar króna, eða rúm­lega tvisvar sinnum hærri en reiknað var með.

Stimp­il­gjöld, sem greið­ast aðal­lega þegar fast­eigna­við­skipti eiga sér stað, skil­uðu 1,2 millj­arða króna meiri tekjum en gert var ráð fyrir, eða 30 pró­sent umfram áætlun.

Þá inn­heimt­ust 2,1 millj­arður króna meira í áfeng­is­gjöld en reiknað var með eða alls 17,2 millj­arðar króna. Það eru 14 pró­sent meiri tekjur vegna áfeng­is­kaupa en áætlað var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár