Tveir framkvæmdastjórar hættir hjá Arion banka í vikunni

Enn ein breyt­ingin er framundan á fram­kvæmda­stjórn Arion banka. Nú hefur verið til­kynnt um að fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga­sviðs muni láta af störfum í næstu viku.

Rakel Ótt­ars­dóttir, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga­tækni­s­viðs Arion banka frá 2016, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá bank­anum. Síðasti starfs­dagur hennar verður föstu­dag­inn 20. sept­em­ber, eða eftir átta daga.

Rakel hefur starfað hjá bank­anum frá árinu 2005 og setið í fram­kvæmda­stjórn bank­ans frá árinu 2011 þegar hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra þró­unar- og mark­aðs­sviðs.

Fyrir þremur dögum síðan var greint frá því að Jón­ína S. Lár­us­dótt­ir, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs Arion banka um ára­bil, muni láta af störfum hjá bank­anum föstu­dag­inn 13. sept­em­ber. Ekki var til­greint í frétta­til­kynn­ingu frá bank­anum af hverju Jón­ína er að láta að störf­um.

Jón­ína hefur verið fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs og setið í fram­kvæmda­stjórn bank­ans í um níu ár eða frá nóv­em­ber 2010.

Frétta­blaðið greindi frá því í gær að Birna Hlín Kára­dóttir, sem starfað hefur sem yfir­lög­fræð­ingur Fossa mark­aða í tæp fjögur ár, hafi sagt upp störfum hjá verð­bréfa­fyr­ir­tæk­inu og væri á leið til starfa hjá Arion banka. Hún tæki þar við hlut­verki Jónínu.

Umtals­verðar hrær­ingar hafa verið í fram­kvæmda­stjórn Arion banka á þessu ári. Bene­dikt Gísla­son var ráð­inn í starf banka­stjóra bank­ans í júní­lok og tók við því starfi 1. júlí síð­ast­lið­inn. Hann tók við af Hös­k­uldi H. Ólafs­syni, sem hafði verið banka­stjóri í níu ár. Hösk­uldur fékk 150 millj­óna króna starfs­loka­greiðslu þegar hann hætti störf­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár