Hagnaður sjávarútvegs 287 milljarðar á sjö árum

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins hafa upp­lifað for­dæma­laust góð­æri eftir hrun. Alls hafa fyr­ir­tækin greitt eig­endum sínum 54,3 millj­arða í arð frá 2010, þar af 38,2 millj­arða vegna áranna 2013-2015. Á sama tíma hafa veiði­gjöld lækkað mikið.

Íslenskur sjáv­ar­út­vegur hagn­að­ist um 287 millj­arða króna á árunum 2009 til 2015. Helm­ingur þess hagn­aðar féll til á síð­ustu þremur árum. Á þessu tíma­bili hafa skuldir atvinnu­veg­ar­ins sömu­leið­ils lækkað um sam­tals 161 millj­arð króna, og stóðu í 333 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót. Það gerð­ist þrátt fyrir stór­aukna fjár­fest­ingu fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi á und­an­förnum tveimur árum, þegar þau fjár­festu sam­tals fyrir 53 millj­arða króna.

Atvinnu­veg­ur­inn hefur reynst ákaf­lega arð­bær fyrir eig­endur útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna. Alls nema arð­greiðslur til þeirra frá byrjun árs 2010 til loka síð­asta árs 54,3 millj­örðum króna. Tæpur helm­ingur þeirra upp­hæðar, 38,2 millj­arðar króna, var greiddur til þeirra vegna áranna 2013, 2014 og 2015. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tölum sem Deloitte vinnur árlega upp úr árs­reikn­ingum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og kynntar voru á fundi Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sem haldin var í gær.

Í sam­an­tekt­inni kemur ekki fram hvert eigið fé sjáv­ar­út­veg­ar­ins var í lok síð­asta árs, en það nam 185 millj­örðum króna í lok árs 2014. Þá hafði það auk­ist um 265 millj­arða króna frá lokum árs 2008. Ljóst er á bættri skulda­stöðu, auk­inni fjár­fest­ingu og miklum hagn­aði sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna að eig­in­fjár­staðan hefur styrkst um tugi millj­arða króna í fyrra.

Veiðigjöld lækkað um átta milljarða

Þessi for­dæma­lausi hagn­aður sem atvinnu­veg­ur­inn er að upp­lifa er að eiga sér stað á sama tíma og veiði­gjöld, sú renta sem útgerðir greiða fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni, hefur dreg­ist mikið saman.

Árið 2012 voru sam­þykkt lög sem skikk­uðu útgerðir til að borga mun meira til sam­fé­lags­ins en þær höfðu áður gert í formi veiði­gjalda. Vegna fisk­veiði­árs­ins 2012/2013 greiddi útgerðin 12,8 millj­arða króna í rík­is­sjóð vegna veiði­gjalda. Lands­sam­bandi íslenskra útvegs­manna (LÍÚ), sem nú heitir Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), barð­ist hat­ramm­lega gegn laga­setn­ing­unni. Í júní 2012 boð­aði sam­bandið til að mynda til mik­illa mót­mæla á Aust­ur­velli. Sjómenn og útgerð­ar­menn fjöl­menntu til að taka þátt í þeim. Skipum íslenskra útgerða var siglt í land til að áhafnir þeirra gætu verið með og blásið var í þokulúðra skip­anna þegar inn í höfn­ina var komið. Mótmælin skil­uðu engum árangri.

Vorið 2013 tók ný rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar við völdum á Íslandi og í stefnu­yf­ir­lýs­ingu hennar kom fram að lög um veiði­gjöld yrðu end­ur­skoðuð. Það varð eitt af fyrstu verkum þeirrar rík­is­stjórnar að sam­þykkja lög sem lækk­uðu veiði­gjöld, og voru þau sam­þykkt 5. júlí 2013. Samhliða var boðað að til stæði að leggja fram frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun laga um veiði­gjöld. Sú heild­ar­end­ur­skoðun hefur enn ekki átt sér stað.

Vegna þeirra breyt­inga sem ráð­ist hefur verið í hafa verða veiði­gjöld sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiða til rík­is­sjóðs lækkað mikið. Á næsta fisk­veiði­ári verða þau 4,8 millj­arðar króna, eða átta millj­örðum króna minna en þau voru fisk­veiði­árið 2012/2013.

Til við­bótar við veiði­gjald greiða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins einnig umtals­vert í tekju­skatt og trygg­inga­gjald. Samkvæmt sam­an­tekt Deloitte hafa tekju­skatts­greiðslur á síð­ustu sex árum til að mynda numið sam­tals 36,5 millj­örðum króna. Á sama tíma hefur útgerðin greitt 35,2 millj­arða króna í trygg­inga­gjald. Samtals námu bein opin­ber útgjöld sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna – veiði­gjöld, tekju­skattur og trygg­inga­gjald – 22,6 millj­örðum króna í fyrra, sem er nákvæm­lega sama upp­hæð og greidd var af þeim árið 2014.

Á borðinu við stjórnarmyndun

Ljóst er að framundan er enn ein lotan í átök­unum um hvernig eigi að fá not­endur þjóð­ar­auð­lind­ar­innar í sjónum til að greiða sann­virði til sam­fé­lags­ins fyrir afnot af henni. Málið var enn og aftur bit­bein í nýliðnum kosn­ingum og flokkar með meiri­hluta á þingi eru með það á stefnu­skránni að arð­ur­inn af nýt­ingu auð­lind­ar­innar eigi að gagn­ast fólk­inu í land­inu með meira afger­andi hætti en nú er. Og það verður fyr­ir­ferð­ar­mikið í þeim stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum sem nú standa yfir.

Það var reynt að ráð­ast í breyt­ingar á síð­asta kjör­tíma­bili. Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, lagði fram frum­varp um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu snemma árs 2015. Ljóst var frá fyrstu mín­útu að engin sátt yrði um frum­varp milli stjórn­ar­flokk­anna og snér­ust deilur þeirra fyrst og síð­ast um hver ætti að fara með for­ræði yfir fisk­veiði­kvót­anum, ríkið eða útgerðin. Á end­anum var frum­varpið ekki lagt fram.

Sigurður Ingi Jóhannsson reyndi að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu og kvótasetja makríl. Hvorugt tókst. Hann er í dag forsætisráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son reyndi að breyta fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og kvóta­setja mak­ríl. Hvorugt tókst. Hann er í dag for­sæt­is­ráð­herra.

Frumvarp um úthlutun mak­ríl­kvóta var ekki síður umdeilt. Upp­haf­lega stóð til að kvóta­setja mak­ríl og gefa útgerð­unum sem veitt höfðu mak­ríl­inn heim­ildir til að veiða hann. Í stað þess að úthluta kvót­anum var­an­lega til útgerð­anna, líkt og áður hafði verið gert, þá átti að fara ákveðna milli­leið og úthluta honum til sex ára með fram­leng­ing­ar­á­kvæði. Miðað við hefð­bundna reikni­reglu var heild­ar­verð­mæti mak­ríl­kvót­ans á bil­inu 150 til 170 millj­arðar króna. Því stóð til að gefa völdum útgerðum þau verð­mæti án end­ur­gjalds.

Í stuttu máli varð allt vit­laust. Ríf­lega 51 þús­und manns skrif­uðu undir áskorun á for­seta Ís­lands að vísa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hverjum þeim lög­um ­sem Alþingi sam­þykkir þar sem fisk­veiði­auð­lindum væri ráð­stafað til lengri tíma en eins árs, á meðan ekk­ert ákvæði um ­þjóð­ar­eign á auð­lindum er í stjórn­ar­skrá.

Á end­anum komst mak­ríl­frum­varpið ekki út úr atvinnu­vega­nefnd og hefur ekki verið lagt fram á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár