Hólmfríður sækist eftir því að leiða VG í Suðurkjördæmi

Hólm­fríður Árna­dóttir, skóla­stjóri Sand­gerð­is­skóla, hefur ákveðið að bjóða sig fram til þess að leiða lista Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi til kosn­inga á næsta ári.

Hólmfríður Árnadóttir vill leiða VG í Suðurkjördæmi í næstu kosningum.
Hólm­fríður Árna­dóttir vill leiða VG í Suð­ur­kjör­dæmi í næstu kosn­ingum. Mynd: Aðsend

Hólm­fríður Árna­dóttir, skóla­stjóri Sand­gerð­is­skóla, hefur ákveðið að bjóða sig fram til þess að leiða lista Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi til kosn­inga á næsta ári. Ari Trausti Guð­munds­son, eini þing­maður VG í kjör­dæm­inu, til­kynnti í gær að hann ætl­aði ekki að gefa kost á sér á nýjan leik.[links]

Flokk­ur­inn fékk 11,8 pró­sent fylgi í kjör­dæm­inu í kosn­ing­unum árið 2017.

Hólm­fríður til­kynnti um fram­boð sitt á Facebook undir kvöld, en hún hefur hefur verið virk í starfi VG und­an­farin ár og er for­maður svæð­is­fé­lags Vinstri grænna á Suð­ur­nesjum.

Hún segir að það skipti miklu að „íbúi af fjöl­menn­asta og fjöl­breyttasta svæði kjör­dæm­is­ins leiði list­ann með jafn­rétti, jöfnuð, lýð­ræði, sjálf­bærni, fjöl­menn­ingu og rétt­læti að leið­ar­ljósi.“

„Hér á Suð­ur­nesjum þurfum við að leggja ríka áherslu á að efla heil­brigð­is­þjón­ustu við íbúa. Þá þarf einnig að horfa til fjöl­breytt­ari atvinnu­mögu­leika og sam­fé­lags þar sem vel er stutt við fjöl­menn­ingu og menntun í öllu kjör­dæm­inu með umhverfi, mann­líf og verndun nátt­úr­unnar efst í huga,“ segir Hólm­fríður í fram­boðstil­kynn­ingu sinni.

Ljóst er að Vinstri græn munu tefla fram nýjum and­litum í odd­vita­sætum í að minnsta kosti þremur kjör­dæmum næsta haust, en auk Ara Trausta í Suð­ur­kjör­dæmi hefur Stein­grímur J. Sig­fús­son, sem leitt hefur lista flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi und­an­farna tvo ára­tugi, til­kynnt um að hann ætli að hætta á þingi og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, sem leiddi lista flokks­ins í Kraganum, sagði sig úr VG fyrr á árinu.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár