Danir stefna á grænt innanlandsflug fyrir 2030

For­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur vill „gera flugið grænt“. Mette Frederik­sen til­kynnti í nýársávarpi sínu um mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar sem felst í að ekk­ert jarð­efna­elds­neyti verði notað í inn­an­lands­flugi fyrir 2030. Útfærslan liggur hins vegar ekki fyrir.

Danir stefna á að hætta notkun jarðefnaeldsneytis í innanlandsflugi fyrir 2030. Vetnisknúnar flugvélar frá Airbus gætu leitt til þess að markmiðið náist.
Danir stefna á að hætta notkun jarð­efna­elds­neytis í inn­an­lands­flugi fyrir 2030. Vetnisknúnar flug­vélar frá Airbus gætu leitt til þess að mark­miðið náist. Mynd: EPA

„Að ferð­ast er að lifa og þess vegna fljúgum við,“ sagði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra í nývarpsávarpi sínu til dönsku þjóð­ar­innar þar sem hún kynnti fyr­ir­heit rík­is­stjórn­ar­innar um að hætta notkun á jarð­efna­elds­neyti í öllu inn­an­lands­flugi fyrir árið 2030. Hún við­ur­kenndi þó að útfærsla mark­miðs­ins liggi ekki ljós fyrir.

Frederik­sen sagði í ávarpi sínu ekki vilja ein­blína á kór­ónu­veiruna heldur dásam­legu Danmörku og öll þau stóru tæki­færi sem blasa við. Tæki­færin fel­ast einna helst í við­brögðum við lofts­lags­vánni að mati Frederik­sen. Lofts­lags­mark­mið Dana fel­ast meðal ann­ars í að draga úr kolefn­islosun um 70 pró­sent fyrir árið 2030, sam­an­borið við losun árið 1990.

„Þegar önnur lönd heims­ins eru of sein að bregð­ast við verður Danmörk að taka for­yst­una setja markið hátt,“ sagði Frederik­sen. Hún við­ur­kenndi að það mun reyn­ast erfitt að ná „grænu inn­an­lands­flugi“ en rann­sak­endur og fyr­ir­tæki vinni í kapp við tím­ann að úrlausnum.

Meðal fyr­ir­tækja sem vinna að lausnum sem falla inn í áætl­anir Dana er flug­véla­fram­leið­and­inn Airbus sem hefur til­kynnt um vetnisknúnar flug­vélar sem verða teknar í notkun fyrir árið 2035. Ef vetnið er fram­leitt með end­ur­nýj­an­legri orku gæti þetta verið leiðin fyrir Dani til að ná mark­miðum um jarð­efna­elds­neyt­is­laust inn­an­lands­flug. Ekki er þó ljóst hvort tæknin verði til staðar, og kostn­aður við­ráð­an­legur, fyrir árið 2030.

Markmið um græn inn­an­lands­flug eru ekki alveg ný af nál­inni. Svíar hafa sett sér sams konar mark­mið fyrir 2030 og gera sér einnig vonir um að hætta notkun jarð­efna­elds­neytis í milli­landa­flugi fyrir 2045. Á sama tíma hyggj­ast Frakkar banna inn­an­lands­flug þar sem hægt er að ferð­ast til áfanga­staðar með lest á minna en tveimur og hálfri klukku­stund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár