Sókn ráðherra í skipulagsvaldið umhverfis flugvelli milduð

Sveit­ar­fé­lög munu hafa aðkomu að mótun til­lagna um skipu­lags­reglur flug­valla, sem verða rétt­hærri en skipu­lag sveit­ar­fé­laga. Skipu­lags­reglur eiga þó ekki að binda hendur sveit­ar­fé­laga meira en flug­ör­yggi krefst.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Á loka­spretti þings­ins í síð­ustu viku var frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra um breyt­ingar á loft­ferða­lögum sam­þykkt. Frum­varpið tók nokkrum breyt­ingum í með­förum þings­ins og meðal ann­ars ákvæðum um skipu­lags­reglur flug­valla, sem einna helst höfðu vakið athygli, breytt nokkuð.

Það var gert til þess að koma til móts við gagn­rýni m.a. Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Reykja­vík­ur­borgar þess efnis að verið væri að svipta sveit­ar­fé­lög skipu­lags­vald­inu í kringum flug­velli.

Í frum­varp­inu, eins og Sigurður Ingi hafði lagt það fram, var gengið út frá því að ráð­herra myndi fá vald til þess að setja skipu­lags­reglur, sem ætlað væri að ganga framar skipu­lags­á­ætl­unum sveit­ar­fé­laga. Lýsti ráð­herra því þannig er hann vakti athygli á þessu atriði á sam­skipta­miðl­inum Instagram í fyrra að frá því að skipu­lags­regl­urnar tækju gildi væru sveit­ar­fé­lög bundin af efni þeirra.

Andstaða bæði Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Reykja­vík­ur­borgar við þessi áform ráð­herra með frum­varp­inu hafði legið ljós fyrir lengi, eða allt frá því að frum­varpið var sett fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda haustið 2020.

Engar breyt­ingar voru hins vegar gerðar á þessu atriði frum­varps­ins áður en það var fyrst lagt fram á þingi í upp­hafi árs 2021 og ekk­ert breytt­ist heldur hvað þetta varðar áður en ráð­herra end­ur­flutti málið á því þingi sem nú er lokið.

Sögðu allan rökstuðning skorta frá ráðuneytinu

Reykja­vík­ur­borg og Samtök íslenskra sveit­ar­fé­laga gagn­rýndu það í við­bót­ar­um­sögnum um frum­varpið í maí að inn­við­a­ráðu­neytið hefði, þrátt fyrir beiðnir þar um, ekki enn fært fram nein rök fyrir því af hverju þörf væri á að skerða skipu­lags­vald sveit­ar­fé­laga með þeim hætti sem boðað var með frum­varp­inu.

[adspot]

Í bréfi frá Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra og Ebbu Schram borg­ar­lög­manni fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar var lagt til að orða­lag­inu í frum­varp­inu yrði breytt og að kveðið yrði á um að ráð­herra yrði bund­inn af skipu­lags­á­ætl­unum sveit­ar­fé­laga við setn­ingu skipu­lags­reglna flug­valla, og að við breyt­ingar á svæðis-, aðal- og deiliskipu­lagi sveit­ar­fé­lags skyldi ráð­herra end­ur­skoða skipu­lags­reglur flug­vallar og sam­ræma þær við gild­andi skipu­lag sveit­ar­fé­lags. Þetta væri í takt við það sem venjan hefði verið.

Sett í hendur starfshóps að móta tillögur

Það varð þó ekki nið­ur­staðan í með­förum þing­nefnd­ar­innar, en mála­miðlun var sett fram og sam­þykkt á Alþingi af öllum þing­mönnum sem greiddu atkvæði, en þing­flokkur Pírata sat hjá við atkvæða­greiðsl­una.

Nið­ur­staðan hjá meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar varð sú að fela sér­stökum starfs­hópi ráð­herra, með þátt­töku Sam­göngu­stofu, rekstr­ar­að­ila flug­vallar og við­kom­andi sveit­ar­fé­laga, að vinna til­lögu að skipu­lags­reglum flug­vallar og ann­ast sam­ráð vegna þeirra.[links]

„Telur meiri hlut­inn eðli­legt að í reglu­gerð verði kveðið nánar á um hlut­verk slíkra starfs­hópa og að jafn­ræðis verði gætt við skipan þeirra þannig að í þeim eigi sæti að lág­marki einn full­trúi frá hverju sveit­ar­fé­lagi sem málið varðar en þó aldrei færri en tveir full­trúar sveit­ar­fé­laga. Þá er lagt til að skýrt sé kveðið á um að mark­mið skipu­lags­reglna flug­valla sé að tryggja flug­ör­yggi með full­nægj­andi hætti með sem minnstum tak­mörk­unum á skipu­lagi þeirra svæða kringum flug­völl­inn sem regl­urnar taka til,“ sagði um þetta atriði í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta nefnd­ar­innar.

Meiri­hlut­inn taldi að með þessum hætti mætti „tryggja sveit­ar­fé­lögum beina þátt­töku í und­ir­bún­ingi og gerð skipu­lags­regln­anna og að skipu­lags­regl­urnar feli ekki í sér meiri tak­mark­anir á skipu­lagi svæða í nágrenni flug­valla en nauð­syn­legt er vegna flug­ör­ygg­is­sjón­ar­miða.“

Allir nefnd­ar­menn í umhverfis- og sam­göngu­nefnd nema Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata voru skrif­aðir fyrir þessu nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans og því má segja að mál­inu hafi verið lent með nær þverpóli­tískri sátt í nefnd­inni.

Vonast til að breytingar meirihlutans nægi

Andrés Ingi sagði í minni­hluta­á­liti sínu um málið að það hefði verið ætlun Sigurðar Inga „að gera ákvæðið að lögum, þvert á vilja sveit­ar­fé­lag­anna sem átti að hrifsa skipu­lags­valdið af, án þess að til­raun væri gerð til að ná fram mála­miðlun með sam­ráði í aðdrag­anda fram­lagn­ingar máls­ins“ og að þetta hefði verið eitt af hinum stóru álita­efnum sem nefndin þurfti að leysa úr þegar málið var til með­ferðar.

Hann sagði afstöðu meiri­hluta nefnd­ar­innar byggj­ast á því að fund­ist hefði „ásætt­an­leg lausn sem tryggir að sveit­ar­fé­lög verði ekki svipt skipu­lags­valdi sínu“ og bætti því við að hann von­aði að breyt­ingar meiri­hlut­ans nægðu, þrátt fyrir að telja „ástæðu til að fylgj­ast áfram með fram­kvæmd ákvæð­is­ins“ eftir að lögin gengju í gildi „í því skyni að leita full­vissu um að lögin séu ekki skað­leg gagn­vart skipu­lags­valdi sveit­ar­fé­lag­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár