Lántakar flýja lífeyrissjóðina – Uppgreiðslur umfram ný lán 5,1 milljarður í júlí

Breytt vaxta­kjör bank­anna, í kjöl­far lækk­aðra stýri­vaxta, hafa leitt til þess að sjóðs­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða eru að greiða upp hús­næð­is­lán hjá sjóð­unum í miklu magni og taka ný lán hjá bönkum í stað­inn. Eðl­is­breyt­ing hefur orðið á hús­næð­is­lána­mark­aði.

Lántakendur hafa verið að hlaupa frá lífeyrissjóðunum, og til viðskiptabanka, undanfarna mánuði.
Lán­tak­endur hafa verið að hlaupa frá líf­eyr­is­sjóð­unum, og til við­skipta­banka, und­an­farna mán­uði. Mynd: Pexels

Sjóðs­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða greiddu upp lán hjá þeim fyrir rúm­lega 5,1 millj­arð króna umfram það sem sjóð­irnir lán­uðu út í ný lán í júlí mán­uði. Þetta er í annað sinn frá því í byrjun árs 2009 sem að upp­greiðslur líf­eyr­is­sjóða­lána eru meiri en nýjar lán­tökur, en lánin eru tekin af sjóðs­fé­lögum til hús­næð­is­kaupa. Hinn mán­uð­ur­inn sem þetta hefur gerst var júní 2020, en þá námu upp­greiðslur 333 millj­ónum krónum umfram ný veitt lán. Upp­greiðslur lána í júlí voru því rúm­lega fimmtán sinnum meiri en í júní­mán­uði.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðla­banka Íslands, en sam­an­tektir hans á nýjum útlánum líf­eyr­is­sjóða til heim­ila ná ein­ungis aftur til jan­úar 2009.

Alls voru greidd upp verð­tryggð lán hjá líf­eyr­is­sjóðum fyrir 3.858 millj­ónum krónum meira en slík lán voru tek­in. Í fyrsta sinn frá því að Seðla­bank­inn fór að halda utan um tölur um útlán líf­eyr­is­sjóða greiddu sjóðs­fé­lagar upp meira af óverð­tryggðum lánum en þeir tóku hjá sjóð­unum. Munurinn var alls 1.270 millj­ónir króna.

Hröð vaxtalækkun banka

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu er nokkuð ein­föld, vaxta­lækk­anir stóru bank­ana þriggja: Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka, á hús­næð­is­lánum á síð­ustu mán­uðum hafa gert hús­næð­is­lán þeirra þau hag­stæð­ustu, ef frá eru talin hús­næð­is­lán sem Birta líf­eyr­is­­sjóður býður sjóð­­fé­lögum sín­­um. Lán Birtu eru hins vegar að hámarki fyrir 65 pró­­sent af kaup­verði á meðan að bank­­arnir lána fyrir 70 pró­­sent þess.

[adspot]Breyti­legir óverð­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum Lands­bank­ans og Íslands­banka eru nú til að mynda 3,5 pró­sent. Á sam­­bæri­­legum lánum hjá Arion banka verða vext­irnir 3,54 pró­­sent.

Einu lánin í þessum flokki sem bera lægri vexti eru, eins og áður seg­ir, hjá Birtu líf­eyr­is­­sjóði. Lán með breyt­i­­legum óverð­­tryggðum vöxtum hjá Birtu eru 2,10 pró­­sent. Vaxta­­kjörin hjá þeim líf­eyr­is­­sjóðum sem bjóða upp á óverð­­tryggð lán eru almennt óhag­­stæð­­ari en hjá bönk­­un­um, en óverð­tryggð lán eru nú mun eft­ir­sókn­ar­verð­ari val­kostur en verð­tryggð lán. Verð­bólga er enda 3,2 pró­sent og óverð­tryggðu lánin mörg hver hag­stæð­ari, að minnsta kosti sem stend­ur, en þau verð­tryggðu sem standa til boða, eftir hraða vaxta­lækkun Seðla­banka Íslands und­an­farið rúmt ár. Frá því í maí í fyrra hafa stýri­vextir hans lækkað um 3,75 pró­sentu­stig og eru nú eitt pró­sent.

[links]Vegna þessa varð júní síð­ast­lið­inn umsvifa­mesti ein­staki mán­uð­ur­inn, að minnsta kosti frá árinu 2013, í hreinum nýjum íbúða­lánum hjá bönk­un­um. Ný óverð­tryggð íbúða­lán banka á breyti­legum vöxtum námu alls 31 millj­arði króna, að frá­dregnum upp­greiðsl­um, í þeim mán­uði. Óverð­tryggð lán á föstum vöxtum til þriggja eða fimm ára voru nei­kvæð um sem nemur þremur millj­örðum króna og upp­greiðslur á verð­tryggðum lánum námu einum millj­arði umfram ný óverð­tryggð útlán.

Lýsti yfir áhyggjum

Rann­veig Sig­urð­ar­dótt­ir, vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­mála í Seðla­banka Íslands, lýsti yfir áhyggjur af þess­ari þróun á blaða­manna­fundi sem hald­inn var í lok ágúst í til­efni af nýlegri stýri­vaxta­á­kvörð­un. „Það sem maður hefur áhyggjur af, bæði út frá pen­inga­stefn­unni og fjár­mála­stöð­ug­leika, er að heim­ilin séu að skuld­setja sig of mikið á breyti­legum vöxt­um. Von­andi verðum við ekki með svona lága vexti til fram­tíð­ar. Það er kannski það sem maður hefur mestar áhyggjur af í dag varð­andi miðl­un­ina til heim­ila.“

Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri sagði á sama fundi að það hefði gengið mjög vel að miðla vaxta­lækk­unum bank­ans til heim­ila. Við­brögð þeirra við hvata til frek­ari lán­töku á skap­legri kjörum hefði verið meiri en bank­inn átti von á. Það ýti undir einka­neyslu. „Það hefur verið framar von­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár