Grímur sem ekki uppfylla kröfur hafa verið teknar úr sölu

Neyt­enda­stofa fylgist með grímu­mark­aðnum á Íslandi, nú þegar spurn eftir grímum er í hæstu hæðum. Dæmi eru um að grímur til sölu upp­fylli ekki lág­marks­kröfur og það vill Neyt­enda­stofa alls ekki.

Höfuðstöðvar Neytendastofu í Borgartúni.
Höf­uð­stöðvar Neyt­enda­stofu í Borg­ar­túni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ekki allar þær grímur sem hafa verið til sölu hér á landi upp­fylla þær kröfur sem sótt­varna­læknir hefur sagt að þurfi að vera til staðar og land­lækn­is­emb­ættið hefur til við­mið­unar, en sam­kvæmt leið­bein­ingum þaðan eiga allar einnota grímur hið minnsta að upp­fylla kröfur sem fram koma í vinnu­stofu­sam­þykkt evr­ópsku staðla­sam­tak­anna.[links]

Neyt­enda­stofa fylgist með grímu­mark­aðnum og dæmi eru um að stofn­unin hafi látið taka grímur úr sölu sem upp­fyllt lág­marks­kröfur. Raunar hefur tölu­vert magn slíkra verið tekið úr sölu, eins og fram kom í umfjöllun Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ um grímu­mark­að­inn í vik­unni.

Við verð­könnun ASÍ kom í ljós að stykkja­verðið á þriggja laga einnota grímum væri æði mis­jafnt, allt frá 49 krónum þar sem það var lægst og upp í 298 krónur, en ekki var lagt mat á gæði grím­anna við verð­könn­un­ina.

Þórunn Anna Árn­as­dóttir for­stjóri Neyt­enda­stofu segir að verið sé að kanna vott­anir á þeim grímum sem eru til sölu á land­inu og hún bætir við, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, að til skoð­unar sé hvort þörf sé á að gefa út sér­stakar leið­bein­ingar til sölu­að­ila gríma.

Hún segir að stofn­unin hafi fengið ábend­ingar frá neyt­endum sem brugð­ist sé við, „þar sem stofn­unin vill alls ekki að neyt­endur séu með grímur sem veita falskt öryggi.“

Það eru þrjár mis­mun­andi stofn­anir sem hafa eft­ir­lit með grímum sem seldar eru á Íslandi. Neyt­enda­stofa hefur eft­ir­lit með grímum fyrir neyt­endur, Lyfja­stofnun hefur eft­ir­lits­hlut­verk þegar kemur að grímum sem telj­ast lækn­inga­tæki og Vinnu­eft­ir­litið hefur eft­ir­lit með grímum fyrir atvinnu­lífið.

Þórunn Anna segir að Neyt­enda­stofa sé í góðu sam­starfi við hin stjórn­völdin um grímu­eft­ir­lit nú þegar spurn eftir grímum er meiri en nokkru sinni fyrr.

„Neyt­enda­stofa er einnig í góðu sam­starfi við stjórn­völd í Evrópu sem við fáum ábend­ingar frá og erum í sam­eig­in­legu átaki með,“ segir for­stjór­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár